21.03.1947
Sameinað þing: 37. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í B-deild Alþingistíðinda. (517)

12. mál, fjárlög 1947

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Þó að ég að vísu standi að allmörgum brtt. á þskj. 545 ásamt hv. 8. landsk., þá þarf ég í raun og veru ekki mikið um þær að segja, vegna þess að hann hefur þegar fært mjög glögg rök fyrir þeim og gert fullnægjandi grein fyrir flutningi þeirra.

Ástæðan til þess, að ég kveð mér hljóðs, er sú, að ég er einnig meðflm. að brtt. á þskj. 560, XIX, ásamt hv. þm. Ak., en hann hefur ekki getað mætt hér á fundi í kvöld og hefur þess vegna óskað eftir, að ég gerði grein fyrir henni. Þessi till. fjallar um, að framlag til hafnargerðar á Akureyri verði hækkað úr 200 þús.. sem fjvn. leggur til, að það verði, og upp í 500 þús. kr., en til vara 330 þús. kr. Ástæðan er sú, að eftir að fjvn. hafði gengið frá till. sínum, barst Alþ. bréf frá bæjarstjóranum á Akureyri, þar sem hann fer fram á, að þetta framlag til hafnargerðar á Akureyri verði 500 þús. kr., og gerir grein fyrir, hvers vegna Akureyri þyrfti nauðsynlega á þessu framlagi að halda á yfirstandandi ári. Að vísu var mér nokkuð kunnugt um það áður, að þessar 200 þús. kr. voru allt of lág upphæð, og hafði gert tilraun til að fá nokkru meira fé, en ekki fengið samþ. í fjvn. En er þetta erindi barst frá bæjarstjóra Akureyrar, töldum við okkur skylt að bera þessa till. fram. Ég held, að réttast sé, til þess að ekki fari neitt á milli mála um rökstuðning fyrir þessari till., að ég fái, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp bréfið frá bæjarstjóranum. Það er skrifað 17. marz og hljóðar þannig:

„Bæjarstjórn Akureyrar hefur á fundi sínum þ. 11. þ. m. gert svofellda samþykkt: „Bæjarstjórn Akureyrar fer þess á leit við hið háa Alþingi. er nú situr, að veitt verði á fjárlögum fyrir árið 1947 500 þúsund krónur til hafnarframkvæmda á Akureyri.“

Til stuðnings þessari beiðni bæjarstjórnarinnar vil ég leyfa mér að benda hinu háa Alþingi á, að Akureyri er mikil þörf bæði fyrir ný hafnarmannvirki og stórfelldar endurbætur á hinum gömlu mannvirkjum hafnarinnar.

Á Oddeyrartanga er fyrirhuguð bátakví ásamt bryggjum og dráttarbraut. Er þegar byrjað á því verki og gert ráð fyrir að halda því áfram á næstu árum, eftir því sem fé fæst til framkvæmda, enda er þörf fyrir þau mjög aðallandi, þar sem dráttarbraut sú, sem nú er á Akureyri, er alveg ófullnægjandi fyrir bæinn og getur ekki vegna þrengsla verið til lengdar þar, sem hún er nú.

Hin gömlu mannvirki hafnarinnar eru flest orðin svo úr sér gengin, að þau þurfa bráðra umbóta við. Aðalbryggjan er á Torfunefi. Í áframhaldi af henni var gerður ca. 25 m langur skjólveggur úr timbri til skjóls fyrir skipakví, sem er norðan við bryggjuna. Veggur þessi brotnaði í ofviðri í vetur, og kom þá í ljós, að hann var því nær étinn sundur af tréátu. Má því búast við, að bryggjan sé einnig mjög étin. Auk þess mun hún vera yfir 40 ára gömul, og er því hættulegt að láta hana standa án viðgerðar. Þar sem telja má víst, að gera þurfi aðalvegg bryggjunnar alveg að nýju, er ráðgert að breikka hana um leið og lengja sem svarar því, er skjólveggurinn náði áður. Þessar framkvæmdir tel ég óhjákvæmilegt að gera á yfirstandandi ári. Vitamálaskrifstofan hefur áætlað, að þær muni kosta um 11/2 millj. kr.

Vestan við skipakvína er ca. 120 m langur hafnarbakki, sem segja má, að sé kominn að falli og þurfi bráðrar aðgerðar við. Sú aðgerð hefur ekki verið áætluð, en kostar varla minna en eina millj. Þá á höfnin timburbryggjur, sem allar eru gamlar og þarfnast endurbóta.

Bæjarstjórn og hafnarnefnd hafa fullan hug á að hefjast handa um framannefndar hafnarbætur, fé er að vísu ekki fyrir hendi, sem neinu nemur, en höfnin er skuldlaus, og ætti því að vera hægt að fá lán til þeirra, enda er það óverjandi bæði fyrir bæjarstjórn og yfirstjórn hafnarmála að láta þau liggja undir skemmdum aðgerðarlaus. Í raun og veru hefði þurft að vera búið að framkvæma margt af því, sem hér er um að ræða, en á stríðsárunum var tæpast hægt að fá efni til aðgerðanna, og skemmdir þær, sem tréátan hefur valdið, komu ekki í ljós fyrr en í vetur, þegar skjólgarðurinn brotnaði.

Að þessu athuguðu vona ég, að hið háa Alþingi sjái sér fært að verða við ofannefndum tilmælum bæjarstjórnarinnar.“

Þetta er rökstuðningur bæjarstjóra Akureyrar fyrir nauðsyn þeirrar fjárveitingar, sem hér er farið fram á.

Eins og hér kemur fram, er óhjákvæmilegt að framkvæma á þessu ári þær aðgerðir á aðalbryggju hafnarinnar, sem talað er um. Við hana fer fram öll sú mikla vöruafgreiðsla, sem á sér stað á Akureyri, og eins og hv. þm. er kunnugt, þá er Akureyri ákaflega mikill verzlunarbær, ekki aðeins fyrir Akureyri sjálfa og nærsveitirnar, heldur er hún að talsverðu leyti umskipunarbær fyrir mikinn hluta Norðurlands og verður það væntanlega í enn stærri stíl. því er óhjákvæmilegt ekki aðeins að halda við þessari aðalbryggju, heldur einnig að stækka hana verulega, eins og hér er talað um, og breikka hana til þess að fá þar meira pláss á sjálfri bryggjunni og fá meira djúp, svo að stærri skip geti flotið þar að. Sömuleiðis þarf að lengja bryggjuna til að koma í veg fyrir, að kvika komist inn í hafnarkvína, sem er eini staðurinn til verndar skipum, sem þar liggja, eins og þau gera oft.

Kostnaðaráætlun þessarar framkvæmdar er 11/2 millj. kr., þar af framlag ríkissjóðs 600 þús. kr., svo að þessar 200 þús. kr., sem hér er till. um, ná skammt fyrir þessa einu framkvæmd.

Eins og hér er einnig gerð grein fyrir, þá eru ýmsar aðrar framkvæmdir, sem standa fyrir dyrum á Akureyri, þar á meðal að byggja nýja fiskihöfn, sem er mjög aðkallandi vegna væntanlegrar mjög vaxandi útgerðar á Akureyri, þar á meðal togaraútgerðar, sem nú er verið að stofna til, og í sambandi við þá hafnargerð er líka ráðgert að byggja nýja dráttarbraut, sem er orðið óhjákvæmilegt, bæði vegna þess, eins og hér er gerð grein fyrir, að dráttarbrautin, sem nú er á Akureyri, er orðin algerlega ófullnægjandi fyrir stór skip, sem þar eiga heima og þangað leita til aðgerðar, og líka vegna hins, að sú dráttarbraut hefur allt of lítið pláss og stendur þar að auki í vegi fyrir öðrum framkvæmdum, sem ákveðnar eru á þeim stað, og verður því að flytja hana á næstunni.

Þá má einnig geta þess í þessu sambandi, að þessi dráttarbraut er líka, auk þess sem hún er of lítil, nokkuð gölluð og þarf mjög verulegrar aðgerðar við, ef á að nota hana áfram. Hafa eigendur hennar óskað eftir við bæjarstjóra að fá að gera verulegar umbætur á henni, en verið neitað um það vegna þess, að það hefur ekki verið talið fært, þar sem hún mundi ekki geta fengið að vera þar til lengdar, þar sem fiskihöfn á að verða þar, en gert ráð fyrir, að dráttarbrautin verði annars staðar og önnur mannvirki í sambandi við hana. Kemur þá til ríkisins að leggja fram sinn hlut af því, sem þau mannvirki koma til með að kosta. Það er sem sagt séð, að það framlag, sem fjvn. hefur ætlazt til, að hafnargerð Akureyrar fengi, 200 þús. kr., er gersamlega ófullnægjandi.

Að vísu er mér kunnugt um ýmsa aðra staði, að þar vantar fé í framkvæmdir, miklu meira en það, sem fjvn. hefur treyst sér til að veita á þessum fjárl. Þannig er ástatt með ýmsar hafnir, að fjárveitingar til þeirra verða hvergi fullnægjandi til að mæta þeirri þörf, sem þar er fyrir hendi. Þess vegna gerum við flm. ráð fyrir, þótt við teldum rétt að bera fram óskir bæjarstjórnar í þessu efni, þá mundi torvelt að fá þá upphæð samþ. Þess vegna höfum við líka borið fram varatill. í þessu sambandi. 330 þús. kr., en ef hún yrði samþ., þá er Akureyri sett á sama bekk í fjárl. og nokkrar aðrar hafnir á landinu, þær, sem hæstu fjárveitingar fá samkvæmt till. fjvn. Ég held samkvæmt þeim rökum, sem fyrir liggja í bréfi bæjarstjóra, þá sé full ástæða til að láta Akureyri sitja við sama borð og aðrar hafnir, sem mest fá. Ég get ekki búizt við, að lengra verði gengið í því efni, en skemmra væri að mínu áliti ekki heldur réttlátt að ganga.

Fyrst ég tók hér til máls, vil ég leyfa mér að minnast aðeins á tvær af þeim till., sem við hv. 8. landsk. flytjum á þskj. 545. Í fyrsta lagi, að varið verði til byggingar heimavistarhúss á Akureyri 700.000 kr. Hv. 8. landsk. færði að vísu fullgild rök fyrir nauðsyninni á því, að þetta fé yrði veitt nú til byggingar heimavistarhúss, en ég vil þó bæta því við, sem skólameistari hefur lagt mjög mikla áherzlu á í sinni röksemdafærslu fyrir nauðsyn þessarar byggingar, en það er sú eldhætta, sem er í menntaskólahúsinu. Eins og hv. þm. er flestum vafalaust kunnugt, þá er skólinn gamalt timburhús, mjög stórt. Heimavistin þar er á 3. hæð, þ.e.a.s. uppi á rishæð, og frá sumum þessara herbergja er talsvert löng leið, miðað við innanhússvegalengdir, til þess stiga, sem hægt er að nota til niðurgangs úr húsinu. Ef svo óheppilega vildi til, að eldur kæmi upp í húsinu, þannig að hann yrði ekki slökktur þegar í byrjun, heldur læsti sig um húsið á skömmum tíma, eins og alltaf er, ef eldur kemur upp í gömlum timburhúsum, þá er alvarleg hætta á því, að þeir tugir manna, sem búa í þessu timburhúsi, brynnu þar inni. Skólameistari hefur lagt mjög mikla áherzlu á þetta, og ég held, að því verði ekki móti mælt, að það er alvarlegur ábyrgðarhluti að hafa það yfir höfði sér, að stór hópur af mannvænlegu æskufólki, sem stundar nám í þessum skóla, geti svo að segja hvaða nótt sem er orðið eldinum að bráð. Nauðsynin á þessari byggingu hefur að vísu verið viðurkennd af Alþ., þar sem fé er veitt í fjárl. á síðasta ári til byrjunar á þessari byggingu, en það er nauðsyn, að þeirri viðurkenningu verði fylgt eftir með því að veita nú áfram til þess ekki minna en 700 þús. kr., sem við förum fram á, vegna þess að með því er nú þegar hægt að ná þeim árangri, að strax næsta haust sé hægt að nota nokkurn hluta þessa húss. Eftir því sem skólameistari upplýsir, þá er rúm fyrir 34 nemendur í þessari nýju heimavist, og fækkaði þá verulega þeim, sem búa yrðu í gamla húsinu og hafa yfir sér þá hættu, sem þar vofir yfir þeim. Ég vil því eindregið mæla með því, að þessi till. verði samþ., og vil einnig vænta þess, að þar sem hæstv. menntmrh. mælti mjög eindregið með því við fjvn., að þessi upphæð yrði veitt til byggingar heimavistarhúss á Akureyri, þá fái hún góðar undirtektir hjá hv. þm. og verði þess vegna samþ. hér.

Þá vil ég segja nokkur orð um aðra till. okkar, en hún er um að veita 2 millj. kr. til þess að sýna einhvern ofurlítinn lit á að framkvæma l., sem samþ. voru á síðasta þingi, um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum. Á ég þar við framkvæmd l., sem áttu að verða til að aðstoða kauptún og sveitarfélög við það að útrýma heilsuspillandi íbúðum. Þegar hæstv. forsrh. var hér fyrir nokkrum dögum að mæla fyrir stjfrv. um fjárhagsráð, kom hann nokkuð inn á þessi byggingarmál og upplýsti, að nú lægju fyrir skýrslur frá fimm kaupstöðum og kauptúnum, hversu mikið væri þar af heilsuspillandi íbúðum, og að nokkru leyti áætlun um, hvað kostaði að útrýma þeim á tilteknum tíma samkvæmt þessum l. Samkvæmt þessum upplýsingum eru taldar á Ísafirði 32 íbúðir, sem þurfi að byggja til þess að fullnægja þessum l. Kostnaður við það er talinn vera um tvær millj. kr. Á Sauðárkróki eru 36, sem mundu kosta 1.800 þús. kr., á Seyðisfirði 16, sem mundu kosta 800 þús. kr. Í Reykjavík er samkvæmt þessum skýrslum 461 íbúð, sem mundi kosta 32 millj. kr. Ég skal hvorki rengja né staðfesta þessa skýrslu, en þó hef ég heyrt í Reykjavík nefndar hærri tölur, sem það mundi kosta að útrýma þessum óhæfu íbúðum, en þar sem gengið er út frá þessum tölum, þá mundi þurfa að byggja á næstu fjórum árum fyrir um 39.600 þús. kr. samkvæmt 3. kafla þessara l., ef ætti að framkvæma þau eins og efni standa til, en það þýðir, að þyrfti að verja á þessum fjórum næstu árum úr ríkissjóði um 10 millj. kr. árlega til að fullnægja l. Að vísu munu menn segja, að hægt sé að framkvæma þessi l. án þess að verja svo miklu fé beinlínis úr ríkissjóði í þessi fjögur ár, heldur mætti gera það með lántöku. Það er rétt, en þó ber einnig á það að líta, að þótt verulegur hluti af því fé, sem til þess þyrfti, yrði tekinn að láni af ríkinu, þá er samt sem áður ómögulegt að framkvæma l. án þess, að ríkið beinlínis leggi fram nokkra fjárhæð á hverju ári í þessu skyni. Samkvæmt l. á ríkið að lána bæjarfélögunum 75% af kostnaðarverði. Þetta lán á ríkið að veita bæjarfélögunum með 3% vöxtum. Það er mjög líklegt, ef ríkið tæki lán, þá yrði það að borga eitthvað hærri vexti, en þetta, a.m.k. eru venjulegir útlánsvextir lánsstofnana nú hærri, en því nemur. Það hlytu því að koma á ríkissjóð einhver útgjöld í vaxtamismun á þessum lánum.

Sömuleiðis gera l. ráð fyrir, að auk þessara 75% eigi ríkið að láta bæjarfélögunum í té 10% af kostnaðarverði bygginganna vaxtalaust í 50 ár. Þar kemur einnig þó nokkur fjárhæð, sem verður að leggja fram beinlínis úr ríkissjóði og takast á fjárl. árlega til þess að mæta ákveðnum útgjöldum.

Í þriðja lagi er gert ráð fyrir í l., að ef bæjarfélögin, sem reisa íbúðir til útrýmingar heilsuspillandi íbúðum og eiga sjálf að leggja fram 15% kostnaðar, kynnu að telja hagkvæmt að gefa eftir sinn hluta kostnaðarverðsins til þeirra, sem þarna eiga að búa, vegna þess að það mundi yfirleitt verða fátækt fólk, sem hefði ekki náð á að byggja yfir sig, þá er ríkisstj. einnig heimilt að gefa eftir þessi 10%, sem ríkið á að lána vaxtalaust í 50 ár. Getur því verið þar um að ræða bein útgjöld af hálfu ríkisins.

Þegar þetta þrennt kemur saman, þá er augljóst, að ómögulegt er að framkvæma þessi l., nema til þess sé veitt ákveðin upphæð árlega á fjárl. þann tíma, sem framkvæmdin stendur yfir.

Ég álít því, að það sé óverjandi, ekki sízt eftir þá reynslu, sem fengizt hefur af framkvæmd l. það eina ár, sem þau eru búin að vera í gildi, að afgreiða fjárl. án þess að nokkur fjárhæð sé veitt til að tryggja, að byrjað sé á framkvæmd þessara l., því að hún er ekki byrjuð enn, hvað snertir þennan kafla. Og þótt þær tvær millj., sem við leggjum til, að veittar verði, hrökkvi skammt til þessara framkvæmda, þá ætti sú upphæð samt að nægja, a.m.k. fyrir þeim beinu útgjöldum, sem ég hef gert hér grein fyrir og enginn efi er, að ríkið verður að sjá um, og því óhjákvæmilegt að taka nokkra upphæð inn í fjárl. í því skyni.

Til fjvn. kom hér einu sinni í vetur erindi frá fjmrn., frá fyrrv. fjmrh., þar sem lagt var til, að kr. 900.000 yrðu teknar á fjárl. í þessu skyni. Fjvn. hefur ekki orðið við þeirri ósk fjmrn. og ekki tekið þetta upp í sínar till. í sambandi við frv. Ég álít. að þessi upphæð, sem fyrrv. fjmrh. fór fram á, sé allt of lág. og þess vegna höfum við lagt til, að þetta tillag yrði kr. 2.000.000, en þó kr. 900.000 sé of lág upphæð, þá væri þó með þeirri upphæð fengin viðurkenning Alþ. á því, að það bæri að framfylgja þessum l. Þess vegna höfum við sem varatill.. að orðið sé við þessari ósk fyrrv. fjmrh. Ég vil vænta þess, að hærri till. verði samþ., og vil ekki trúa því, fyrr en ég tek á, að þingið vilji ekki verða við því að framkvæma þessi l. frá síðasta þingi og samþykkja a.m.k. kr. 900.000. Ég skal ekki fara út í að ræða fleiri till., þar sem hv. 8. landsk. hefur gert grein fyrir þeim, og læt þá máli mínu lokið.