08.05.1947
Sameinað þing: 51. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í D-deild Alþingistíðinda. (5178)
299. mál, síldarmjöl
Flm. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Þar sem fundartími er takmarkaður, skal ég aðeins segja örfá orð um þessa þáltill.
Ég hef hér ásamt hv. þm. Dal. leyft mér að flytja þáltill. um flokkun á síldarmjöli, sem selt er innanlands. Þetta mál var nokkuð ýtarlega rætt hér í hv. d. í sambandi við frv. til l. um verzlun með mjölvörur. En það er því meiri ástæða til þess að samþykkja þessa þáltill. fyrir það, að það frv. var fært úr því formi, sem það upphaflega var í, þegar hv. landbn. flutti það. Það er óþarfi að fjölyrða frekar um það en orðið er, enda hefur enginn mælt á móti því, að síldarmjöl, eins og það er nú selt innanlands til bænda, hafi verið illa flokkað og bændur hafi oft orðið að greiða þar fullt verð fyrir mjög lélega vöru. Þeir, sem komizt hafa í kynni við þetta og hafa fengizt við verzlun á þessari vöru og dreifingu, vita þetta mjög vel.
Mér þótti vænt um að heyra, að búnaðarmálastjóri, hv. 1. þm. Skagf., lýsti því hér yfir í sambandi við umr. um áðurnefnt frv., að hann væri fylgjandi þessari þáltill. og teldi gott að fá hana samþ. og taldi horfur á því, að flokkun síldarmjöls á innanlandsmarkaði yrði þá betri en nú er.
En það er ekki nóg að samþykkja þessa þáltill., þó að það hafi sitt gildi, nema ríkisstj. taki till. til greina og geri það, sem í hennar valdi stendur til þess að ráða bót á þessu máli. Og það er von mín, verði þessi þáltill. samþ., að svo verði.