05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í D-deild Alþingistíðinda. (5185)

300. mál, landhelgisgæsla og björgunarstarfsemi

Jónas Jónsson:

Herra forseti. — Ég ætla aðeins að segja örfá orð um þetta mál nú, en mun ræða það ýtarlegar, þegar það kemur úr n. — Það virðist vaka fyrir flm. þessarar þáltill., að það þurfi að hafa sérstaka stofnun til þess að stjórna landhelgismálunum, og kom fram í ræðu hv. 1. flm. allmikill ókunnugleiki á gangi þessara mála, því að hér um bil allt það, sem nýtilegt hefur gert verið í landhelgisgæzlumálunum á síðustu 15 árum, hefur verið gert undir forstöðu þess manns, sem stjórnar þessum málum, þannig að allar breytingar á þeim, sem nú væru gerðar, væru fyrirsjáanlega til skaða, af því að það er ekki vitað, að völ sé á neinum öðrum mönnum betri en þeim, sem nú hafa þessi mál með höndum.

Hv. flm. hélt því fram, að landhelgisgæzla okkar væri mjög ófullkomin. Hann man það sennilega ekki, að hr. Eden lýsti því yfir í enska þinginu fyrir nokkrum mánuðum út af árás enskra útgerðarmanna í Hull á íslenzka varðgæzlu, að hann hefði rannsakað málið og að hann bæri fullkomið traust til íslenzkrar landhelgisgæzlu. Er óhætt að telja, að þessi ummæli hr. Anthony Edens, fyrrv. utanrrh. Breta, séu hið mesta „kompliment“ fyrir stjórn þessara mála hjá okkur.

Mig langar til þess að benda hv. þm. á nokkur atriði í sambandi við þetta mál, sem ég er hræddur um, að hann hafi ekki gert sér grein fyrir. Í fyrsta lagi skiptir það hér miklu máli, að það eru ekki aðeins íslenzkir og erlendir togarar, sem þarf að hafa eftirlit með, heldur verða hér við land innan skamms 150 togbátar, sem eiginlega geta ekki fiskað aðalaflann nema í landhelgi, en hins vegar leyfa aðrar þjóðir ekki að toga við strendur sínar nema aðeins að litlu leyti. Í öðru lagi kemur það hér til greina, að bæði fyrr og síðar hefur það sannazt, að menn úr landi hafa samband við skip og báta, sem að veiðum eru í landhelgi, og gefa þeim fregnir af ferðum varðgæzluskipanna, svo að þessi skip í landhelgi geti varazt þau. Minnist ég þess í þessu sambandi, að um þessi mál stóðu miklar deilur hér á árunum, sem ég tók þátt í, þar sem ég krafðist þess, að komið yrði í veg fyrir, að loftskeytatæki væru misnotuð í sambandi við landhelgismálin. Þá gerðist það, að fjöldi hv. þm. reis upp og vildi hindra, að þetta yrði stöðvað, og héldu margir því fram, að engin ástæða væri til að athuga þessi mál og að hér ættu sér stað engar slíkar njósnir. En svo kom bara í ljós og var sannað af Pálma Loftssyni, að fjöldi manna héðan úr landi voru sekir um slíkar njósnir með því að tilkynna bæði innlendum og erlendum skipum, sem voru að veiðum í landhelgi, um ferðir varðskipanna. Ég vil því biðja þá, sem standa að till. þessari og eru að reyna að áfella þá, sem þessum málum stjórna, að athuga það, að það var einmitt að þakka góðri stjórn á landhelgismálum okkar, sem það tókst að upplýsa þessar njósnir. Þá vil ég og biðja hv. þm. N-Ísf. að athuga það, að um leið og búið er að taka báta í landhelgi, þá heyrast strax kveinstafir frá hlutaðeigendum, sem þeir bera upp við þm. eða ráðh. til þess að forða þeim frá að borga sektir fyrir landhelgisbrot.

Ég heyri nú á hæstv. forseta, að honum ríður á að slíta fundi, vegna þess að setja þarf fundi í deildum fyrir kl. 4, og skal ég því láta hér staðar numið að sinni.