24.05.1947
Sameinað þing: 59. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (5207)
307. mál, Austurvegur
Helgi Jónasson:
Herra forseti. Það, sem hér er um að ræða, er áskorun til ríkisstj. um að láta þegar hefja framkvæmdir í sumar samkvæmt l. um Austurveg. Það þarf ekki mörg orð um það vegamál, það þekkja allir þm., og allir þeir, sem kunnugir eru háttum hér á landi, vita, hvílíkt nauðsynjamál þetta er. Fyrir fjórum árum var skipuð mþn. í þessu máli, og hún gerði till. um þetta vegarstæði yfir Hellisheiði, og á þeim till. byggðust svo l., sem samþ. voru í maí 1946, þar sem gert er ráð fyrir, að vegurinn verði lagður um Þrengslin, austur í Ölfus og á þjóðveginn við Kögunarhól. Í þessum l. er einnig gert ráð fyrir heimild til handa ríkisstj. til að taka allt að tveggja millj. kr. lán til þessara framkvæmda, og leggja á veginn á 7 árum. Þessi till. okkar hér er aðeins til að ýta á eftir því, að framkvæmdir hefjist, og allir vita, að þær þola enga bið. Ég vil taka það fram, að enda þótt við flm. og aðrir viljum, að byrjað verði á Austurvegi á þessu sumri, þá legg ég áherzlu á, að Krýsuvíkurveginum verði jafnframt haldið áfram og ekki hætt við hann. Það er nauðsynlegt að hafa báða þessa vegi sem öryggisleiðir yfir Hellisheiði.