24.05.1947
Sameinað þing: 59. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í D-deild Alþingistíðinda. (5209)
307. mál, Austurvegur
Samgmrh.. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þessi till. á þskj. 789 er að ýmsu leyti óvenjuleg. Hún fer fram á, að Alþ. ákveði að fela ríkisstj. að hefja framkvæmdir á þessu sumri við Austurveg. Skal byrjað í Svínahrauni og endað við vegamót Selvogsvegar í Ölfusi. Þessi l., sem vitnað er til, nr. 32 23. apr. 1946, eru ekki nema ársgömul, og samkv. þeim er ákveðið, að nýjan veg skuli leggja á þessu svæði, sem þessi þáltill. gerir grein fyrir. Ákveðið er, að framkvæmdin skuli miðast við, að vegurinn verði fullgerður á 7 árum, enda sé fyrir hendi nægilegt vinnuafl og stórvirkar vinnuvélar. M.ö.o., í þessum l. eru því nóg fyrirmæli um að hef ja framkvæmdir og hraða verkinu meira en verið hefur um nokkra aðra vegargerð hér á landi. Ýmislegt er annað, sem er óvenjulegt um þessi l. Þetta er svo stórkostlegt fyrirtæki, að ekki er hægt að veita nóg fé á fjárl. til þessa, heldur er heimilað að taka lán allt að 20 millj. kr., og er það ekkert smáræði. Yrði Austurvegur þá fyrsti vegurinn, sem lagður væri fyrir svo mikið lánsfé. Ég skal viðurkenna, að vegar er þörf á þessu svæði, því að um helmingur landsmanna verður hans aðnjótandi, og tryggir hann einnig samband milli Reykjavíkur og beztu mjólkursvæðanna, og er vitanlega mikil nauðsyn, að opið samband sé þar á milli. En þá er ekki úr vegi að rifja upp, hvernig hagar til um vegarsamband milli þessara staða og til hvers l. eru sett. Aðalleiðin milli Reykjavíkur og Suðurlandsins er um Hellisheiði, sem vitað er, og kemst sá vegur hæst á 4. hundrað metra yfir sjó, og verður hann oft tímum saman ófær vegna snjóalaga. Þessi vegur er því síður en svo öruggur, enda hefur oft komið fyrir, að samband hefur teppzt á þessari leið og það svo dögum og vikum hefur skipt. Hefur þá þurft að grípa til örþrifaráða og reyna að fara aðrar leiðir. Hefur annar vegur verið líka notaður, en það er vegurinn um Þingvelli og Mosfellsheiði. Hann er að vísu lengri, en liggur um 100 metrum lægra, og er því oft, að hann er fær, þótt Hellisheiðin sé lokuð, enda er oft farin Þingvallaleiðin um Mosfellsheiði, þegar vegurinn um Hellisheiði er ófær. En eins og ég sagði, fer Þingvallavegurinn líka nokkuð hátt yfir sjó, eða upp í 260–270 metra, en þó er það 100 metrum lægra en Hellisheiðarvegurinn. Þetta er því ekki nóg til að tryggja öruggan vetrarveg, og var þá hafizt handa um þriðju leiðina, um Hafnarfjörð, Krýsuvík, Selvog og Selfoss. Þessi vegur er að því leyti eins og Þingvallavegurinn, að hann er lengri en Hellisheiðarvegur, en hann fer lágt yfir sjávarmál, eða 60 metra, þar sem hann er hæstur. Þess vegna standa vonir til, að þessi vegur geti orðið snjólaus mestan hluta ársins og verði því hægt að fara þá leið, þegar hvorug hin er fær.
Þó er engin reynsla fengin enn í þessum efnum, vegna þess að veginum er ekki lokið, þó að hann hafi verið í byggingu á annan tug ára, en byrjað var á þeirri vegagerð um 1936–'37. Í þennan veg hefur verið varið hundruð þús. eða millj. kr., sem engan stað sér enn þá, því að hann er enn ófullgerður. Nú er viðurkennt, að höfuðsjónarmið með l. um Austurveg er að tryggja ekki eingöngu vetrarsamband, heldur einnig almennt samband milli þessara staða. Þó virðist mér, eins og nú horfir, mestu máli skipta að byrja með að tryggja öruggt vetrarsamband, enda er sýnilegt, að það er ætlunin með þessari þáltill. Nú er upplýst frá vegamálastjóra, að vegagerð um Þrengsli frá Kolviðarhóli austur í Ölfus kostar um 5 millj. kr. eða um 4/5 hluta kostnaðar af öllum veginum. Hins vegar standa þannig sakir um Krýsuvíkur- og Selvogsveg, að hann nær um 30 km. suður af Hafnarfirði og frá Ölfusi allt vestur í Selvog. Þá er eftir kafli milli vegarendanna, til þess að vegurinn sé fullgerður, um 20 km. Til að fullgera þennan kafla þarf rúmar 2 millj. kr. samkv. upplýsingum frá vegamálastjóra. Má því takast að fullgera þennan veg fyrir minna en helming þeirrar upphæðar, sem það kostar að leggja veg um Þrengslin frá Kolviðarhóli og niður í Ölfus, og er það aðeins vetrarvegur. Þá hefur sú spurning fyrir mér vakað, hvort hyggilegt sé að gera skilyrðislausa kröfu til ríkisstj., að hún hefjist handa um að taka 2–3 millj. kr. lán til vegalagningar á fjórða staðnum, og hvaða kosti þessi leið hefur. Ekki liggur hún lægra, og ég efast um, að hún sé snjóléttari, svo að það er frá mínum bæjardyrum séð engin trygging fyrir því, að nokkurn tíma verði hægt að fara Þrengslin, þegar vegurinn um Selvog er orðinn ófær. Þá hlýtur að vera einfalt að gera upp með sér, hvora leiðina á að fara, ef önnur kostar rúmar 2 millj. kr., en hin 4–5 millj. kr., án þess að verulegur árangur náist, og get ég þá ekki séð, hvað er unnið með því að velja þá leið, sem kostar 5 millj. kr., en láta hina bíða, sem kostar 2 millj. Að vísu er eitt atriði, sem Þrengslaleiðin hefur fram yfir Krýsuvíkurveginn, og það er, að hún er þáttur í þeirri vegagerð, sem menn eru sammála um, að koma skuli á þessum slóðum, og er því þetta spor í rétta átt. En á móti því vildi ég segja, að ég tel nauðsynlegra að reyna að fullgera þetta mikla verk, sem svo lengi hefur verið á döfinni, og sjá hvernig það reynist, áður en hafnar eru framkvæmdir á Þrengslaleiðinni. Ég skal svo láta útrætt um þessa hlið málsins, en niðurstöður mínar eru á þá leið, að ég teldi réttast og æskilegast að leggja sem mesta áherzlu á að ljúka Krýsuvíkurveginum, en það ætti að vera auðvelt á 2–3 árum, og sjá svo árangurinn, hvort þá verður sæmilega séð fyrir vetrarflutningum. Reyna þar á eftir að fullgera Hellisheiðarveginn, og er þá hægt að miða hann við almenna flutninga, en ekki við vetrarflutninga eingöngu.
Það eru svo margar aðrar hliðar á þessu máli. Ríkisstj. hefur skrifað Landsbankanum um fyrirkomulag á framkvæmdum á næstu árum og um lánsfé til þeirra framkvæmda. Þegar lánsheimildir hafa verið taldir saman, sem stjórnin hefur fengið á undanförnum árum, og þegar enn fremur hefur verið bætt við ýmsum óskum héraðanna um lántöku til annarra framkvæmda, þá hefur komið í ljós, að hér er um geipilegar upphæðir að ræða. Ég býst ekki við, að listi ríkisstj. sé tæmandi og að óskir nm lánsfé frá bæjum og hreppsfélögum séu heldur tæmandi, en þessi listi var nýverið kominn á 2. hundrað millj. kr., sem er óskað eftir, að Landsbankinn láni til nauðsynlegra framkvæmda fyrir ríki, bæjar- og hreppsfélög. Landsbankinn hefur svarað þessu á þá leið, að hann treystist ekki til að láta allt þetta fé, því að hann hefur þegar lánað allt það fé út, sem sparisjóðsdeildin hefur, og þó að þetta sé til stutts tíma og hægt verði að lána fé út á ný, þá verða menn að gera sér ljóst, að lands bankinn þarf að hafa mikið rekstrarfé undir höndum.
En niðurstöður Landsbankans um lánsmöguleika bankans og um óskir opinberra aðila eftir lánsfé eru þær, að á engan hátt sé mögulegt að fullnægja öllum þeim óskum, sem fram hafa komið í þessu efni. Þetta þýðir, að það verður að gera áætlanir um þær opinberu framkvæmdir, sem ríki, bæir og sveitarfélög gera, og stilla svo til, að þær einar framkvæmdir verði ákveðnar, sem eitthvert fé er til fyrir. Þetta m.a. var tilgangurinn með stofnun fjárhagsráðs, og er eitt verkefni þess að ákveða röð hinna ýmsu framkvæmda, bæði ríkis, bæjar- og sveitarfélaga og einstaklinga. Þetta er nauðsynlegt til að tryggja, að nauðsynlegar framkvæmdir sitji í fyrirrúmi, og til að tryggja, að einstaklingar og aðrir hlaupi ekki fram fyrir skjöldu í krafti peninganna til að ráðast í framkvæmdir, sem eru ef til vill miður heppilegar frá sjónarmiði þjóðarheildarinnar. Enn fremur höfum við séð of mörg dæmi þess, að menn hafa byrjað á framkvæmdum, en lent í þroti í miðju verkinu og sjá enga möguleika til að ljúka því. Þess vegna m.a. er það verkefni fjárhagsráðs að skera úr því, hvað eigi að sitja fyrir og hvað eigi að víkja af framkvæmdum. — [Fundarhlé.]
Ég lauk máli mínu áðan með því að gera nokkra grein fyrir, hvaða kröfur hafa komið fram um lán á hendur Landsbanka Íslands til ýmiss konar framkvæmda, bæði af hálfu ríkis og ríkisstofnana og sömuleiðis bæjar- og sveitarfélaga úti um land, og skýrði frá því, að óskir, sem fram hefðu komið um þetta efni, næmu nú þegar talsvert miklu á annað hundrað millj. kr., og Landsbankinn hefur ekki séð sér fært að lofa því að veita þessi lán. Hins vegar hefur hann farið fram á við ríkisstj., að þessi mál yrðu nokkuð greind í flokka eftir því, hve þau eru talin áríðandi, og hefur tjáð sig fúsan til að fara eftir till. ríkisstj. eða þeirra, sem hún vildi fela þetta verk, um lánveitingarnar, og væri þá fyrst og fremst miðað við þau verk, sem talið væri, að helzt þyrftu að ná framgangi. Í sambandi við þetta hefur ríkisstj. svo borið fram og fengið samþ. l. um fjárhagsráð, sem ætlazt er til, að hafi þetta starf með höndum og greini þau verk, sem nauðsynlegust eru, frá hinum, sem einhverja bið þola.
Ég skal ekki leggja neinn dóm á, hvort þetta verk, sem hér um ræðir, verður þar í fremstu röð eða önnur verk, sem líka þarf að fá lán til, verði þar lögð til jafns við eða jafnvel tekin fram yfir þetta. En hitt finnst mér einsýnt, og það er aðalatriði málsins, að Alþ. hlaupi hér ekki fram fyrir skjöldu og ákveði röðina, rétt um það leyti sem verið er að setja l. um fjárhagsráð. Það þætti mér furðuleg ráðstöfun, ef samtímis því, sem Alþ. ákveður að skjóta afgreiðslu þessara mála til fjárhagsráðs og fela því að ákveða röð hinna opinberu framkvæmda, þá væri ákveðið, hvar í röð skyldi vera stærsta mannvirkið og það, sem ef til vill orkar mest tvímælis, því að eins og ég hef sýnt fram á, mun þurfa til þessara framkvæmda um 20–30 millj. kr. Það var á sínum tíma áætlað 24 millj., svo að það er í röð hinna dýrustu fyrirtækja, og eins og ég sagði áðan, orkar mjög mikils tvímælis í hugum margra, hvort eigi að taka það fram yfir öll önnur mál af Alþ., rétt í þann mund sem fjárhagsráð er að taka til starfa. Ég gæti ímyndað mér, að aðrir þm. mundu og skoða hug sinn tvisvar, ef þeir ættu mikið undir fjárhagsráði með önnur mannvirki, sem þeir hefðu áhuga á, að framkvæmd yrðu og kæmu í framkvæmd nú á næstunni, áður en þeir skyndilega vildu fara að binda þessar 20 millj. kr., fyrr en nokkuð er ákveðið um nokkurn annan hlut.
Ég þarf ekki að nefna hér dæmi um ýmis verk, sem að mínum dómi koma til álita fullt eins vel og það, sem hér um ræðir. Fátt eitt vil ég þó nefna. Við skulum t.d. segja um miklar framkvæmdir, sem nú eru á döfinni. Mig minnir, að veitt sé á fjárl. 10 millj. kr. til nýbyggingarráðs, og á að koma á móti frá bæjar- og sveitarfélögum hálfu öðru sinni sú upphæð, eða um 15 millj. kr. Einhvers staðar verður að taka það fé. Og ég held, að hafnarframkvæmdir séu síður en svo veigaminni eða óþarfari framkvæmdir en þær, sem hér um ræðir. Þá eru það hafnirnar. Það hefur verið samið um Njarðvík og Keflavík, það mun kosta um 1012 millj. Einhvers staðar þarf að taka það. Símalagnir þarf um allt land. Til þeirra framkvæmda eru ákveðnar 12 millj. kr. Einhvers staðar þarf að taka það fé. Það hefur verið talað um viðbót við virkjun Sogsins, kostnaður þar mundi vera milli 30–40 millj. kr. Einhvers staðar verður að taka það. Svona er fjölda- fjöldamargt annað, sem mætti telja og taka til athugunar, áður en slegið er föstum framkvæmdum eins og þeim, sem hér um ræðir. Það er langt frá því, að ég sé með þessum orðum mínum að draga á nokkurn hátt úr þeirri þörf, sem er á því að leggja þennan veg. Mér er mjög ljós sú þörf. En þó að hún sé augljós, má ekki loka augunum fyrir því, að ýmsar aðrar framkvæmdir eru mjög brýnar og aðkallandi, og þess vegna er nauðsynlegt, að þær séu einnig teknar til athugunar, um leið og þetta mál er leitt til lykta. M.ö.o., það, sem mér finnst aðalatriðið í þessu máli, er það, að þetta sé ekki tekið úr þeirri málefnaheild, sem fjárhagsráði er ætlað að raða niður. Fjárhagsráði er ætlað að gera till. og jafnvel ákvarðanir um, í hvaða röð skuli framkvæma. Ég teldi það mjög leitt, ef einhver þm., sem hefði áhuga fyrir málinu, vildi ekki eiga það undir úrskurði fjárhagsráðs af einhverjum ástæðum, heldur bera það fram á Alþ. og freista þess að fá það sett í einhverja röð, og þá helzt fram fyrir öll önnur mál út af fyrir sig og án tillits til neins annars. Ég býst við, að ef ekki væri um að ræða síðasta dag þingsins, þá mundu margir þm., af því að fjárhagsráð væri að taka til starfa og hér væri verið að ákveða 20 millj. kr. utan þess, freistast til að koma sínum áhugamálum fram á svipaðan hátt og hér er gert og tryggja þannig, að þau verði tekin úr þeim heildaráætlunum, sem fjárhagsráði er ætlað að gera. Það er nú svo, að það er ekki tími til að bera fram neinar óskir í þessa átt, og það verður þess vegna ekki gert af öðrum. En þess vegna þætti mér líka eðlilegt, að þessir þm., sem að þessu máli standa, létu það ekki koma til úrskurðar hér og sætu alveg við sama borð og aðrir þm., sem líka eiga hagsmuna að gæta og sjá um, að ýmis mannvirki komi í framkvæmd, sem þeim hefur sérstaklega verið falið að sjá um. Og þetta vil ég segja alveg sérstaklega vegna þess, að í l. sjálfum um Austurveg, sem samþ. voru í fyrra, er beinlínis tímatakmörkun, sem ríkisstj. hlýtur að fara eftir og öll framkvæmd verksins hlýtur að miðast við, þ.e., að verkinu verði lokið á ? árum. (Einhver Ráðherra á sjálfur töluna 7.) Ég breytti 6 í ?, því að ég taldi það betra. En hvað sem því líður, ætti að felast talsverð trygging í því fyrir flm., að tekið er fram í þessum l., gagnstætt því, sem er í öðrum, hversu lengi má draga að ljúka verkinu. Þess vegna er enn síður ástæða til þess en ef um væri að ræða veg samkv. vegalögum, því að eins og flm. vita, er ekki í vegal. um nokkurn einasta veg ákveðið, hve langan tíma skuli taka að leggja hann. Það er alveg eftir því, hve mikið er veitt til hans á hverjum tíma. En samkv. þessu er beinlínis gert að skyldu að leggja hann á vissum tíma, og skal þá taka lán, ef það fæst. En það eru erfiðleikar á að fá þessi lán nú, og þess vegna getur verið, að það valdi einhverjum örðugleikum. Annars vil ég upplýsa flm. till. um, að Landsbankanum hefur verið skrifað sérstaklega um þetta og óskað eftir, að bankinn tæki til greina ákvæði l. um, að hann lánaði 20 millj. kr., eins og gert var ráð fyrir.
Þessi vegalagning öll frá Reykjavík og austur að Selfossi á að verða með nokkuð öðru sniði en almennt gerist hér. Það er ætlazt til, að þessi vegur verði steinsteyptur, byggður sem næst því að vera „moderne“ bílvegur, eða nálgist það mjög, þannig að það verði hægt að láta flutninga fara fram á þessum vegi með lágum flutningskostnaði, og miklu lægri en áður, með því að nota stærri vagna, og einnig verður minna slit á þeim, og allt þetta er mjög nauðsynlegt, því að flutningaþörfin er orðin ákaflega mikil á þessu svæði. Ég hef ekki tölur í höfðinu um hvenær flutningaþörfin hefur orðið mest, en hún er miklu meiri en gert var ráð fyrir fyrir örfáum árum. Það er nauðsynlegt, að eitthvað verði gert í málinu til að auka samgöngur milli staðánna, en ég hef óskað eftir, að það verði tekið sem liður í hinu almenna samgöngukerfi landsins, en ekki tekið úr á þann hátt, sem þáltill. gerir hér ráð fyrir. En ekkert í l. bendir á, að framkvæmd eigi að hefja í ár, en ekki fresta til næsta áts. Það er lagt til í þáltill., að í ár verði unnið fyrir um 2,2 millj. kr. Ég veit ekki nákvæmlega, hvað marga menn þarf að hafa í vinnu til að ljúka við helming verksins í ár, eða til að vinna fyrir þess upphæð. Ég held þó, að til þess mundi þurfa a.m.k. 200–300 menn. Og það er mál út af fyrir sig,— hvort það er rétt þá mánuði, sem framleiðsluatvinnuvegir landsmanna þarfnast vinnuaflsins hvað mest, að taka svona stóran hóp og senda upp á Hellisheiði til vegagerðar samtímis því, sem verið er að flytja útlendinga inn á skipin okkar. Vegamálastjóri hefur og upplýst, að ekki takist að ljúka þeim verkum, sem verið er að gera, sökum skorts á vinnuafli.
Það verða ekki eingöngu fjárframlögin, sem koma til athugunar, heldur líka að taka 200–300 menn til þessa starfa frá framleiðslustörfunum og ýmsum aðkallandi, opinberum verkum til þess að ráðast í þessa framkvæmd. Ég fyrir mitt leyti vil fá að athuga það, áður en þessi ráðstöfun yrði gerð, hvort ekki væri heppilegra að nota verk eins og þetta, þegar minna væri um atvinnu en nú og verkefni vantaði fyrir vinnukraftinn. Ég er ekki að spá neinu um, að til þess komi, en vissulega væri gott, ef til þess kæmi, að hafa stórt verk eins og þetta til að starfsetja vinnuaflið, ef á þyrfti að halda. Það er sú leið, sem farin hefur verið í nágrannalöndum okkar, að þegar einkafyrirtæki og atvinnuvegir hafa verið í blóma og þurft vinnuaflið, þá hefur það opinbera dregið sig í hlé, en á hinn bóginn, þegar framleiðslustörfin hafa dregizt saman, svo að verkefni hafa ekki verið næg, þá hefur það komið með sín verkefni og jafnað það misvægi.
Ég hélt, að það væri betra, ef hægt væri að koma við hjá okkur einhverju svipuðu formi. Við eigum hér umsókn um lán í Landsbankanum til opinberra framkvæmda upp á nokkuð mikið á annað hundrað millj. kr. Ég teldi það ákaflega vel farið, ef hægt væri að haga þessum framkvæmdum þannig, að eitthvað af þeim væri gert á þeim tíma, þegar beinlínis er þörf fyrir atvinnu. Ég veit náttúrlega ekki, hvort nokkuð af þessum framkvæmdum mætti bíða með góðu móti, en um bið á þeim framkvæmdum, sem hér er um að ræða, gildir alveg ákveðið tímatakmark, og það orkar alltaf tvímælis, hvað hart skuli fara í þessar sakir, en ég er ekki í vafa um, að þjóðfélagslega er þetta betra fyrirkomulag, ef hægt er að koma þessum framkvæmdum einmitt á þann tíma, þegar einkafyrirtæki draga sig til baka.
Ég sem sagt tel, að öll rök mæli gegn því að binda framkvæmd þessa verks meira en gert er í l., og ég tel, að það mætti vel fara svo, að það kæmi kannske, áður en langt um líður, til þess, að menn nagi sig í handarbökin fyrir að hafa farið út í þessa framkvæmd á þeim tíma, þegar þess var engin þörf vegna atvinnuvega landsmanna, í stað þess að eiga sér þessa vinnu til góða, þegar á henni þyrfti að halda. Ég þarf svo ekki að lengja umr. um þetta frekar.