14.11.1946
Neðri deild: 17. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í D-deild Alþingistíðinda. (5237)
316. mál, framleiðslutæki þjóðarinnar
Fjmrh. (Pétur Magnússon):
Ég get verið sammála hv. þm. V-Húnv. um það, að það sé gott að fá þessar skýrslur, þó að ég ætli hins vegar, að ekki sé mikið á þeim að byggja, eins og von hefur verið um hjá sumum. Það er gert ráð fyrir, að skýrslurnar byggist á skattaframtölum, og það hefur komið fram hér á Alþ. oft og er víst nokkuð almenn skoðun, að skattaframtöl séu ekki sem áreiðanlegastar skýrslur, og því miður er of mikið satt í því, þótt ekki sé hægt að ráða bót á því að svo komnu. En ég er sammála hv. þm. um það, að það sé vinningur að afla slíkra skýrslna. Ég véfengi ekki, að hagstofustjóri taldi ekki mikil vandkvæði á að gera þessa skýrslu, en hann hefur þá væntanlega, þegar hann ræddi við n., verið bjartsýnni að þessu leyti en reynzt hefur síðar koma í ljós, að hann hafi mátt vera. Vandkvæðin hafa komið fram, þegar átti að fara að vinna að þessu starfi. Eins og kunnugt er, er hagstofustjóri ekki heima nú, og því er ekki tækifæri til þess að ræða við hann sjálfan um þetta, en hann hefði væntanlega getað gefið skýrslu um, hverjir annmarkar eru á þessu verki. Ég efast ekki um, að hagstofan vilji koma þessu í framkvæmd og hafa skýrslur svo fullkomnar og réttar sem efni standa til. Og að sjálfsögðu munu Alþ. verða gerðar kunnar þessar skýrslur, jafnskjótt og þær liggja fyrir.