18.12.1946
Neðri deild: 40. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í D-deild Alþingistíðinda. (5241)

317. mál, útflutningur gjafaböggla

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég get verið stuttorður um þetta mál, þar sem þessari fyrirspurn hefur nú þegar verið svarað í verki með því, að viðskmrn. hefur gefið út reglugerð, er fullnægir þeim tilmælum og skoðunum, sem ég lét í ljós í grg. fyrir þessari fyrirspurn, að nauðsyn bæri til þess að gera ráðstafanir til þess að stemma stigu við því, að vörur, sem skortur væri á í landinu, væru fluttar út úr landinu í formi gjafaböggla.

Í sambandi við tölur í grg. fyrirspurnarinnar, sem hér er um að ræða, vil ég taka fram, að ég hef fengið nokkrar upplýsingar frá póst- og símamálastjóra um póstbögglasendingar, sem tilfærðar eru í grg. Við tölurnar í grg. hefur póst- og símamálastjóri þetta að athuga: „1) Tölurnar fyrir 1939 og 1944 ná yfir alla póstböggla frá Íslandi til umræddra landa þessi ár. 2) Tölurnar fyrir 1945 og 1946 ná aðeins yfir póstböggla senda frá Reykjavík til umræddra landa. Auk þess hafa pósthúsin á Akureyri, Siglufirði, Ísafirði og í Vestmannaeyjum afgreitt bögglapóst beint til Danmerkur, og má áætla hann ca. 20J0 böggla á árinu 1945 og ca. 3000 á árinu 1946.“ — Vil ég láta þetta koma hér fram.

Að öðru leyti langar mig til að segja örfá orð viðkomandi framkvæmd ákvæða reglugerðarinnar, sem viðskmrh. setti um útflutning gjafaböggla, þ.e.a.s. um skylduna til að sækja um útflutningsleyfi fyrir þeim. Ég tók fram í grg. minni, að ég teldi þörf á þessari reglugerð, fyrst og fremst vegna þess, að erlendir menn, sem stundað hafa hér vinnu, virtust hafa misnotað heimild um útflutning á varningi án leyfis og að með því móti kæmi fram nokkurt gjaldeyristap fyrir þjóðina. Hins vegar virðist ekki ástæða til að koma í veg fyrir það, þó að Íslendingar sendi Íslendingum, nánum ættingjum og vinum, sem erlendis dveljast, smágjafir, sem hafa ekki verulega þýðingu fyrir vöruforða landsmanna og erlendan gjaldeyri: Nú er sett um þetta reglugerð, eins og kunnugt er. En þessi reglugerð kom á þeim tíma, þegar nauðsyn virðist til bera að sýna nokkurt frjálslyndi í framkvæmd hennar. Og því er ekki að leyna, að þessi reglugerð mun hafa komið illa við ýmsa, sem höfðu áður haft þann sið að senda Íslendingum, sem dveljast erlendis, eða erlendum kunningjum og vinum vingjafir, en gátu það ekki að þessu sinni, vegna þessarar reglugerðar. Og vegna þess að ég vakti máls á þessu á sínum tíma, að þessi reglugerð yrði sett, vil ég láta í ljós þá skoðun, að óska þess, að þessi reglugerð verði framkvæmd með nokkru frjálslyndi, ef unnt er, án þess að vöruforða landsins sé stefnt í nokkra hættu, og ef það væri mögulegt án þess að það kæmi um of við gjaldeyrissjóðinn. — Hitt er auðvitað sjálfsagt, að hafa reglugerð um þetta efni, eins og sett var, og lýsi ég ánægju minni yfir því, að til þessarar ráðstöfunar skuli hafa verið gripið, og þakka ég hæstv. viðskmrh. fyrir afskipti hans af málinu.