18.12.1946
Neðri deild: 40. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í D-deild Alþingistíðinda. (5242)
317. mál, útflutningur gjafaböggla
Fjmrh. (Pétur Magnússon):
Herra forseti. Frá árinu 1937 hefur verið höfð sú tilhögun á um póstflutning, að heimilt hefur verið að senda til útlanda gjafaböggla, allt að 50 kr. virði, án útflutningsleyfis og þá án tollskoðunar, en svo seinna, vegna breyt. á gildi peninga, sem miðað var við í þessu efni, hækkuð upp í 300 kr.
Það má segja, að fram til yfirstandandi árs hafi þess ekki orðið vart, að þetta hafi verið misnotað á nokkurn hátt, og hefur þess vegna ekki gefizt tilefni til þess að setja skorður við misnotkun á þessum ákvæðum. En þegar kom fram á síðari hluta a l. sumars, varð þess vart, að póstsendingar til útlanda voru orðnar óeðlilega miklar, einkum til Danmerkur. Þetta leiddi til þess, að tollstjóra var falið að athuga þetta mál, ég held, að það hafi verið í síðari hluta október s.l. Kom þá í ljós við þá athugun, að þessar sendingar fóru sívaxandi, og þar að auki var að sjálfsögðu nokkuð varhugavert að treysta því, að bögglarnir geymdu ekki meira verðmæti raunverulega en upp var gefið. Það er vafalaust alveg rétt, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði, að ástæður til þessa liggja fyrst og fremst í því, að erlendir menn, sem hér dveljast og leita sér atvinnu hér, hafa ekki fengið yfirfærsluleyfi fyrir svo miklu fé, sem þeir háfa getað lagt fyrir og viljað koma heim til ættingja sinna eða þeirra, sem þeir eiga fyrir að sjá erlendis, og hafa þess vegna gripið til þess ráðs að kaupa í búðum ýmiss konar varning, aðallega tóbak og ýmiss konar álnavöru, til þess að senda heim í land sitt til þess að yfirfæra á þann hátt fé, sem þeir hafa ekki fengið yfirfærsluleyfi fyrir. Ég vil ekki telja, að hér sé um gjaldeyristap fyrir þjóðina að ræða, því að þess verða menn að gæta, að ef við á annað borð leitum eftir erlendum mönnum til að vinna hér, verðum við einhvern tíma að yfirfæra kaup þeirra endanlega. Og því verður ekki neitað, að frá gjaldeyrissjónarmiði komumst við frekar létt frá þessum yfirfærslum með því að leyfa þeim að kaupa vörur, sem eru jafnhátt tollaðar eins og t.d. tóbak. Og raunar gildir það um flestar þær vörur, sem sendar hafa verið á þennan hátt, sem hér hefur verið um rætt, að tiltölulega lítinn gjaldeyri þarf til þess að kaupa þær frá útlöndum, því að það eru tollháar vörur, í samanburði við verð það, sem þær eru seldar á hér. Hins vegar er skortur hér t.d. á vefnaðarvörum, og af þeim ástæðum áleit ríkisstj. óhjákvæmilegt að grípa hér í tauma, og leiddi það til þess, að reglugerð var sett um þetta í þessum mánuði, sem bannar útflutning á öllum vörum, nema leyfi ráðuneytisins komi til.
Hv. 4. þm. Reykv. gat þess, að þær útflutningsreglur, sem settar hafa verið í þessum efnum, mundu vera nokkuð strangar, og skal ég játa, að ég býst við, að helzt til langt hafi þarna verið gengið, og hef ég tekið málið til athugunar, hvort ekki sé hægt að rýmka reglurnar að einhverju leyti. Einnig mun það verða tekið til athugunar, sérstaklega hvað tóbak snertir, hvort ekki verði hægt að auka skammtinn frá því, sem hann er nú. Að öðru leyti er málið komið í höfn, og hef ég því ekkert frekar um það að segja.