22.03.1947
Sameinað þing: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í B-deild Alþingistíðinda. (529)

12. mál, fjárlög 1947

Arnfinnur Jónsson:

Herra forseti. Í miðnæturræðu hv. form. fjvn. var einn kafli fluttur af meiri gorgeir en tíðkast, og er það illa sæmandi form. n. að tala svo, en það skiptir miklu, ef rangfært er og snúið út úr því, sem menn flytja í ræðum sínum. Ég verð því að snúa máli mínu hér að nokkru til þessa hv. þm.

Í fyrsta lagi. Hið eina, sem hv. þm. fór rétt með úr ræðu minni var, að ég hafði ekki getið um, hvort Eskifjarðarvegur væri snjóþungur eða ekki. Eins er með þann veg sem aðra rudda vegi, að hann fyllist snjó og í leysingum rennur mikið úr veginum, og verður hann þá ófær á mjög skömmum tíma. Ef þessar upplýsingar skipta ekki máli. þá er auðvelt fyrir hv. þm. Barð. að fá nánari upplýsingar varðandi þetta með því að hafa tal af kunnugum mönnum þar eystra. Hv. þm. fullyrti, að nú lægju fyrir 300 þús. kr. til Oddsskarðsvegar, sem óunnið væri fyrir, og ég leyfi mér þá að endurtaka, að þá er meiri von um, að sá vegur flytjist nær, og styrkir það aðeins, að gera skuli veginn að fullu, eins og ég nefndi í fyrri ræðu minni.

Í öðru lagi er um að ræða brýr á tveimur ám í Skriðdal, sem hv. þm. vék að. Ég sagði þessar ár einhver hættulegustu vatnsföll á Austurlandi og mannskæðustu, en ekki hættulegustu vatnsföll landsins, eins og hv. þm. sneri út úr máli mínu. Það má vera, að Jökulsá á Dal hafi grandað fleiri manneskjum, en Skriðdalsárnar, en ég get getið þess hér, að bæði afi minn og 16 árum síðar systir mín fórust í þessum ám, og er það því von mín, að hér verði svo bætt úr málum, að Skriðdalsár verði brúaðar og verði ekki fleiri að fjörtjóni.

Ég sé nú, að hv. frsm. á hér tvær brtt. um tvær brýr í sínu kjördæmi. og til hvorrar brúar vill hann fá 75 þús. kr., en það er 30 þús. kr. minna en ég fer fram á til hinna tveggja brúa. Það má vera, að þessar ár í kjördæmi hv. þm. séu hættulegar, og vildi ég ekki stuðla að því, að þeim brúm yrði kippt til baka, en ég vildi, að hv. Alþ. tæki vel undir það að Geitdals- og Múlaár yrðu ekki fleiri mönnum að bana, með því að samþykkja till. mínar.

Í þriðja lagi talaði hv. frsm. langt mál um rafveitumál og hefur hv. þm. Siglf. svarað honum þar. Hv. þm. gat þess, að þessi mál yrðu tekin til nánari athugunar að nýju, og er gott eitt um það að segja, að það skuli vaka fyrir hv. fjvn. að taka þetta til endurskoðunar, en ekki spillti þótt þær 3 milljónir króna, sem við förum fram á, gætu bundið málið. og ef það yrði of há upphæð, þá má leiðrétta það við 3. umr. Hins vegar snýst hugur minn svo, að 3 millj. kr. reynist frekar of lágt, en of mikið.

Í fjórða lagi sagði frsm. fjvn., að styrkur til vísinda- og fræðimanna verði endurskoðaður til 3. umr., og gat hann þess, að það, sem nú tefði, væri, að ýmsir þessara fræði- og vísindamanna sætu á fullum launum og hefðu því fjárhagslega ekki þörf fyrir viðurkenningar af hálfu ríkisins. Þetta er engin afsökun hjá hv. þm. Hæsta fjárveiting til þessa mun nema um 1.500 kr., og er það nú ekki svo há upphæð, en hins vegar væri rétt, að þeir, sem mest eru þurfi, fengju hlutfallslega mest, en auk þess ber að sýna þeim mönnum viðurkenningu, sem vinna þessi störf hvað mest í frí tímum frá öðrum störfum, og sýna, að Alþ. kunni að meta vísinda- og fræðslustörf þessara manna.

Þá er það í fimmta lagi atriði í ræðu frsm., þar sem mér blöskraði alveg, hve þm. gat hallað réttu máli. Hann sagðist ekki fallast á, að 40 þús. kr. verði veittar til barnaverndarráðs í stað 20 þús. króna, en samkvæmt reikningum kostaði starf barnaverndarráðs 27 þús. krónur s.l. ár og nam það hálfum launum hjá barnaverndarráði á móti Reykjavíkurbæ. Þetta er augljós sjálfsblekking að ætla að færa þetta niður, því að starfsemi þessi verður ekki dregin saman, en frsm. fullyrti, að barnaverndarnefnd Reykjavikur heimtaði, að barnaverndarráð yrði lagt niður. Hv. þm. hafa heyrt, hvað ég hef áður sagt, en ég vil leyfa mér máli mínu til frekari staðfestingar að lesa hér kafla úr bréfi frá barnaverndarnefnd Reykjavíkur, þar sem hún mótmælir frv. því um barnavernd, sem komið er frá Ed. Með leyfi hæstv. forseta hljóðar bréf þetta svo: „Frv. til laga um vernd barna og ungmenna, sem nú liggur fyrir Alþ., var endurskoðað af barnaverndarnefnd Reykjavíkur s.l. haust. Gerði n. við það nokkrar brtt., sem flestar voru teknar til greina, eins og um getur í grg. frv.

Í Ed. komu fram nokkrar brtt. við frv., og voru flestar þeirra samþykktar. Það eð n. telur sumar þessar till. sízt til bóta vill hún taka eftirfarandi fram:

Við 16. gr. hefur verið gerð sú breyting, að á eftir orðunum „er heimilt“ kemur: ef tilefni gefst til að dómi barnaverndarráðs. — Það ætti öllum að vera ljóst, að til þess að geta rannsakað kærur um illa aðbúð eða meðferð barna verða barnaverndarnefndir að fara heim á viðkomandi heimili til þess að kynna sér allar aðstæður. Til þess þurfa n. vitanlega lagaheimild. Nú eiga barnaverndarnefndir að vera kosnar þannig, að nm. beri sem bezt skyn á þau mál, sem n. þurfa að fjalla um, sbr. 6. gr. frv. Það virðist því gæta einkennilegrar tortryggni hjá flm. till., er hann treystir ekki barnaverndarnefndum til þess að hafa umboð til að fara inn á heimili án leyfis barnaverndarráðs. En burtséð frá þessu einkennilega vantrausti virðist næsta óskiljanlegt, hvernig hann hugsar sér framkvæmdir í störfum barnaverndarnefnda samkv. þessari gr. Í hvert skipti, er kæra berst til barnaverndarnefnda úti á landi eða þær álfta þörf á athugun á aðbúð barns eða meðferð, verða þær að leita til barnaverndarráðs um leyfi til þess að fara heim á heimilið. Og ekki getur barnaverndarráð gefið slíkt leyfi án undangenginnar athugunar, og verður því sennilega að senda fulltrúa sinn í staðinn til þess að skera úr um, hvort barnaverndarnefnd væri heimilt að fara heim á heimilið. Þessu má líkja við það, að lögreglu væri ekki heimilt að fara heim á heimill, nema hafa í hvert sinn persónulegt leyfi lögreglustjóra eða sakadómara. Nú hefur það komið fyrir, að barnaverndarnefnd hefur orðið að taka barn fyrirvaralaust af heimili til þess að vernda það fyrir andlegum og líkamlegum meiðingum og jafnvel limlestingum. Verði umrædd brtt. að lögum, verður barnaverndarnefnd að bíða samþykkis barnaverndarráðs til framkvæmda, þótt hún viti, að slíkt getur haft þær afleiðingar fyrir viðkomandi barn, að það bíði þess aldrei bætur. Þá virðist ekki vera ljóst, hvers vegna barnaverndarráð á að veita umrædda heimild í hvert sinn, eða hvers vegna barnaverndarnefndir eru taldar svo mjög dómbærari á þessi mál, heldur en barnaverndarráð. Hver sem er getur kært barnaverndarnefnd fyrir barnaverndarráði, sbr. 54. gr. frv., ef honum finnst hann órétti beittur af barnaverndarnefnd.“

Ég legg nú þetta undir endanlegan dóm þm., hvort hér er lagt til að leggja barnaverndarráð niður.

Hér er einnig bréf um sama efni frá barnaverndarráði sjálfu, og leyfi ég mér að lesa það bréf upp einnig, með leyfi hæstv. forseta: „Barnaverndarráð hefur á fundi sínum í dag athugað frv. til laga um barnavernd og breytingar við það, sem samþykktar hafa verið í efri deild Alþingis. Ráðið féllst á breytingar þessar, nema þá breytinguna á 16. gr. frv. Leggur ráðið áherzlu á. að grein þessi sé orðuð á þann veg, sem hún var upphaflega í frv. Ef breyt. þessi næði fram að ganga, mundi hjálpar- og eftirlitsstarf barnaverndarnefnda tefjast og torveldast mjög, þar sem þær þyrftu í hvert sinn að fá leyfi barnaverndarráðs til þess að fara á heimili eða hæli til rannsóknar á högum barns og ungmennis. Yrði slíkt ógerlegt í framkvæmd og mundi auka mjög óþarfa og skaðsamlega skriffinnsku. Með engri þjóð mun þessi háttur vera hafður á framkvæmd barnaverndarmála.“

Svo hljóðar þetta bréf, og svo segist frsm. ráða af þessu, að barnaverndarnefnd Reykjavíkur leggi til, að barnaverndarráð verði lagt niður. Þetta er hrein vitleysa hjá hv. þm. Hér er ekki stafur um það.

Í sjötta lagi er eitt atriði enn varðandi ræðu þm. Barð., þar sem hann dylgjaði mjög ómaklega í garð látins skólamanns, þótt hann nefndi hann ekki með nafni. En þessi maður var Sigurður Thorlacius. Frsm. lét þau orð falla varðandi hinar gagnmerku rannsóknir Sigurðar heitins á þroskastigi íslenzkra barna, að eftirmaður hans í því starfi. dr. Matthías Jónasson, hefði orðið að vinna allt hans verk upp að nýju. Þetta er alla staði alrangt og mjög ómakleg ummæli. Ég hef átt tal við dr. Matthías varðandi þetta og fengið afrit að skýrslu hans um þessi störf í menntmrn. Og ég er til knúinn að reyna enn á þolinmæði hæstv. forseta og hv. þdm. og lesa hér upp kafla úr þessari skýrslu. Skýrslan hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Starfið var hafið í sept. 1945. Undirritaður veitti móttöku nokkrum gögnum um rannsóknir á greindarprófum, sem Sigurður heitinn Thorlacius hafði haft á hendi. Af tveim ástæðum þótti rétt að snúa sér fyrst að þessu:

1. Til þess að nota þá reynslu, sem þegar hafði fengizt í rannsóknarstarfi Sigurðar heitins.

2. Til þess að fullnægja brýnni þörf barnaskólanna um hagnýtt kerfi til greindarprófunar. Umrædd gögn eru skýrslur yfir greindarpróf á ca. 700 börnum, prófuð eftir tveim fransk-enskum kerfum, nálægt 350 börn eftir hvoru. Kerfin voru notuð óbreytt í íslenzkri þýðingu. Vann undirritaður að því síðustu mánuði ársins 1945 að fara gegnum söfn Sigurðar, meta prófin, taka niðurstöðurnar upp á töflur og línurit og draga sínar ályktanir af þeim um framhald verksins. Sýnist honum rétt að byrja verkið að nýju á annan hátt, þannig að prófverkefnin væru frá byrjun samin fyrir íslenzk börn og miðuð við íslenzka staðhætti.

Tók undirritaður þá að vinna að samningu þessa nýja kerfis. Er þar stuðzt við hið bezta í erlendum kerfum, aðallega við hið nýja kerfi ameríska sálfræðingsins L. M. Terman. Er hér að öllu leyti byggt á reynslugrundvelli. Prófin sjálf eru prófuð á börnunum og þeim breytt til samræmis við það meðalgreindarstig, sem kemur í ljós. Rannsóknir þessar eru tímafrekar og krefjast mikillar nákvæmni. Má geta þess, að hjá Terman og samverkamönnum hans (en hann hafði 9 sálfræðinga í þjónustu sinni, er hann samdi kerfi sitt) tók prófið með hvert barn 3 klukkustundir. Hefur undirritaður valið einfaldara kerfi. enda treysti hann sér ekki til að vinna svo yfirgripsmikið starf, meðan óvíst var um fjárhag rannsóknanna og aðstoð við verkið. Er þó gert ráð fyrir, að auka megi við „gagnprófunarkerfi“, þegar vill. Alls eru samin prófverkefni fyrir árin 2–11, eða 117 verkefni, mörg þeirra innbyrðis sundurliðuð. Hafa allir þessir aldursflokkar verið prófaðir nokkuð, í allt á 700 börnum. Allar skýrslur eru reiknaðar út jafnóðum og gerðar töflur eða línurit yfir niðurstöðurnar.“

Hér læt ég staðar numið í skýrslunni, en út af þessu fékk hv. þm. þá flugu, að dr. Matthías hefði unnið upp allt starf Sigurðar Thorlacius. Ef hv. þm. vill svo fá nánari upplýsingar hér um, þá getur hann fengið upplýsingar í skýrslu dr. Matthíasar í menntmrn. um störf Sigurðar, sem Matthias segist vera að vinna úr.

Sigurður heitinn Thorlacius ætlaði að vinna úr þessum úrlausnum, en vannst ekki tími til þess, og hefur dr. Matthías Jónasson verið að vinna úr þessum úrlausnum og fara í gegnum þessi söfn Sigurðar heitins, meta prófin og taka niðurstöður og gera línurit til þess að fá heildarniðurstöður til þess síðar meir að „byrja upp“, eins og hv. þm. kallar það. En hvað skyldi það annars vera, sem hv. þm. Barð. kallar að byrja upp?

Þetta er í fyrsta sinn, sem gerð er tilraun til þess að finna aðferð, sem sérstaklega hentar hér á Íslandi. Hér eru ekki til nema þýðingar úr erlendum bókum, bæði enskum og frönskum, svo sem enska kerfið, sem dr. Símon Jóh. Ágústsson þýddi, og ameríska prófið, sem Sigurður heitinn þýddi sjálfur. Dr. Matthíasi Jónassyni sýndist rétt að taka þetta á annan hátt, þannig að prófverkefnin væru frá byrjun samin fyrir íslenzk börn og miðuð við íslenzka staðhætti. Það er auðséð, að bæði prófin, sem notuð hafa verið, henta ekki eins vel fyrir íslenzk börn og þar sem þau eru upprunnin, t.d. eins og hið nýja kerfi ameríska sálfræðingsins L. M. Terman, sem mun henta vel fyrir amerísk börn. Og það, sem Sigurður heitinn var sjálfur að reyna, var að ganga úr skugga um, hvernig íslenzk börn svöruðu prófunum og hvort prófið hentaði betur hér og hvað það er í þessum prófum, öðru eða báðum, sem bezt mundi henta fyrir íslenzk börn.

Það liggur í augum uppl. að svona próf, sem eingöngu hafa verið reynd í löndum, þar sem staðhættir eru mjög ólíkir því, sem hér er, að þá hljóti að þurfa að vera munur á verkefnum og hvernig prófdæmin eru lögð fyrir börnin. Það getur átt við í einu landi, sem ekki reynist jafngott í öðru, enda kom það í ljós. Það var Sigurður heitinn sjálfur búinn að sjá án þess að vera búinn að vinna úr þessum prófum, og það sá dr. Matthías Jónasson einnig vel, og þess vegna tók hann upp hið nýja starf, sem hv. þm. Barð. kallar að vinna upp, að reyna að finna verkefni í staðinn fyrir þau, sem komið hafði í ljós, að ekki hentuðu íslenzkum börnum. Og það er þetta verk, sem nú er verið að vinna, og það tekur áreiðanlega ekki minna en 2–3 ár, og mér dettur ekki í hug að ætla, að það taki skemmri tíma, þótt dr. Matthías fengi aðstoðarmann, sem hann nauðsynlega þarf og hér er farið fram á, því að það tekur oft upp í 3 tíma að vinna að þessu verkefni fyrir hvert barn, og af því geta menn hugsað sér, hvaða tíma það tekur að prófa þannig 700 börn, sem Sigurður heitinn var búinn að gera og dr. Matthías er búinn að gera. Og svo er eftir að meta og vega árangurinn af þessu til þess að komast að niðurstöðu um prófið.

Ég var svona langorður um þetta, af því að mig furðar svo sérstaklega á því, að hv. þm. Barð. skyldi leyfa sér að hafa þessi orð eftir dr. Matthíasi Jónassyni í þessu sambandi. Mér fannst þau óskiljanleg eftir allt það, sem ég hef heyrt dr. Matthías tala um verk Sigurðar heitins, og eins og ég hef heyrt hann meta þau mikils.