22.03.1947
Sameinað þing: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 458 í B-deild Alþingistíðinda. (537)
12. mál, fjárlög 1947
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Það er í raun og veru ekki ástæða fyrir mig til þess að vera langorður, þó að hér hafi verið haldin löng ræða og víða verið komið við. Annars verð ég að segja það, að mér finnst vera talsvert mikill munur á því að heyra hv. form. fjvn. og frsm. tala um þessi mál, og þá sérstaklega um fjárlagafrv. og brtt. við það og afgreiðslu á því frá hv. fjvn., annars vegar á þeim fundum, a.m.k. sem ég var til kvaddur til að vera á með fjvn. til að ræða þessi mál, og hins vegar þeim skoðunum og fullyrðingum, sem nú koma fram hjá hv. frsm. fjvn., og þeim stóryrðum, sem rignir nú yfir mig og aðra frá þessum hv. þm., frsm. fjvn., að því er mig snertir fyrir það eiginlega, að ég skuli láta í ljós nokkra skoðun á þessu máli. Þegar við sátum saman í fjvn., þessi hv. þm. og ég, og rætt var um hina stóru útgjaldaliði og þær till. um gjaldahækkanir, sem fyrir lágu og verið var að reyna að sneiða hjá eða höggva í, þá virtist mér yfir höfuð ekki ákaflega mikil bjartsýni ríkjandi í fjvn. Þá voru allir — og að ég álít af eðlilegum ástæðum — heldur alvörugefnir og þóttust sjá fram á mikil vandkvæði á því að fá þá afgreiðslu á fjárlagafrv., að verjandi væri fyrir hæstv. Alþ. að skilja þannig við það sem lög. Þetta fannst mér yfir höfuð vera sá tónn, sem ríkti í fjvn. á þeim þó nokkuð mörgu fundum, sem ég sat með fjvn., stundum ásamt öðrum ráðh. En hér kveður nú talsvert við annan tón hjá hv. frsm. n., því að hér eru menn af honum flokkaðir í stórhuga og bjartsýna menn annars vegar og hins vegar svartsýna menn, sem eiginlega sé ekki takandi mark á o.s.frv.
Hvað er það svo, sem ég lagði til þessara mála, þegar ég talaði hér í kvöld? Ég gerðist svo djarfur að benda á, að þessi stórstiga hækkun á ríkisútgjöldum, sem m.a. stafaði af margvíslegum l., sem samþ. hafa verið á síðustu árum, væri orðin okkur ofvaxin til þess að mæta henni. Ég benti á, að það færi að verða næsta erfitt og mundi núna verða alveg nóg að færast í fang að finna tekjur til þess að mæta þessum útgjöldum. Og hvað var það svo annað, sem ég sagði? Ég sagði, að verðbólgan yfir höfuð væri orðin þess valdandi,. að víð yrðum að heimta stórum hærra verð fyrir útflutningsafurðir okkar, en keppinautar okkar um markaðinn fyrir þær vörur. Og ég dró af því þær ályktanir, að eftir minni hyggju gæti það ekki gengið til frambúðar og að hér yrði að breyta um stefnu, innan þings og utan, ef ekki ætti verr að fara. Þetta er það, sem að dómi hv. form. og frsm. fjvn. er alveg óleyfileg svartsýni og í algerðri mótsögn, að hans dómi, við þann stórhug og þá bjartsýni, sem ríkir í hv. fjvn. — Það kann að vera stundum nokkuð skammt öfganna á milli. En ég er ákaflega hræddur um það, að hv. frsm. fjvn. hafi hér talað allmjög á annan veg, en þau orð voru, sem hann lét falla utan funda í fjvn. og á þeim fundum meðan fjárlagafrv. var til meðferðar í fjvn. Ég varð satt að segja ekki var við annað þá, en að þessi hv. þm. líti á þetta svipuðum augum og ég hef hér sagt, þannig að við værum komnir á allt af mikinn hættustig í þessum efnum. Það getur vel verið, að ég hafi misskilið þennan hv. þm. og að hann hafi þá verið og sé enn þeirrar skoðunar, að það sé — eins og sagt er á götunni — „allt í lagi“, hversu mörgum tugum eða hundruðum milljóna sem kingt er niður á útgjaldahlið fjári., sem verður svo að finna mótvigt á móti með sköttum og tollum og öðrum kröfum ríkissjóði til handa.
Ég benti á, að ef löggjöfin er ákveðin svo, að hún leggur þjóðinni allt of þungar skyldur á herðar um tekjuöflun til ríkissjóðs, svo að til vandræða horfir, þá er ekki nema einn vegur til að bjarga því við, að lagfæra þá löggjöf. Hv. frsm. fjvn. fer hér nokkuð fljótt yfir sögu, því að hann fær út úr þessum orðum mínum það, að ég vilji helzt afnema heilan hóp af lögum. Það er kannske nokkur munur á því, hvort menn vilja afnema lög, eða hins vegar, hvort þeir vilja breyta þeim og færa þau í hagkvæmara horf, eftir ástæðum.
Annars skal ég ekki þreyta kappræður við hv. þm. Barð. út af þessu. En ég vil frábiðja mig því, að hafa verið með nokkrar ásakanir á fyrrv. hæstv. ríkisstj., ef hann hefur átt þar við mig. En það var ekki gott að greina, eftir orðum þessa hv. þm., hvort hann átti þar við mig. Ég gaf hér meira að segja upplýsingar, byggðar á staðfestum tölum frá ríkisstj., til þess að sýna, að þessi skortur á fé, sem nú er til staðar í ríkissjóði, væri til kominn af eðlilegum ástæðum, af því að það hefði verið greitt úr ríkissjóði til ýmissa fyrirtækja, sem búið hefði verið að heimila að taka lán til, en hefði ekki verið enn gert. Það voru engar ásakanir í því af minni hálfu á fyrrv. hæstv. ríkisstj., þótt ég gæfi þessa skýrslu, heldur var ég blátt áfram að skýra þetta atriði.
Ég vil benda á til að sýna, hvað hv. frsm. fjvn. tekur sterk orð sér í munn, að hann minntist hér á eina löggjöf og sagði um hana, að hvaða byrði sem lögð væri á ríkissjóðinn til þess að framkvæma þau l., væri sjálfsagt að láta þau standa óbreytt. Svona fullyrðingar út í loftið sýna bezt, hvað það er ákaflega vægast sagt óyfirvegað, sem farið er með. Og þess hefur gætt fullmikið í þessum umr., að hv. frsm. fjvn. hafi fundið sig til knúðan, vegna mótmæla af hálfu annarra hv. þm., að fara um málin hvössum orðum.
Svo held ég, að óþarfi hafi verið að draga fyrrv. hæstv. ríkisstj. inn í þessar umr., eins og hér hefur verið gert. Ég sé ekki, að nauður hafi rekið til þess og að það sé ekki um það að ræða hér, hvað hún hefur gert, heldur það vandamál, sem þingið á nú við að stríða, að afgreiða fjárl. sómasamlega og að finna það, sem ég kallaði haldkvæma tekjustofna, til þess að vega upp á móti greiðslunum. Það er ekki frekar mál fyrrv. hæstv. ríkisstj. en mál þeirra, sem ekki voru og ekki eru í ríkisstj. Það er vandamál þingsins í heild. Og þetta vandamál, skilst mér, að við höfum allir verið til kvaddir til að leysa og að það sé það, sem á að ráða gerðum okkar og stefnu, að ráða til lykta þessu vandamáli í þetta sinn og með hliðsjón af framtíðinni, að svo miklu leyti sem unnt er og í okkar valdi stendur.
Loks skal ég segja nokkur orð í sambandi við áskorun, sem hv. þm. beindi til mín, um að ég gæfi yfirlýsingu í sambandi við þau skilyrði, sem ég setti fram í fjvn. á sínum tíma og hann þá virtist ekkert hafa við að athuga. Ég ætla ekki að setja nein ný skilyrði. En ég stend við þá hluti, sem ég hef sagt í sambandi við þetta. Úr því að þess var krafizt af mér, að ég segði til um það, hvað ég gæti samþ., að gengið yrði langt í fjvn. til breyt. á fjárlagafrv., þá sagði ég þetta, sem ég til tók í minni fyrri ræðu, að samþykki mitt í því efni yrði að vera að því tilskildu, að samkomulag yrði um öflun tekna á móti, og enn fremur að því tilskildu, að ríkar skorður yrðu við því settar, að ekki væri krafizt, að aðrar fjárveitingar yrðu af hendi greiddar, en eftir samþ. Alþ., hvernig sem viðhorfið væri. Og þetta er engin ný bóla, þó að fjmrh. setji þessi skilyrði. Og það hefur oft staðið á 22. gr. fjárl. ýmislega orðuð heimild fyrir ríkisstj. í því efni, til þess að hún geti verið viðbúin örðugleikum, sem fyrir kunna að koma. Þegar ég ræddi um þetta, var á fundi í fjvn. ekkert haft við þetta að athuga í sambandi við þessi fjárl.. og ég held, að öllum þar hafi þótt þetta eðlilegt ákvæði. Og margir aðrir en ég tóku undir það, að þetta síðastnefnda atriði yrði að vera vel skorðað.
Yfir höfuð álít ég, að með samþykkt á brtt. hv. fjvn. sé komið það langt á útgjaldabrautinni, að hér megi ekki vera um verulegar hækkanir á fjárlagafrv. aðrar að ræða, ef við eigum að geta staðið við það að afgreiða fjárlög rekstrarhallalaust. Kann að reynast fullerfitt að ná því marki, og því rétt, eins og ég sagði, að hér sé reynt að stinga við fótum, þó að hins vegar sé aldrei hægt að tiltaka að, að þessari eða hinni krónunni megi fara með útgjöldin og ekki lengra.