22.03.1947
Sameinað þing: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í B-deild Alþingistíðinda. (539)

12. mál, fjárlög 1947

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég skal vera stuttorður. Það, sem kom mér til að biðja um orðið hér, var ræða hv. 2. þm. Rang. Mér virtist hann vera undrandi yfir því, að það skyldu koma fram raddir frá okkur fjvnm. um það, að við teldum, að tekjuliðir fjárlagafrv. væru óvarlegar áætlaðir, en æskilegt væri. Og máli sínu til stuðnings vísaði hann til þess, að undir nál. fjvn. hefði verið skrifað fyrirvaralaust af nm. Þessi hv. þm. vissi það þó vel, að það voru a.m.k. þrír nm., sem tóku það fram, að þeir teldu vissa liði á tekjuhlið fjárlagafrv. óvarlegar áætlaða, en æskilegt væri. Þetta var ekki fyrst og fremst af því, að þeir óttuðust, að einstakir tekjuliðir kynnu að bila, frá því sem gert er ráð fyrir tekjum af þeim í frv. — þeir tóku þetta fram —, heldur bentu þeir á það, að þótt svo ekki yrði, væri a.m.k. hætt við, að þessir tekjuliðir mundu ekki reynast það miklu tekjuhærri en þeir voru áætlaðir, að vona mætti, að tekjurnar reyndust það mikið fram yfir áætlun, sem reynslan sýnir, að þyrfti að vera til þess að mæta útgjöldum, sem ekki væri fyrir séð á fjárlagafrv. —

Ég vildi að gefnu tilefni taka fram, að ég var einn af þeim mönnum, sem hafði þetta viðhorf í fjvn., þó að ekki yrði af því, að við létum það koma fram í nál.

Um þá bjartsýni, sem þessi sami hv. þm. lét í ljós um framtíðarhorfur bæði ríkissjóðs og þjóðarinnar, ætla ég ekki að fara að tala nú. Ég vil aðeins leyfa mér að vísa í því efni til ræðu hæstv. fjmrh. og þeirra varnaðarorða, sem hann lét á því sviði falla í sinni ræðu hér í dag.

Ég má varla hafa þetta öllu lengra. Það er nú orðið áliðið kvölds. En ég vil samt vona, að mér verði virt til vorkunnar, þótt ég hafi nokkuð hrifizt með af þessari snjöllu ræðu hv. þm. Barð., þegar jafnvel dauðir hlutir hafa tekið undir, eins og t.d. borðið fyrir framan þann hv. þm. Ég verð að taka undir það, sem hæstv. fjmrh. sagði nú, að ég í raun og veru kannast ekki við hv. þm. Barð. í ræðum sínum nú, hvorki sem form. fjvn. og ekki heldur sem frsm. n. á þann hátt, sem ég bjóst við, að hann kæmi fram sem frsm. fjvn. En hinu ber að játa, að ég hef áður heyrt til hans sem þm. Barð. í fjvn. þannig, sem minnir mig á hans framsöguræðu hér, m.a. þegar hann krafðist svona, um tíunda hluta af öllu vegafénu í sina sýslu.

Ég vil taka undir það, sem tveir hv. fjvnm. hafa tekið fram, að ég vil frábiðja mér alla bjartsýni í sambandi við þetta fjárlagafrv. Það játa ég, að það er kannske vanmáttartilfinning, sem ég hef fundið hjá mér í sambandi við afgreiðslu fjárlagafrv., sem maður finnur til, þegar maður ræður ekki við það verkefni, sem maður hefur við að glíma. Og ég skal einnig játa það, að ég varð heldur aldrei var við bjartsýni hjá hv. form. fjvn. í störfum hans í fjvn. Ég varð ekki var við, að það væri bjartsýni, þegar hann réttilega var að benda okkur á það í n. í umr., hversu illa horfði fyrir atvinnuvegunum nú og hvernig þessi eða hinn togarinn hefði selt og hversu þessi og þessi togarinn væri búinn að tapa mörgum þúsundum á hverjum tíma. Og það var engin sérstök bjartsýni, sem mótaði starf hans þá í n. Mér fannst hann sem nm. í fjvn. vilja taka málin eins og nauðsyn krafðist. — Um stórhugann er sama að segja. Það er raunalegt að þurfa að játa, að þessi stórhugur kom a.m.k. ekki fram í fjárlagafrv. Og hann kom heldur ekki fram í fjárveitingartill. fjvn., lengi fram eftir vetrinum, hvorki um skólamál, brúamál, flugmál eða önnur mál, sem aðkallandi þörf er að leysa. Ég játa, að fjvn. hafði að lokum aðstöðu til þess að leggja til, að meira væri veitt til þessara mála sumra, en til stóð um tíma, þannig að betur rættist úr, en á horfðist.

Mér skildist hv. frsm. vera að reyna að sanna í þessari síðustu ræðu sinni bjartsýni sína og fjvn. með því að nefna ýmsar þær brtt., sem hún kemur fram með, og tek ég til dæmis m.a. 90 þús. kr. til viðgerðar Hólakirkju. Ég get ekki kallað það bjartsýni, þó að ég vilji ekki bera á móti þeim rökum, sem þessi hv. þm. færði fram máli sínu til sönnunar, að fyrst kirkjan hefði staðið þarna síðan á 17. öld, þá hefði hún ekki hlaupið burt, þó að ekki væri veitt fé til hennar nú. Það er rétt, hún hefði ekkert hlaupið. — Alveg eins skal ég minna á það, að það er kannske ekki hægt að bera á móti því, að það séu rök, sem fram kom í svari hans við fjárbeiðni til Menntaskólans á Akureyri. sem þessi hv. þm. ályktaði, er bent var á, að það hús, sem um var að ræða að byggja upp, væri timburhús og því í eldhættu og þar byggju margir menn, sem væru í hættu, ef eldur kæmi þar upp. Þá sagði hv. form. fjvn., að það væri ekki mikil ástæða til að gera mikið úr þessu, þar sem hús þetta hefði verið byggt um aldamót og væri óbrunnið enn. Þetta eru náttúrlega rök í lagi! — En það eru bara ekki rök í sambandi við það, sem um er að ræða hér, því að treg hafa verið bjartsýnin og stórhugurinn hjá fjvn. í vetur. Það stendur og varla til, að fjárlagafrv. hafi borið með sér merki þessara eiginda, þegar það kom í hendur fjvn., þegar fyrrv. hæstv. fjmrh. virtist ekki hafa treyst sér til þess að horfast í augu við ýmsar staðreyndir, sem fyrirsjáanlegt var, að horfast þyrfti í augu við og taka til greina. Gilti það um framlag til dýrtíðarráðstafana og margt og margt annað.

Þetta var sem sagt allt á sömu bókina lært. Og ég sé ekki, að við í fjvn. þurfum sérstaklega að hrósa okkur neitt í þessu sambandi, heldur miklu fremur að hryggjast yfir því að þurfa að leggja fjárlagafrv. fram fyrir Alþ. eins og við höfum neyðzt til að gera. Og það væri ástæða til að fara fleiri orðum um það. En ég skal samkv. beiðni hæstv. forseta um, að menn stytti fremur mál sitt, láta við þetta sitja að sinni.