23.04.1947
Sameinað þing: 45. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (563)
12. mál, fjárlög 1947
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Út af fyrirspurn hv. þm. Ísaf. varðandi framkvæmd á samningi. sem gerður hafði verið 1945 milli ríkisstj. og aðila á Vestfjörðum um byggingu eða öflun björgunarskútu fyrir Vestfirði, og í sambandi við það varðandi þær upplýsingar hv. þm., að andvirði þeirra varðskipa þriggja, sem áttu að verða, sem keypt voru hingað til landsins og síðan send aftur til Englands, og meðferð þessa andvirðis, vil ég segja það, að þessir peningar, sem hv. þm. upplýsir, að muni vera nærri ein millj. kr., tilheyra náttúrlega varðgæzlunni við landið. Og ég tel sennilegt og sanngjarnt, að þeim verði varið til þess að ná því upprunalega marki, sem sett var, þegar skipin voru keypt, eftir því sem þessi fjárhæð kann að hrökkva til, og haldið að því sama verkefni og þá vitanlega tekið tillit til þeirra skuldbindinga, sem fyrir liggja af hálfu ríkisvaldsins gagnvart Vestfjörðum og þeim öðrum, ef nokkrir eru, sem samninga hafa við ríkisstj. um framkvæmd landhelgismála.