23.04.1947
Sameinað þing: 45. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í B-deild Alþingistíðinda. (577)
12. mál, fjárlög 1947
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Á þskj. 691 eru þær brtt. frá fjvn., sem n. stendur öll að, en í 45. lið þeirra er till. um það, að Alþ. heimili ríkisstj. að ganga í ábyrgð fyrir hönd ríkissjóðs vegna byggingar fiskiðjuvers. Ég vil leyfa mér að bera fram brtt. við þetta, að á eftir „útvegsmanna og fiskimanna“ komi: bæjar- og sveitarfélaga. Með því móti eru bæjar- og sveitarfélög jafnrétthá sem útvegsmenn og fiskimenn til að njóta þessarar heimildar. Þetta er mikils vert, því að samþ. hefur verið að veita 10% lán út á togara eftir stofnlánadeildarláninu, og er því ekki nema réttmætt, að héldist í hendur fiskiðjuver útvegsmanna og bæjar- og sveitarfélaga. Það mundi alls ekki gera minna gagn, ef bæjar- og sveitarfélög kæmu upp fiskiðjuverum, og gæti það haft frekari þýðingu. Er rætt var hér um togaraútgerðina, þá var álitið, að hlutafélög og bæjar- og sveitarfélög skyldu hafa sama rétt til viðbótarláns, en hér er alveg gengið fram hjá þessu. Það er alveg meinlaust, að bæjar- og sveitarfélög fái hér sömu aðstöðu og hlutafélög, og leyfi ég mér því að bera fram brtt. við þetta. Svo hefur ríkisstj. úrskurðarvald í þessum málum, en það er eðlilegast, að bæjar- og sveitarfélög sitji hér fyrir samtökum einstaklinga.
Ég ætla nú ekki að fara inn á þær brtt., sem hér hafa komið fram, það hefur hv. 8. landsk. gert rækilega og gert grein fyrir áliti minni hl. n., en ágreiningurinn var aðallega um 15% lækkun til verklegra framkvæmda. Það er að vísu rétt, að þrátt fyrir þessa lækkun eru þessi fjárlög hærri nú en í fyrra, en það er nú ekki núverandi ríkisstj. að kenna eða þakka. Það var fyrrv. ríkisstj., sem lagði þetta plan fram. Afrek núverandi ríkisstj. kom fram í hækkunartill., en hún dró þær aftur til baka og kom svo fram með niðurskurðarplan til þess að minnka atvinnuna í landinu. Skemmdaráhrif núverandi ríkisstj. eru þau sömu, þótt ég fari ekki lengra út í þessi mál, en ríkisstj. hæstv. þarf alls ekki að kvarta yfir vöntun á tekjuöflunarleiðum, en ég mun ekki fara inn á það, því að ég býst við, að hv. 8. landsk. muni koma inn á það nánar út af því, sem hv. frsm. fjvn. sagði í ræðu sinni um þetta. Ég vil benda á, að lækkun útgjalda til verklegra framkvæmda er sérstaklega varhugaverð, eins og sakir standa og viðhorfið er orðið nú. Ég býst við, að þótt framlög til verklegra framkvæmda á síðasta ári hefðu verið allmiklu lægri, en árið þar á undan, þá hefði ekki getað stafað atvinnuleysi af því, vegna þess að svo mikil atvinna var þá í gangi, sem einstaklingar, sveitar- og bæjarfélög stóðu að. En nú hefur verulegur hluti þeirrar atvinnu, sem þannig var í gangi þá, dregizt saman fyrir beinar aðgerðir bankanna, sem ekki verður séð annað, en að geri sínar ráðstafanir í þessu efni í samráði við ríkisstj. Mér er kunnugt um, að þau hús skipta hundruðum hér í Reykjavík, sem stöðvuð er bygging á, vegna þess að lánsstofnanir hafa kippt að sér hendinni um lán. Enn fremur hefur ýmis rekstur í bænum orðið erfiðari vegna þess, að bankarnir hafa neitað um rekstrarlán, og af því að reksturinn hefur ekki fengið yfirfærslur, þó að viðkomandi aðilar hafi haft gjaldeyrisávísanir í höndum frá viðskiptaráði, og vegna þess hafa mörg fyrirtæki orðið að segja upp fólki. Sama er að segja viðkomandi mörgum verzlunarfyrirtækjum, því að þau hafa séð sig knúð til þess að draga saman seglin og segja upp starfsfólki sínu af sömu ástæðum. Og það þarf að gera sérstakar ráðstafanir, ef ekki á að verða atvinnuleysi á þessu ári. Þess vegna er það sjálfsagt, að stjórnarliðið hefur nú ákveðið að lækka framlög til verklegra framkvæmda um 15% yfir alla línuna, og verður ekki annað séð, en að stefnt sé hér að því að mynda atvinnuleysi. Ég tel, að ef ríkisstj. lætur bankana draga saman lánveitingar — og ef ríkisstj. er ekki að skipuleggja atvinnuleysi —, þá ætti ríkisstj. að setja í gang atvinnutæki til þess að mynda atvinnu í staðinn fyrir það, sem hún lætur lækka framlagið til verklegra framkvæmda almennt. Annars getur verið ákaflega óþægilegt fyrir einstaka staði, að lækkað sé framlagið til verklegu framkvæmdanna frá því, sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. eftir 2. umr. Ég tek til dæmis Grafarnes, sem þar er ætlað, að fái 75 þús. kr. til lendingarbóta. Þessu framlagi mun vera öllu fyrirfram ráðstafað upp í það, sem tekið var að láni til þess að halda áfram framkvæmdum s.l. haust, vegna þess að það hefur sýnt sig, að það er ákaflega óhagstætt að vinna svona lítið í senn á hverjum stað. Og þegar verið er á sama ári að mylgra framlagi á marga staði, en lítið fer í stað, þá fer stundum kannske allt að helmingurinn af fénu til þess að koma fyrst verkinu af stað og koma á eftir, þegar búið er að vinna, verkfærum fyrir eða flytja þau burt af staðnum. Og þetta er endurtekið árlega á sama stað. — En að því er Grafarnes snertir, þá er þessum stað lífsnauðsyn að geta haldið áfram við bryggjuna, sem er ekki nema hálfgerð og kemur að sáralitlu haldi, ef ekki er haldið áfram með hana. En þrátt fyrir það er þetta litla framlag, sem er dauðadómur um, að þetta verk geti haldið áfram, lækkað um 15%. Svona dæmi mætti víðar að taka, og sér hver maður í hendi sinni, hvílík fjarstæða er að leggja út í að gera slíkar ráðstafanir, sem hér er um að ræða. Ég sé ekki sérstaka ástæðu til þess að áfellast hv. meiri hl. fjvn. fyrir það, þó að hún fallist á þessar till. ríkisstj. Það er nú svo, að þeir flokkar, sem mynda meiri hl. fjvn., þeir standa að núverandi ríkisstj. og þeir hafa komið sér saman um þennan niðurskurð. Og fyrir þá sömu flokksmenn í fjvn. virðist því ekki um annað að gera, en að fallast á þetta, eða vafalaust finnst þeim það. En ég býst samt við, að sumir þeirra hafi ekki verið neitt ánægðir með það, að þannig var í sakirnar farið. — Hæstv. fjmrh. var að gera grein fyrir, hvernig stæði á þessari lækkun og hvers vegna ríkisstj. færi þessa leið, og mér skildist, að það væri aðallega af tvennu. Í fyrsta lagi markaðshorfunum og í öðru lagi vegna Heklugossins. Ég tók ekki eftir, að hann teldi sérstaklega önnur rök fyrir því en þessi tvenn. Það er ekki annað að segja um markaðshorfurnar, en að möguleikarnir séu mjög glæsilegir. Það hefur verið tekið fram m.a. í áramótaræðu fyrrv. hæstv. forsrh. (ÓTh), og ég man ekki betur, en það væri einnig tekið fram í ræðu hæstv. núverandi forsrh., þegar núverandi hæstv. ríkisstj. tilkynnti stefnuyfirlýsingu sína hér á hæstv. Alþ. Og það var enn fremur tekið fram í þeim kveðjum, sem fyrrv. hæstv. forsrh. flutti núverandi hæstv. ríkisstj., og árnaðaróskum, þegar núverandi ríkisstj. tók við völdum. — Ég held, að núverandi hæstv. fjmrh. hafi talað um dapurt útlit í markaðsefnum hér. — Það væri nú ekki óeðlilegt, þegar allt þetta er borið saman, að þm. bæðu hæstv. ríkisstj. um upplýsingar um það, hvernig gengur með sölu á okkar afurðum, áður en það er fært fram sem rök fyrir stórfelldum niðurskurði á verklegum framkvæmdum, að markaðshorfur séu dapurlegar fyrir afurðir okkar. Það hefur ennþá ekkert heyrzt frá hæstv. ríkisstj. um það, hvað gangi í þessum efnum, t.d. í Englandi. Nefndir eru þar ennþá og íslenzka nefndin, sem þangað var send, er þar þaulsætin og virðist taka starf sitt mjög alvarlega. Hún er búin að sitja þar, að mér skilst, meira en í tvo mánuði. — Aftur á móti virðist svo sem miklu minni festa sé í þeirri nefnd, sem fór til Sovétríkjanna, því að af fjórum nm., sem sendir voru þangað til samningaumleitana, munu tveir vera farnir frá Sovétríkjunum, og ráðgjafi n., að því er snertir hraðfrysta fiskinn, mun líka vera farinn frá Moskvu. Það virðist því vera miklu meiri losarabragur þar og minni alvara. Og Alþ. hefur ekki fengið neinar skýringar frá hæstv. ríkisstj. á því, hvernig stendur á þessu, að þetta gengur svona seint, og eins hinu, að t.d. í Sovétríkjunum sé af hendi þeirrar n., sem send var þangað, ekki meiri áherzla lögð á að fá fram samninga, en kemur fram í því, að nm. tínast á brott hver af öðrum frá störfum sínum þar. Og fróðlegt væri að heyra, hvort það er með samkomulagi við ríkisstj., að þeir menn, sem sendir hafa verið til að reyna að selja okkar afurðir í Sovétríkjunum, eru komnir þaðan og hættir störfum sínum. — Ég ætla ekki að ræða sérstaklega um markaðshorfur og annað, sem maður hefur frétt á skotspónum. En af ábyggilegum fréttum um það höfum við sáralítið fengið, og væri því æskilegt og mjög fróðlegt að fá að heyra um markaðshorfurnar, einmitt af því að hæstv. fjmrh. taldi, að markaðshorfurnar væru rök fyrir því að skera nú niður framlög á fjári. til verklegra framkvæmda mjög verulega.
Viðvíkjandi Heklugosinu er það að segja, að ýmislegt hefur verið rætt um það, hvað gera skuli til þess að bæta mönnum tjón, sem þeir hafa hlotið af því, og sömuleiðis um það, hvort leggja beri í eyði einhver býli. a.m.k. í bili, — en ég fæ með engu móti séð, að Heklugosið og afleiðingar þess geti með nokkrum rétti verið notað sem ástæða til þess að fara fram á, að stórfelldur niðurskurður verði gerður á framlögum ríkisins til verklegra framkvæmda.
Ég vil svo að lokum spyrjast fyrir um það hjá hæstv. fjmrh., hvað liður eignakönnuninni. Það er mikið um það talað, að við sósíalistar munum ekki benda á neinar leiðir til þess að afla fjár í ríkissjóðinn. Það er nú vitanlega algerlega rangt. Við höfum bent á leiðir til þess að afla fjár, bæði meðan við sátum í ríkisstj. og eins eftir það. En ástæðurnar til þess, að okkar till. hefur ekki verið sinnt, eru þær, að þeir, sem mestu ráða og hafa ráðið og farið með fjármálin, hafa ekki viljað fara þær leiðir, og þá sérstaklega vegna þess, að þeir hafa talið, að það mundi koma of hart niður á mönnum, sem þeir telja sér skylt að gæta hagsmuna fyrir. En núverandi hæstv. ríkisstj. lýsti yfir, þegar hún tók við völdum, að hún mundi framkvæma eignakönnun. Og síðan er nú liðið hátt á þriðja mánuð, og ennþá hefur ekkert frétzt um þessa eignakönnun annað en það, sem frétzt hefur á skotspónum, að búið sé að semja frv., að nefnd, sem átti að gera það, sé búin að ljúka störfum og búin að afhenda árangur af störfum sínum hæstv. ríkisstj. Og það fylgir líka með sögunni, að þessi n. hafi orðið sammála. Ég vil beina því til hæstv. fjmrh.. hvort hann vilji upplýsa nokkuð um það, hvenær vænta megi frv. fyrir þingið varðandi þetta mál og hvort hann hafi nokkuð nánar um það að segja á þessu stigi málsins. En það segir sig sjálft, að umtalið um eignakönnunina hefur valdið allmikilli truflun á fjármálalífinu í landinu. Ýmsir af þeim mönnum, sem eiga peninga, óttast eignakönnunina, og óttinn er venjulega mestur, þegar menn vita, að eitthvað er í vændum, en ekki, hvað það er. Og það er ekki vafi á því, að bara umtalið um eignakönnunina hefur valdið truflunum, þannig að menn hafa minna keypt af skuldabréfum vegna þess umtals, sem hefur svo leitt það af sér, að peningarnir hafa ekki verið notaðir til hluta, sem þýðingarmestir eru. En með valdatöku núverandi hæstv. ríkisstj. var þessi ótti vegna þessarar óvissu magnaður mjög mikið meðal þeirra manna, sem yfir peningum sitja, vegna þess að ríkisstj. lýsti yfir, að hún ætlaði að koma með frv. um eignakönnun. Og ég vil benda á það, að með því að láta þetta hanga svona yfir höfðum manna, án þess þó að menn viti, eftir hverju er að bíða, og án þess að afgreiða málið röggsamlega, er unninn geysilegur skaði okkar atvinnulífi. Svona aðgerðir þurfa skjót handtök. En það er þvert á móti ekkert mál, sem sýnir fremur atorkuleysi núverandi hæstv. ríkisstj. en einmitt það, að hún hefur ekki hraðað nóg þessu máli, því að ef litið er á stefnuskráryfirlýsingu stjórnarinnar, þá held ég, að ekki séu þar mörg atriði, sem hægt sé að segja, að það sé lofað ákveðið að framkvæma þau, önnur en þessi eignakönnun, og þó án þess, að nokkuð sé tekið sérstaklega fram um það, hvernig þessi eignakönnun eigi að vera. Það hafa að vísu frétzt ýmsar sögur um samkomulagið, sem gert var á milli stjórnarflokkanna, þegar stjórnin var mynduð, í sambandi við þessa eignakönnun. Ég hirði ekki um að hafa þær eftir hér, enda veit ég ekki sönnur á þeim. Ég hafði heyrt um fjögur atriði því viðkomandi. Vel getur verið, að það sé ekki rétt, sem ég hef heyrt þar um, og ég get ekki um það dæmt, fyrr en ég sé frv. um þetta mál. — En það er ekki vafi á því, að talið um eignakönnun hefur valdið því, að peningunum hefur verið haldið utan við atvinnulífið til stórskaða fyrir þjóðina, af því að peningamennirnir hafa viljað sjá, þegar frv. um eignakönnun kæmi fram, hvort þeim mundu ekki opnast leiðir til þess að geta komið sínum peningum undan á einhvern sér hagfelldan hátt, þegar þeir sjá, hvað ríkisstj. ætlast fyrir. Ég held líka, að þessi langi dráttur, sem orðið hefur á því að koma með frv. um eignakönnun, frá því að lýst var yfir, að hún ætti að fara fram, hafi geysileg áhrif í þá átt, að menn geti komið undan fjármunum, sem eiga að koma fram við eignakönnunina, af því að þeir fá lengri frest til þess að gera ráðstafanir til þess að fela eigur sínar. Þannig verður þessi eignakönnun að minna haldi, eftir því sem lengur er dregið að framkvæma þá læknisaðgerð í okkar fjármálalífi. sem núverandi hæstv. ríkisstj. virðist sammála um, að nauðsynlegt sé að framkvæma og hyggilegt að gera með þessum aðgerðum, sem felast í eignakönnuninni.
Hitt er líka atriði, sem rétt er um að geta, að eignakönnunin hlýtur að gefa geysimikla fjárfúlgu til hins opinbera, ef löggjöf um hana, er forsvaranlega afgr. á Alþ. og hún röggsamlega framkvæmd. Það er auðvitað mjög auðvelt að fá á þann hátt inn mikið fé til hins opinbera, vegna þess að það er vitað, að geysilegar fjárfúlgur eru í umferð manna á meðal, sem ekki hafa verið tíundaðar til skatts og hvergi hafa fram komið til þessa á framtali. Og á þann hátt hefði verið hægt fyrir ríkisstj. að fá tekjur í staðinn fyrir að fara inn á þá ömurlegu leið að stórhækka tolla á nauðsynjavörum landsmanna og þannig raunverulega stórhækka dýrtíðina til þess að geta borgað niður framfærsluvísitöluna. Það hefði verið ólíkt hyggilegra að hraða eignakönnuninni og nota einmitt það fé, sem með henni hefði fengizt, til þess að gera þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru taldar í dýrtíðarmálunum, heldur en að hækka tollana. — Ég vil sérstaklega spyrja hæstv. ríkisstj., hvað líði þessari eignakönnun og hvenær vænta megi frv. um það efni.
Þegar rætt var hér á föstudaginn utan dagskrár um sölu Hvalfjarðareignanna til leppfélags. ameríska félagsins Standard Oil, þá bárust inn í umr. hér að tilhlutun hæstv. utanrrh. markaðsmál okkar Íslendinga. Og þessi hæstv. ráðh. kom með þetta hér inn í umr. á þann hátt, að hann sagðist mundu sjá til þess að afhjúpa mig fyrir það, að ég mundi hafa blekkt hann og hæstv. ríkisstj. alla viðkomandi því, að ég hefði talið betri markaðsmöguleika fram undan en hann vildi vera láta, að væru í raun og veru. Það er leitt, að þessi hæstv. ráðh. skuli ekki vera hér staddur nú. En þessar persónulegu aðdróttanir hans gefa mér sérstakt tilefni til þess að spyrjast fyrir um það, hvað líði afurðasölu okkar nú. Það geta verið sérstakar ástæður þess valdandi, að það verði að hafa þögn um afurðasölumál, meðan verið er að semja. En ef hæstv. ráðh. má segja eitthvað frá þessum málum á þessu stigi, þá er það svo — þar sem hann hefur lýst mig ósannindamann viðkomandi þessum markaðsmálum —, að ég hef alveg sérstaka ástæðu til þess að spyrjast fyrir um það og jafnvel sérstaka kröfu á að fá svar við þeirri fyrirspurn, ef svara má, hvað líði okkar afurðasölumálum nú. Og fýsir mig enn fremur að heyra, á hverjum rökum eru reistar þær hrakspár og það svartsýnistal, sem í þessum efnum heyrist nú frá hæstv. ríkisstj. Ég ætla annars ekki sérstaklega að svara hæstv. utanrrh. hér, af því að hann er ekki viðstaddur, en seinna gefst kannske tækifæri til þess, ef þessar umr. halda áfram á föstudaginn kemur.