23.04.1947
Sameinað þing: 45. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í B-deild Alþingistíðinda. (578)

12. mál, fjárlög 1947

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Að því er snertir fyrirspurn hv. þm. .Siglf., hvað líði frv. um eignakönnun, sem hann virðist vera orðinn mjög óþolinmóður eftir, að lagt verði fram hér á hæstv. Alþ., get ég sagt, að það frv. mun vera að mestu undirbúið. Og það er ekki af neinu sérstöku tilefni, að það hefur enn ekki verið lagt fram. En hins vegar hafa önnur mál mjög tekið upp tíma ríkisstj. núverandi, sem tók við af þeirri ríkisstj., sem hv. þm. Siglf. átti sæti í. En um eignakönnunina sjálfa vil ég aðeins segja það, að hún mun nú vera hugarfóstur kommúnistaflokksins í upphafi. Í hinu margra metra — eða a.m.k. cm. — langa skjali, sem kommúnistafl. gaf út í vetur, þar sem fram voru tekin þau ótalmörgu skilyrði, sem sá ágæti flokkur setti fyrir áframhaldandi stjórnarsamvinnu, þar var eignakönnunin einn aðal- og meginþátturinn. — Nú hef ég alltaf skilið það svo, að það fé, sem inn mundi koma vegna eignakönnunarinnar sérstaklega, ætti ekki að vera gert að beinum eyðslueyri fyrir ríkissjóðinn, þannig að með því fé ætti að reikna við afgreiðslu fjárlaga sérstaklega, svo að í raun og veru er það alveg utan við málið, þegar hv. þm. er að benda á tekjuöflun fyrir ríkissjóð eftir eignakönnunarleiðinni. — Það er hægt að slá því fram náttúrlega, að eignakönnunin eigi rétt á sér og. að það eigi að sækja þá peninga í vasa almennings, sem dregnir hafi verið undan skatti. Hitt mun líka sannast, að þegar þessi hugmynd kommúnistafl. á að útfærast í verki, að þá kunna að finnast á því allmargir annmarkar. Og ég tel það efamál, hvort þessir herrar, kommúnistar, verða þá jafnfúsir að gangast við faðerni málsins gagnvart þeim almenningi, sem eignakönnunin kann að hitta. Ég held hv. þm. geti verið viss um það, að frv. um eignakönnun, eða hvað sem það kemur til með að heita, það kemur á sínum tíma. Hv. þm. lítur svo á, að þetta hugarfóstur hans og flokksbræðra hans hefði átt að framkvæma snarlega og umsvifalaust. Ég býst við, að það hefði haft sína kosti, en á hinn bóginn er að líta á það, að ef flasað er að slíkri löggjöf, þá gæti svo farið, að ókostirnir yrðu meiri, en kostirnir.

Þá spurði hv. þm., hvað liði markaðsmálum okkar nú. Það er sýnilegt, að hann hefur ekki verið viðstaddur í fyrra kvöld, þegar hæstv. forsrh. gaf stutt yfirlit yfir markaðsmálin að gefnu tilefni frá hv. 2. þm. Reykv. En það er ekki launungarmál, að það hefur gengið allt öðruvísi í þessum efnum, en þessi hv. þm. gaf í skyn á sínum tíma, að yrði eða gæti orðið. Hann og flokksbræður hans hamra mjög á því, að markaðshorfur séu glæsilegar. Það er allt eftir því, hvernig á það er litið. Það getur vel verið, að selja megi allar vörur, sem Íslendingar framleiða, en hvort hægt sé að selja þær á því verði, sem þessi hv. þm. taldi sig mann til að boða á sínum tíma, það tel ég vafamál. Þá spurði hv. þm. að því, hvernig stæði á því, að nm., sem væru í rússnesku n., væru komnir heim. Annar maðurinn er við markaðsathugun á öðrum sviðum, en hins vegar er svo langt síðan rússneska n., ef maður má komast svo að orði, settist á rökstóla austur í Moskvu, að sennilega er búið að ræða svo mikið við blessaða Rússana um þetta mál, að sendiherrann og aðstoðarmenn hans þar og hér og hinir nm. ættu að vera einfærir um að senda og bíða eftir svörum frá Rússunum, en þau koma ekki mjög hratt, eftir því sem mér hefur skilizt. Á sínum tíma mun svo vera hægt að leggja fram skýrslu um það, hvernig þessar viðræður hafa gengið. En ég get nefnt eitt atriði, sem ég hef eftir einum nm., sem kominn er heim. N., sem kom til Moskvu seint í febr., lagði fram tilboð Íslendinga 2–3 dögum eftir komuna þangað, og það liðu 17 dagar, þangað til Rússunum þóknaðist að láta í ljós sitt fyrsta álit á þessum tilboðum. Síðan hafa verið haldnir margir fundir, sem ég veit ekki frekar um. En eitt er víst, að áhugi Rússanna fyrir að kaupa af okkur afurðir okkar virðist allt annar en áhugi þess rússneska manns, sem hv. þm. Siglf., hæstv. fyrrv. atvmrh., hafði fyrir leiðarljós í þessum málum. Það er vitað, að meðan hv. þm. Siglf. var atvmrh., þá náði hann tali af rússneskum manni, sem hafði einhver afskipti af vörum, sem Rússar voru að kaupa hér. Og eftir umsögn þessa manns um markaðhorfur mun svo þessi hv. þm. hafa reist allar sínar fullyrðingar um það, hvað snertir verð og magn þeirra vara, sem hægt mundi að selja til Rússlands. Þegar svo nm. okkar í Moskvu þótti kynlega við bregða lystarleysi Rússanna og í hversu miklu ósamræmi þeir komu fram við samningaborðið samanborið við þau ummæli, sem hæstv. fyrrv. atvmrh., þm. Siglf., hafði haft eftir hinum rússneska manni, sem ég því miður kann ekki nafnið á, þá báðu þeir um að fá að tala við þennan mann. En það undarlega var, að maður þessi hafði alltaf kvef og treysti sér ekki að sjá framan í íslenzku nm. í Moskvu. Þetta mun svo upplýsast betur, þegar skýrsla liggur fyrir frá n. um gang þessara mála. En þennan þátt úr störfunum víta menn með vissu. Hvað svo þetta allt kann að dragast lengi enn, geta menn ekki sagt um. En vitanlega geta allir gert sér í hugarlund, að þegar ríkisstj. hér heima á að taka við skeytum, sem koma mjög í bága við það, sem gefið hefur verið í skyn, semja brtt. og sitja svo við það dögum saman að finna leiðir út úr þessum mjög svo torveldu málum, þá tekur það mikinn tíma. Það veit hv. þm., frá því hann var einn af ráðh. fyrrv. ríkisstj., og var þó miklu léttara að selja vörurnar þá en nú virðist, einkum í Rússlandi. Ég get drepið á eina mynd í viðbót, sem sýnir, hve örðugleikarnir eru miklir og vonbrigðin í sambandi við þessi mál og einkum hvað snertir þær vonir, sem þessi hv. þm. gaf. Það var gert ráð fyrir, að Rússar mundu kaupa meginið af saltfiskframleiðslu okkar, eins og hún var áætluð af n., sem þessi hv. þm. skipaði meðan hann var ráðh. Í reyndinni er það þó þannig, að Rússar eru ekki til viðtals um að kaupa nokkurn saltfisk, þrátt fyrir það að þeir í fyrstu settu fram eins konar tilboð í saltfisk, sem var að vísu svo lágt, að því var ekki sinnt. Ég hygg, að þeir hafi í fyrstu ekki vitað, um hvaða vöru var að ræða. Nú er því haldið fram af n. í Moskvu, að þeir séu ekki til viðtals um að kaupa 10 þús. tonn af saltfisk, sem er það mesta, sem stungið hefur verið upp á upp á siðkastið. Hv. þm. kvartaði undan því, að hæstv. utanrrh. hafi gert árás á sig persónulega út af þessu máli. Um það veit ég ekki, þar sem ég hlustaði ekki á þær umr. En ég veit, að hv. þm. getur ekki talið það persónulega árás á sig, þótt skýrt sé frá þeirri staðreynd, að sá maður, sem hann reisti alla sína von á, virðist hafa haldið allt öðru fram, en raunverulega hefur verið raunhæft í þessu máli, eða þegar reynt er að fá viðtal við þennan mann austur í Rússlandi, þá sé hann ekki til viðtals, því að hann sé alltaf kvefaður að sögn þessa nm., sem kominn er heim.

Hvað ensku samningana snertir, þá hafa þeir um langt skeið verið komnir að því marki að verða þá og þegar undirskrifaðir. Það hefur þó ekki orðið enn, og skal ég ekki leiða getur að ástæðunum fyrir því. En ég veit þó um eina, og hún er sú, að þegar til kastanna kom með hraðfrysta fiskinn, þá kom í ljós, að hraðfrystihúsin hér heima höfðu pakkað fiskinn mjög mikið inn á annan veg en gera skal fyrir enskan markað, og það veldur eðlilega miklum erfiðleikum. Í hvaða landi sem er og ekki sízt í Englandi, þar sem menn eru vanafastir, hefur verið höfð pökkun, sem hæfir viðkomandi kaupendum. Þetta stafar af því, að hraðfrystihúsaeigendur hafa trúað á hinar miklu fullyrðingar um stóran markað annars staðar en í Englandi og þá einkum í Rússlandi. Pökkun fisksins hefur því verið miðuð við þennan markað meira en enska markaðinn. Þetta allt hefur valdið miklum töfum og erfiðleikum, og ríkisstj. hefur svo að segja daglega haft fundi til þess að athuga skilaboð og skeyti, sem komið hafa frá n. í báðum þessum löndum. Og hún hefur líka orðið að athuga mjög alla aðstöðu hér heima fyrir til þess að geta sent svör til n. Hv. þm. er auk þessa ekki svo blár í þessum efnum, þótt hann spyrji hér á Alþ. Hann hefur fulla aðstöðu til að vita þetta, því að flokkur hans hefur fulltrúa í utanrmn., þar sem þessi mál eru oft til umr. Hins vegar hafði þessi hv. þm. dálítið nýstárlegan sið, þegar hann var ráðh., slíkt mun ekki hafa tíðkazt hjá öðrum ráðh. fram til þessa. Hann hafði sína eigin sendimenn úti í löndum, er hann sendi, að því er virtist, án þess að ráðfæra sig við sína meðráðh. Einn slíkur maður er nýkominn til landsins. Hann var búinn að vera 5 mánuði eða lengur á ferðalagi á vegum ríkisstj. og eins konar sendimaður fyrrv. atvmrh. Hann hafði dvalið lengi í Póllandi. Árangurinn af för hans liggur fyrir í skýrslu. Þar er lauslega talað um, að Pólverjar geti látið þetta og kannske keypt hitt. Þeir eru fúsir til að taka við peningalánum frá hraðfrystihúsunum. Ég man ekki, hvað margar tugþúsundir þeir vilja þiggja til þess að byggja upp og innrétta hjá sér sölubúðir fyrir fisk. Auk þess hafa þeir eftir skýrslu nm. að dæma haft mjög góð orð um að láta okkur hafa 4–5 hundruð stúlkur til þess að keppa um síldarvinnu hér á landi við íslenzkar stúlkur. Í fljótu bili sé ég ekki, að árangur af þessari för, sem hefur kostað 60.000 kr. eða vel það, sé öllu meiri. Það er að vísu gott og blessað að fá þau skilaboð frá útlendu ríki, að það vilji þiggja peninga og vilji senda nokkur hundruð stúlkur til að vinna á Íslandi. En ég held, að þess háttar markaðsleit sé frekar lítilfjörleg og til lítils af að státa. Og mér finnst, að sá ráðh., sem stendur fyrir slíku, standi ekki neitt sérlega vel að vígi með að bera á núv. ríkisstj. ódugnað í þessum efnum.

Hv. þm. gerði svo fjárl. að umtalsefni og þá einkum það voðalega tiltæki ríkisstj. að leggja til við fjvn. að skera niður að nokkru þær fjárhæðir í fjárl., sem ekki eru lögbundnar. Ég geri ráð fyrir því, að hvaða leið sem farin yrði til þess að lækka greiðslur fjárl., þá mundu þær ekki finna náð fyrir augum hv. þm. eða flokks hans. En vegna þeirra staðhæfinga, að framlög til verklegra framkvæmda í fjárl. séu fyrrv. stjórn að þakka, en ekki núv. stjórn, þá vil ég drepa á það. að í fjárlagafrv. fyrrv. ríkisstj. var lagt til, að til nýrra vega yrði varið 5 millj. kr., en í frv., eins og meiri hl. fjvn. leggur til, að það verði afgr., eru framlögin í þessu skyni 61/2 millj. Ekki getur þessi viðbót verið að þakka þeirri ríkisstj., sem fór frá. Sama máli gildir um brúargerðir. Fyrrv. ríkisstj. lagði til, að varið skyldi til þeirra 11/2 millj. En ef frv. verður samþ. eins og það liggur nú fyrir, verða framlögin til brúargerða 2,3 millj. þrátt fyrir þennan niðurskurð. Þá eru það hafnarmannvirkin. Hv. þm. talaði um, að framlagið til þeirra mætti sízt skerða. Fyrrv. stjórn ætlaði til þeirra 4.8 millj., en eins og frv. er nú, á að verja til þeirra hluta rúmum 7 millj. Það er þess vegna fullkomin villukenning, að núv. stjórn sé að skera niður framkvæmdir, þannig að minna verði ætlað til þeirra hluta en upphaflega var ákveðið. Það hefur verið sýnt fram á, að framlögin til verklegra framkvæmda hafa verið aukin stórkostlega. En í sambandi við þetta vil ég benda á, þar sem þessar tölur hafa verið vefengdar, bæði af hv. form. fjvn. og öðrum, að þær eru teknar af tveim aðilum, bæði skrifstofunni og einstökum þm., svo að ég get ekki álitið, að báðum þessum aðilum hafi skjöplazt svo, að þessar tölur láti ekki nærri.

Hv. 2. þm. S-M. talaði í dæmisögum og líkingum um till. nefndarinnar og ríkisstj. Ég sé nú ekki ástæðu til að svara hv. þm., enda finnst mér það ekki heldur liggja vel fyrir hv. þm. að tala í líkingum og dæmisögum. Hv. þm. sagði í sambandi við till. á þskj. 704, um að heimila frestun á framkvæmdum, að það væri nýmæli, eins og hann hefði aldrei séð því líkt. Nú hefur hv. þm. sér það að vísu til afsökunar, að hann er hér nýr af nálinni og kannske ekki kunnugur því, sem gerzt hefur hér undanfarið. Það rétta er, að öll undanfarin ár hefur slík heimild verið samþ. fyrir ríkisstj. varðandi fjárlagaafgreiðslu. Það er því fjarri því, að hér sé um nokkurt nýmæli að ræða. En það væri óforsvaranleg framkvæmd á afgreiðslu fjárl., ef ekki væri fyrir hendi slík heimild fyrir ríkisstj., eins og útlitið er í raun og veru burtséð frá öllu bjartsýnistali.

Varðandi aths., sem gerð hefur verið varóandi 2. lið þessarar brtt., um að ríkisstj. sé veitt heimild til að taka lán allt að 25 millj. kr. til þess að ljúka framkvæmdum, sem fé er veitt til á fjárl., ef tekjur hrökkva ekki til fyrir gjöldum og vinnuafl nægilegt að skaðlausu fyrir atvinnulífið, þá vil ég benda á, að fordæmi hefur verið gefið fyrir þessu áður. Við afgreiðslu fjárl. 1946 var samþ. heimild til að taka lán allt að 15 millj. kr. í þessu skyni, svo að ef þingið gat samþ. þetta þá og veitt fyrrv. stjórn slíka heimild, þá ætti að vera mögulegt að samþykkja þetta nú. En þessi heimild er fram komin til þess, að stjórnin hafi einhverja heimild til að útvega fé til þessara framkvæmda, ef á þarf að halda og ástandið í landinu krefst þess. Þetta er líka þvert á móti því hugarfari, sem hv. þm. Siglf. vildi ætla stjórninni, þar sem hann fullyrti, að hennar plan væri að minnka atvinnuna í landinu. Ef stjórnin væri með slíkt hugarfar, þá mundi hún ekki biðja um neina heimild í þessa átt. En þar sem stjórnin vill hafa opna leið til þess að koma verkunum áfram, þótt fé sé kannske ekki fyrir hendi í ríkissjóði, þá fer hún fram á þessa heimild.

Ég dreg við mig að svara tali hv. þm. Siglf, um skemmdarstarfsemi. Það er næsta ógeðslegt hér á Alþ. að kasta fram slíkum fullyrðingum. Þess háttar tal á heima í vissum herbúðum hér á landi, en ekki á Alþ. Þá talaði hv. þm. um, að bankarnir drægju saman starfsemi sína eftir beiðni núv. ríkisstj. Þetta er hin mesta staðleysa. Það er vitað, að bankarnir eru tregir til að lána og það miklu meira, en á undanförnum árum, og ástæðan er augljós. Spariféð er dregið út úr bönkunum. Þá er eðlilegt, þegar féð minnkar, sem bankarnir hafa með höndum, að lánastarfsemin þrengist. Það er ekki óeðlilegt. En það er óréttmæt ásökun að beina því að ríkisstj. og bönkunum, að þetta sé gert visvítandi til þess að þrengja að atvinnulífinu í landinu.

Hv. þm. Siglf. minntist svo á þá „ömurlegu leið“, eins og hann sagði, sem ríkisstj. hefði farið til þess að afla ríkissjóði tekna. Svo, já. Það má nú öllu nafn gefa. Sú leið er nú ekki annað en það, sem þingið hefur á öllum árum meir og minna farið, að afla ríkissjóði tekna með tollum. Og sú leið er ekki ömurlegri en það, að henni var mjög haldið fram í svokallaða hagfræðingaálitinu, sem ég býst við, að hv. þm. Siglf. vilji ekki vefengja, að sé rétt. Þó að því hafi verið haldið fram þar, að tollar ættu að vera til að minnka eyðslu í landinu, þá á sú stefna að leggja á tolla einnig að þjóna því markmiði að veita ríkissjóði tekjur við hliðina á því að minnka eyðsluna í landinu. — Hv. þm. Siglf. virðist leggja mikið upp úr eignakönnuninni, að hún verði framkvæmd sem fyrst. Hvernig hún kemur við flokksbræður hans, skal ég ekki segja. En ekki þætti mér ólíklega við bregða, þó að mennirnir, sem hæst hafa hrópað um eignakönnun, mundu, þegar til kasta kemur, reyna að skríða í kuðunginn og flýja undan þeim óvinsældum, sem slík löggjöf kann að verða fyrir, og varpa skuldinni þá á aðra menn.

Ég veit ekki, hvort hv. 2. þm. Reykv. er hér viðstaddur. En ef hann er það, vildi ég biðja hann afsökunar á því, að ég minnist siðast á það, sem hann lagði til málanna, þó að hann hafi verið fyrstur hér á lista yfir það, sem ég skrifaði upp til að svara. Það var ein fyrirspurn, sem hann lagði fyrir ríkisstj., að því er virtist, sem hann óskaði eftir að fá svar við. Og hún var um það, hvers vegna innkaupastofnun ríkisins ætti ekki líka að annast innkaup nauðsynja fyrir almenning. Þessu er hægt að svara. Það er vitanlegt, að innkaupastofnun ríkisins er ekki hugsuð sem landsverzlun í venjulegum skilningi. Ég veit, að hv. 2. þm. Reykv. trúir á blessun landsverzlunar í einu og öllu. En þessi stofnun er ekki hugsuð sem slíkt fyrirtæki, heldur sem stofnun, er hafi með höndum innkaup á ákveðnum hlutum, sem ríkið þarf sjálft að nota til framkvæmda á vegum þess, og á að vera hliðstæð innkaupastofnun Reykjavíkurbæjar og annað ekki. (SigfS: Hún er nú innkaupastofnun til að kaupa ekki inn.) Hv. 6. þm. Reykv., sem fram í tók, má bezt vita um þá stofnun, sem stendur undir honum. Hv. 6. þm. Reykv. er húsbóndi þessarar stofnunar og má bezt vita um þá hluti, sem henni við koma, og það er afsakanlegt, þó að ég sé ófróðari um það.