25.04.1947
Sameinað þing: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 543 í B-deild Alþingistíðinda. (598)
12. mál, fjárlög 1947
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Það er vegna brtt., sem ég flyt á þskj. 717. sem ég kveð mér hljóðs að öðru sinni við þessa umr. Þessi till. fer fram á það, að nýr liður komi við tölulið þann, sem er um styrk til Skáksambands Íslands. Með till. þessari er lagt til, að skáksambandinu verði veittur 5 þús. kr. styrkur til utanfarar á alþjóða skákmót. Ég þarf ekki mörg orð til að rökstyðja þessa till. Íslenzkir skákmenn hafa á undanförnum árum, ekki sízt á s.l. ári, gert okkur mjög mikinn sóma. Nægir að minna á það, að á alþjóðaskákmóti. sem haldið var í Hastings í Englandi á síðasta ári. varð Íslendingur nr. 3. Ísland stóð sig á því móti frábærlega vel, þannig að það vakti jafnvel alheimsathygli. Íslendingar tóku einnig þátt í norrænu skákmóti í Kaupmannahöfn og gátu sér þar mjög gott orð fyrir frammistöðu sína.
Nú hefur Skáksambandi Íslands verið boðið að senda tvo menn á skákmót í sumar í Hollandi og enn fremur boðin þátttaka í alþjóðaskákmóti, sem haldið verður í Helsingfors í Finnlandi, en þessi samtök hafa úr mjög litlu fé að spila. Sambandið hefur notið smávægilegs fjárstyrks frá Alþingi. og er því þess vegna þörf á að njóta aðstoðar þess opinbera til þess að geta staðið undir slíkum ferðakostnaði. Ég lít svo á og vafalaust margir fleiri, að utanfarir skákmanna okkar hafi mikla þýðingu fyrir landið. Það er mikil auglýsing og getur beinlínis haft fjárhagslegt gildi. Það vekur athygli á landi og þjóð og jafnvel framleiðsluháttum landsins og getur þess vegna átt sinn þátt í að stuðla að auknum skilyrðum fyrir bætta markaði fyrir íslenzka framleiðslu.
Ég skal svo ekki hafa miklu fleiri orð um þessa brtt., en ég vænti þess, að hv. þm. minnist þess, hversu glæsilega íslenzkir skákmenn hafa staðið sig á erlendum vettvangi, og vilji gjarnan stuðla að því, að landið geti sent sina ungu og duglegu skákmenn á alþjóðamót framvegis.
Fleiri orð þarf ég ekki að hafa fyrir þessari brtt., en vil víkja örfáum orðum að hv. frsm., þm. Barð. Ég var fjarstaddur hér s.l. miðvikudagskvöld, þegar hann talaði. Ég hef fengið fregnir af því, að hann hafi ráðizt allharkalega á mig, farið mörgum miður fögrum orðum um minn tillöguflutning og jafnvel rifjað upp fyrri viðskipti okkar í umr. á Alþingi, og nú í dag lét hann þau orð falla, að ég og hv. 3. landsk. hefðum gert hrossakaup okkar í milli um að ráðast á sig. Hv. 3. landsk. hefur nú svarað efni þess máls hv. þm. Barð. að miklu leyti, sem hann flutti, þegar ég var fjarstaddur, svo að ég sé ekki ástæðu til að svara því. Ég get aðeins huggað hv. þm. Barð. með því. að því fer afar fjarri, að við hv. 3. landsk. höfum gert hrossakaup um að níðast á lítilmagnanum, honum. hv. þm. Barð. Það er fjarri því, að við höfum gert þetta. Hann getur sofið rólegur vegna þess. En ég þarf að leiðrétta eitt ranghermi, sem hann bar fram í sinni ræðu. Hann sagði, að ég hefði tjáð honum, að ég hefði tryggt brimbrjótnum í Bolungavík 100 þús. kr. utan fjárl. og því fallið frá 100 þús. kr. hækkunartill., sem ég hefði áður nefnt við hann og hæstv. ríkisstj. Þetta er ekki að öllu leyti rétt. Ég hef rætt, og við hv. 3. landsk., við hæstv. samgmrh. um að fá breytt l. um hafnarbótasjóð þannig, að brimbrjóturinn í Bolungavik og önnur mannvirki, sem skemmdust, gætu notið styrks úr honum, án þess að framlags væri krafizt af viðkomandi bæjar- eða sveitarfélagi. Það er þetta, sem ég hef gert. Það er þetta, sem við hv. 3. landsk. höfum reynt að semja um við hæstv. samgmrh., en ekki hitt, að hæstv. ríkisstj. greiði án fjárl. 100 þús. kr. úr ríkissjóól. Það kann að vera misskilningur hjá hv. þm. Barð., og þykir mér það þrátt fyrir allt heldur líklegra en hitt, að hann beri þetta fram gegn betri vitund.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um hans mál. Það er að vísu afar undarlegt, að hin áreitnislausa ræða mín, þegar ég mælti fyrir till. mínum, skyldi verða hv. þm. Barð. tilefni til svo reiðiþrunginna ummæla og hvatvíslegra, sem mér er hermt, að hann hafi haft um hönd. En það er einu sinni svona með þann hv. þm., að þetta er hans umgengnisvenja, þetta er hans háttur að ráðast svona á meðþm. sína og ýmsa fleiri menn. Ég skal ekki blanda mér í þessar umgengnisvenjur hans. Ég býst ekki við, að ég fái þar neinu orkað, a.m.k. ekki í náinni framtíð, að þar verði nein lífsvenjubreyting hjá honum.