25.04.1947
Sameinað þing: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (600)

12. mál, fjárlög 1947

Eiríkur Einarsson:

Ég ætla ekki að hreyfa hér öðru en því, sem lýtur lítils háttar að staðreyndum. — Ég heyri sagt, að hv. form. fjvn., hv. þm. Barð., hafi vikið að því, að hlutur Árnessýslu hafi orðið alldrjúgur. Ég held nú, að fáum hv. þm. ætti að koma það undarlega fyrir sjónir, þar sem þessi sýsla hefur reynzt með drýgstu og farsællegustu framleiðsluhéruðum landsins til landbúnaðar og þannig ástatt um hana að öðru leyti, að til hennar er horft til aukinna þjóðþrifa í náinni framtíð. Já, ég sagðist ætla að tala um staðreyndir. Mér var sagt — og vona, að það verði leiðrétt, ef ég fer rangt með —, að form. fjvn. hafi sagt, þegar hann ræddi um þetta hér í dag, að fjárframlög til Árnessýslu mundu nema nálega 21/2 millj. kr. Ef þetta er rangt hermt, bið ég velvirðingar á því, en ef hv. frsm. þegir við þessu, skil ég það svo, að hann hafi látið sér þessi orð um munn fara. Þótt þetta væri nú svona, geri ég ráð fyrir, að með skynsamlegri notkun á 2,5 millj. mætti koma því vel fyrir, en ég get ekki séð, hvernig hann hefur fundið þessa fjárhæð út, því að eins og frv. lítur út nú, með þeim breyt., sem þar liggja fyrir, og á ég þar við 15% lækkunina til vega og annars slíks, þá miða ég við þá upphæð, sem líklegt er, að verði niðurstöðuupphæð fjárl., og úr því finn ég ekki nema 1.372.800 kr. Hafi mér sézt þar yfir eitthvað verulegt, þykir mér vænt um að fá það leiðrétt, því að mig langar ekki til að blekkja Alþ. með orðum mínum, en það er þá bezt, að það komi í ljós. Ég get ekki betur séð en eftir frv., eins og það horfir við, þegar búið er að taka til greina 15% lækkunina, sé ætlað til vega kr. 582.300, til hafna kr. 365.500 og til Skálholtsskóla kr. 425.000. En út úr þessu get ég ekki fundið 2,5 millj. kr., þar er sá mikli munur. Og sé þetta byggt á misskilningi hjá mér, vil ég fá hann leiðréttan, en sé þetta rétt hjá mér, vænti ég, að þessari staðhæfingu verði kingt. — Það er nú svo, að þegar athugaðar eru þessar upphæðir, er á það að líta, að þær eiga hvergi nærri eingöngu að koma til góða Árnessýslu einni. Þegar litið er t.d. á Skálholtsskóla, er það að vísu fjórðungsskóli, en það er líka eini bændaskólinn á öllu Suðurlandsundirlendinu. Og þegar svo athugað er framlag til vega í sýslunni, sem er kr. 582,300, kemur í ljós, að það, sem á langverulegastan þátt í að hækka þá upphæð, er hin margumtalaði Krýsuvíkurvegur, og ég spyr nú — er það vegna Árnessýslu einnar, að sá vegur er gerður? Það er ekki ætlun mín að mótmæla því hér, að honum verði haldið áfram. Ég hef áður látið í ljós, hvers vegna ég hef sætzt á það, og vil ég ekki endurtaka þau orð, en að hann verði allur færður í syndaregistur Árnessýslu, því mótmæli ég eindregið. Þessi vegur kemur fyrst og fremst að notum þeim þorpum, sem að honum liggja hérna eftir Reykjanesinu, svo að ég kalla ekki samvizkusamlega með farið, ef það á að reyna að sýna framlagshluta Árnessýslu sem hæstan með því að tilgreina þetta allt. Ég hef ekki beðið um þennan veg, en ég mun samþykkja það framlag, sem honum er ætlað, án tillits til þess, hvar það kemur að notum.

Svo eru það hafnirnar. Þar er um að ræða 50 þús. kr. til hvorrar hafnar á Eyrarbakka og Stokkseyri. til lendingarbóta þar, sem mun nú vera lækkað um 15%. En langstærsta framlagið er til Þorlákshafnar, og eru það tvö sýslufélög, Árnessýsla og Rangárvallasýsla, sem hafa tekið eins konar ábyrgð á þeim aðgerðum, og er því tæpast hægt að færa þessa upphæð eingöngu á kostnað Árnessýslu.

Ég tel, að hv. frsm. geti verið mér heldur þakklátur en hitt fyrir að hafa sagt þetta, því að vitanlega er eins með hann og mig, að við viljum báðir finna orðum okkar stað.