25.04.1947
Sameinað þing: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (603)
12. mál, fjárlög 1947
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég vildi aðeins leiðrétta þau margendurteknu ósannindi hjá hv. frsm. fjvn., þar sem hann segir, að ég hafi tryggt mér úr ríkissjóði 100 þús. kr. til brimbrjótsins í Bolungavík. Þessum hv. þm. hefur réttilega verið hælt mikið hér á þingi og utan þess fyrir ástundun og dugnað. Nú förlast honum svo, að hann veit ekki um þau frv., sem liggja fyrir þinginu. Það einkennilega hefur skeð, að hv. frsm. fjvn. — þó að hann gangi allra manna snyrtilegast frá þskj. sínum — veit ekki, að það hefur verið borið fram frv. — frá því hef ég skýrt áður — í samráði við samgmn. um það, að þeir staðir, sem beðið hafa tjón á mannvirkjum af óviðráðanlegum orsökum, fái styrk úr hafnarbótasjóði án styrks úr héraði. Þetta liggur fyrir á þskj. 684. Eftir þessari leið gerum við flm. — ég og hv. 3. landsk. — okkur vonir um að fá fé til brimbrjótsins í Bolungavik, en ekki af því, að við ætluðum okkur að leggja að ríkisstj. að greiða utan fjárlaga sérstaklega til þessara framkvæmda úr ríkissjóði. Ég vona, að hv. frsm. fjvn. skilji þetta og endurtaki ekki rangmæli sin aftur í þessu efni. Í tilefni af þeim óvenjulega prúðu orðum, sem óvart hrutu út úr þessum hv. þm., vil ég segja það, að ég geri mér ekki vonir um, að ég geti — og tel það heldur ekki skyldu mína — unnið að umbótum eða breytingum á umgengnisvenjum hans á Alþingi eða utan þings.