28.04.1947
Sameinað þing: 48. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í B-deild Alþingistíðinda. (629)

12. mál, fjárlög 1947

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er óhugsandi að dæma um stefnu ríkisstj. og framkvæmdir hennar án þess að hafa skýrt í huga, hvernig ástatt er í landinu nú um þessar mundir, þegar ríkisstj. er að hefja störf sin. Ég mun því byrja með því að leitast við að gefa yfirlit í örfáum stórum dráttum um viðhorfið eins og það kemur mér fyrir sjónir.

Af mörgu þýðingarmiklu er það þó þýðingarmest, þegar á fjárhagsmálin er lítið, hvernig afstaða þjóðarinnar er gagnvart útlöndum. Á styrjaldarárunum söfnuðust þjóðinni miklar inneignir erlendis, og þegar menn litu á þær, töldu menn, að þjóðin væri orðin rík. Þessar inneignir söfnuðust þó ekki aðeins vegna framleiðslu landsmanna, heldur fyrst og fremst vegna viðskipta við heri þá, sem í landinu dvöldu, og eyðslu þeirra hér. Sést þetta af því, að gjaldeyriseyðslan á stríðsárunum mun ætíð hafa nálgazt jafngildi útflutningsins.

Það er ómögulegt að gera sér grein fyrir þeim vandamálum, sem nú bíða fram undan, nema með því að athuga nokkuð þá þróun, sem orðið hefur í þessum efnum, og þá sérstaklega frá því að inneignir þjóðarinnar erlendis náðu hámarki, en það var í lok nóvembermánaðar 1944. Þá komust gjaldeyrisinneignirnar hæst og námu 585.330.000 króna. Á þessu hvíldu ábyrgðarskuldbindingar bankanna á þeim tíma, er námu 48 millj. kr., þannig að nettóinneignir umfram ábyrgðarskuldbindingar námu 537 millj. króna.

Lítum þá á, hvernig nú er ástatt. Síðasta dag marzmánaðar s.l. námu gjaldeyrisinneignir bankanna samtals 149.655.000 kr., en ábyrgðarskuldbindingar á sama tíma námu 41.484.000 kr., þannig að nettóinneignir voru þá 108.171.000 kr. Á nýbyggingarreikningi áttu þá að vera 111.154.000 kr., og skorti því á þeim tíma 3 millj. kr., til þess að bankarnir ættu fyrir því fé, sem óútborgað á að vera á nýbyggingarreikningi. Enn fremur eru ófærð á nýbyggingarreikning þau 15% af útflutningsandvirði ársins 1946, sem þangað áttu að fara, blátt áfram af því, að þeir milljónatugir hafa verið notaðir fyrir venjulegan innflutning. Útgefin innflutningsleyfi á nýbyggingarreikning námu á þessum tíma meira en þeim 111 milljónum, sem þar áttu að vera. Niðurstaðan er því sú, að öllum gjaldeyrisinneignum landsmanna hefur verið ráðstafað og meira til.

Síðustu mánuðina hefur svo fast að sorfið, að bankarnir hafa neyðzt til að stöðva yfirfærslur að verulegu leyti. Vörur hafa hrúgazt upp á skipaafgreiðslum, sem eigi hefur verið unnt að greiða vegna skorts á gjaldeyri, þótt leyfi væri fyrir hendi. Landsbankinn hefur orðið að taka gjaldeyrislán til bráðabirgða og það þó litt hrokkið upp í þær miklu kröfur, sem fyrir liggja. Fyrirmæli hafa verið gefin til viðskiptaráðs um að gefa ekki út leyfi fyrir öðru, en lífsnauðsynjum og brýnustu þörfum framleiðslunnar, og hefur þó framkvæmd þeirrar stefnu ekki náð að forða frá þeim hnút, sem þessi mál eru komin í, enda ekki við því að búast, þar sem sú ráðstöfun var ekki gerð fyrr en í febrúarmánuði s.l., en þá var öllum gjaldeyrisinneignunum þegar ráðstafað.

Dráttur á sölu og útflutningi á sinn þátt í því að gera sjálf yfirfærsluvandræðin stórkostlegri nú þessar vikur, en þó því hefði ekki verið til að dreifa, væri gjaldeyrir samt þrotinn, og það raskar þá ekki þeirri heildarmynd, sem ég hef dregið upp.

Menn verða því að horfast í augu við það, að gjaldeyrisinnstæður þjóðarinnar, sem fyrir rúmum tveimur árum voru nærfellt 600 milljónir, eða sem svaraði 8-10 ára útflutningi fyrir stríð, eru ekki lengur til sem varasjóður landsmanna, sem hægt sé að gripa til, ef eitthvað ber út af. Og þær geta heldur ekki staðið undir þeim greiðslum vegna margháttaðra framfaramála, sem nauðsynlegt er að inna af höndum á næstu misserum.

Þjóðin verður að horfast í augu við, að allt það, sem hún ver til uppbyggingar atvinnulífi og til framfara, verður héðan af að takast af útflutningsverðmæti hvers árs. Ég efast um, að menn hafi enn gert sér grein fyrir því, hversu gífurlega breytingu þetta boðar. Renna má þó grun í þetta með því að gera sér ljóst, hversu miklum gjaldeyri hefur verið ráðstafað nú undanfarið, og gizka síðan á, hvað til ráðstöfunar muni geta orðið á næstunni. Árið 1945 voru notaðar 427 millj. ísl. kr. í erlendum gjaldeyri og árið 1946 508 millj. kr., eða samtals einn milljarður á þessum tveimur árum eða að meðaltali 500 millj. kr. á ári. Til samanburðar má geta þess, að útflutningur ársins 1946 nam 291 millj. kr. og árið 1945 267 millj. kr.

Ekki vil ég spá um það, hverjar gjaldeyristekjur þjóðarinnar kunna að verða á næstunni, en það er þó augljóst öllum, að þjóðin hlýtur á næstu árum að verða að nota stórkostlega miklum mun minna af erlendum gjaldeyri, en gert hefur verið, ef hún ætlar ekki að glata fjárhagslegu sjálfstæði sínu. Það gæti skipt hundruðum milljóna á ári, sem verja yrði minna til vörukaupa, en gert hefur verið nú um skeið.

Um síðustu áramót var þannig ástatt um afkomu sjávarútvegsins, sem aflar útflutningsverðmætisins, að vonlaust var talið, að sjávarútvegurinn yrði rekinn af kappi og að unnt yrði að fá menn til starfa á fiskiflotanum, nema með því móti, að fiskverðið yrði hækkað um 30%. Var þá gripið til þess úrræðis í nauðvörn að taka ríkisábyrgð á þessu útflutningsverði fisksins, enda þótt engir samningar lægju fyrir um sölu aflans og í landinu lægju talsverðar birgðir af óseldum sjávarvörum frá fyrra ári.

Í allan vetur hafa sjávarafurðir verið framleiddar út á þessa ábyrgð og þrátt fyrir ábyrgðarverðið hafa verið miklir erfiðleikar á því, að sjávarútvegurinn gæti fengið það vinnuafl, sem hann hefur þurft.

Frá því að ríkisstj. tók við störfum, hafa nefndir unnið að samningum um sölu á útflutningsvörum landsmanna, og er þeim ekki lokið enn, en augljóst er, að þess er enginn kostur að selja alla framleiðslu landsmanna fyrir ábyrgðarverð. Jafnframt er augljóst, að sá fiskur, sem seljast kann fyrir ábyrgðarverð, verður raunverulega seldur langt yfir því markaðsverði fyrir fisk, sem nú gildir og aðrir bjóða. Takist slíkar sölur á einhverjum hluta framleiðslunnar nú í þetta sinn, verður það einvörðungu vegna þess, að samtímis sölu fisksins er samið um sölu á öðrum sjávarafurðum, sem eru meir eftirsóttar nú sem stendur, og þær látnar fylgja með fiskkaupunum. Allar aðrar fiskframleiðsluþjóðir, en Íslendingar, bjóða fisk sinn ódýrar, en þeir. Það þýðir ekki annað en horfast í augu við þetta, og mun það liggja gleggra fyrir innan skamms.

Ástandið í landbúnaðinum er þannig, að hann getur með engu móti keppt um vinnuaflið við aðra atvinnuvegi. og fólkið hefur flykkzt úr sveitum til kaupstaða og kauptúna og þó einkum eða nær einvörðungu til Reykjavíkur, þegar lítið er á fólksflutningana í heild.

Báðir undirstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar eru í vandræðum með vinnuafl, beinn samdráttur á sér stað í landbúnaðinum, og aukning sjávarframleiðslunnar er ekki í neinu hlutfalli við það, sem hefði getað orðið og þurft hefði að vera.

Fiskábyrgðarverðið, sem er hærra en staðizt fær í viðskiptum við markaðsþjóðirnar, svo sem að hefur verið vikið, er miðað við vísitölu 310 stig. Þegar núverandi ríkisstj. tók við völdum, var vísitalan á hraðri leið upp á við, en tekizt hefur að halda henni niðri með bráðabirgðaráðstöfunum. Nú mundi vísitalan vera á milli 320–330 stig, ef ekkert hefði verið að gert síðustu mánuði. og afleiðing þeirrar hækkunar hefði verið óbærileg fyrir sjávarútveginn og lagt grundvöll að áframhaldandi hækkun. Hins vegar kostar milljónatugi að halda vísitölunni, þar sem hún er nú, og vaxandi kostnaður, ef ekki verða gerðar ráðstafanir til þess að breyta því fjárhagskerfi, sem við nú búum við.

Þegar upp er brugðið mynd af ástandinu, þarf að taka fram, að þjóðin á nú fullkomnari bátaflota en áður og að á næstu mánuðum endurnýjast togaraflotinn að verulegu leyti með nýjum skipum. Þótt þessu sé til að dreifa, væri fásinna að draga af því þá ályktun, að Íslendingum verði mögulegt á næstu mánuðum og misserum að halda framleiðslunni gangandi, hvað þá að halda uppi blómlegu atvinnulífi, án þess að minnka verðbólguna og lækka framleiðslukostnaðinn, og það væri jafnmikil fásinna að líta svo á, að gjaldeyristekjur þjóðarinnar af framleiðslunni einni saman gætu orðið svo stórfelldar á næstu misserum, að komizt verði hjá því að minnka stórkostlega gjaldeyrisnotkun þjóðarinnar til margs konar eyðslu og neyzlu, svo framarlega sem menn ekki ætla sér að láta uppbyggingu atvinnuveganna og framkvæmdir helztu nauðsynjamála stöðvast alveg.

Í nóvembermánuði s.l. var gert yfirlit um það, hvernig ástatt væri um framkvæmdir í sjávarútvegsmálum, aðrar en skipa- og bátakaup. Þá sýndi það sig, að fullgerðar framkvæmdir í þessari grein á árinu 1945 námu 6.4 millj. kr., að fullgerðar framkvæmdir 1946 námu 6,1 millj. kr., að framkvæmdir, sem unnið var að, en ólokið þá, námu 42,2 millj. kr. og að fyrirhugaðar framkvæmdir á næstunni námu 55,4 millj. kr. Þó að þarna sé tekinn sjávarútvegurinn einn, þá vitum við öll, að hinu sama er til að dreifa í landbúnaðarmálum, raforkumálum, samgöngumálum og þá ekki sízt um íbúðarhúsabyggingar. Hitt vita menn einnig, og er þó nauðsynlegt, að það sé undirstrikað, til þess að menn geri sér grein fyrir því, við hvað er að glíma. að fjáröflun til þessara þýðingarmiklu framkvæmda, sem mjög margar standa nú hálfgerðar, hafa með öllu stöðvazt um lengri tíma.

Fjárhagsástandið í landinu hefur verið þannig um langan tíma, að þess hefur enginn kostur verið að útvega lán, þótt fullkomnustu tryggingar hafi verið í boði. ríkisskuldabréf hefur ekki verið hægt að selja og ekki hægt að fá lán með ríkisábyrgð. Íbúðarhúsabyggingar annarra en þeirra, sem fullar hendur hafa fjár, eru ýmist algerlega stöðvaðar, sumar fyrir nokkuð löngu, eða að stöðvast. Bankarnir hafa fest langsamlega mestan hluta af því fjármagni, sem þeir höfðu laust, og samt er ástandið svona.

Samkvæmt upplýsingum, sem ég hef fengið frá fyrstu hendi. námu útlán þjóðbankans um síðustu mánaðamót ca. 407 millj. Af því voru lausaskuldir ríkissjóðs og ríkisstofnana ca. 85 millj. (Þar í útlagt vegna togarakaupa.) Föst skuldabréfalán bæjar- og sveitarfélaga, ríkis og með ríkisábyrgð ca. 84 millj., og lán bæjarfélaga og stofnana þeirra ca. 20 millj. Þetta nemur samtals ca. 190 millj. í opinberum lánum, eða nærfellt helmingi af öllum útlánum þjóðbankans.

Öngþveitið á lánamarkaðinum á sér ýmsar ástæður. Fjárfestingin hefur verið mjög mikil undanfarin misseri, eins og gjaldeyrisástandið sýnir, og hin almenna eyðsla enn stórkostlegri, og þess vegna hefur fjármagn beinlínis gengið mjög til þurrðar frá því, sem var. Hér kemur og til greina, að sívaxandi verðbólga og ástand atvinnuvega og fjármála yfirleitt hefur skapað þá skoðun, að peningar væru sífellt að verða minna og minna virði, og komið þeirri trú inn hjá mönnum, að enda mundi með gengishruni. Þetta hefur auðvitað leitt til aukinnar eyðslu og til þess, að menn hafa ekki viljað binda peninga sína til langs tíma, heldur hafa þá til taks, til notkunar næsta dag, ef tækifæri byðist.

Það er táknrænt fyrir ástandið í þessum efnum, að ríkisstj. situr uppi með lánsheimildir og ábyrgðarheimildir, sem nema hundruðum milljóna, en ekki hafa reynzt nothæfar nema að litlu leyti og þá helzt þannig, að þjóðbankinn hefur lagt til féð.

Lítum þá loks á fjárhagsafkomu ríkissjóðs og afgreiðslu fjárlaga. Á árinu 1946 munu tekjur ríkissjóðs hafa eftir síðustu upplýsingum, numið nærfellt 200 milljónum, en voru áætlaðar í fjárlögum 122 milljónir. Umframtekjur hafa því orðið 75–78 millj. kr. Gjöld á rekstrarreikningi munu reynast 173–175 millj. og tekjuafgangur á rekstrarreikningi er því um 22 millj. kr., en útgjöld á sjóðsyfirliti eru svo há, að greiðsluhalli hefur orðið á árinu 1946. Var yfirdráttur ríkissjóðs á hlaupareikningi í landsbankanum 1. janúar 1947 7.9 millj. kr., 1. febrúar nam yfirdrátturinn 14,6 millj. kr.

Fjárlagafrv., sem lá fyrir þessu þingi, þegar núverandi ríkisstj. tók við, gerði ráð fyrir 146 millj. kr. rekstrarútgjöldum, en var þó ekki reiknað með hækkun vísitölunnar, heldur 290 stig lögð til grundvallar í frv. og ekki gert ráð fyrir neinum greiðslum til þess að borga niður dýrtíðina, enda þótt til þess hefðu verið notaðar um 20 millj. á árinu 1946.

Þegar frv. þetta hafði verið athugað til hlítar af núverandi stjórn, kom í ljós, að afla þurfti a.m.k. milli 40–50 millj. kr. nýrra tekna, ef standa átti við skuldbindingar þær, sem á ríkissjóð hafa verið lagðar með löggjöf síðustu missera, gera ráð fyrir svipuðum verklegum framkvæmdum og áður og koma í veg fyrir, að vísitalan færi upp fyrir 310 stig.

Ég hef nú minnzt á örfáar staðreyndir, sem nauðsynlegt er að hafa í huga, og skal ég þá víkja nokkuð að stjórnarstefnunni, eins og hún er mörkuð í sjálfum stjórnarsáttmálanum og frv. þeim og tillögum, sem ríkisstj. hefur lagt fyrir Alþ.

Fyrst er þá að nefna fyrirhugaða stjórn á fjárfestingunni. Um það efni hefur verið lagt fram frv. samkvæmt stjórnarsáttmálanum. frv. um fjárhagsráð. Megintilgangur þess er sá að ná tökum á framkvæmdum í landinu til þess að geta tryggt það, að þær framkvæmdir, sem nauðsynlegastar eru þjóðinni og mest horfa til framfara, sitji fyrir um efni, vinnuafl og fjármagn, og enn fremur, að hægt sé að hafa stjórn á því, í hve miklar nýbyggingar er ráðizt, og þannig koma í veg, fyrir þá ofþenslu og þá upplausn, sem af því hlýtur að stafa fyrir atvinnuvegi landsins og framkvæmdirnar sjálfar, ef miklu meira er tekið fyrir í einu, en þjóðin er fær um að ráða við. Enn fremur er þetta gert til þess, að auðveldara sé um vik til þess að eiga frumkvæði að nauðsynlegum framkvæmdum, ef það sýnir sig, að þær eru ekki teknar upp án afskipta ríkisvaldsins.

Þessi skipan er þjóðinni lífsnauðsyn, hefði þurft að vera komin á áður, eins og framsóknarmenn hafa þráfaldlega bent á, og þegar nú er svo komið, að landsmenn hafa ekki á neitt að treysta annað en útflutningsverðmæti hvers árs um sig til öflunar nýrra tækja til landsins og standa undir framförunum, ber margfalda nauðsyn til að koma þessari skipan á.

Í stjórnarsáttmálanum og frv. til laga um fjárhagsráð er einnig mörkuð stefna stjórnarinnar í verzlunarmálum, og segir þar um það m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Að neytendur eigi kost á að kaupa neyzluvörur sínar og framleiðendur rekstrarvörur sínar á hagkvæmasta hátt og vörukaup til landsins og vörudreifing innanlands gerð eins ódýr og hagkvæm og frekast er unnt.“

Enn fremur segir í stjórnarsáttmálanum: „Ríkisstj. leggur á það áherzlu, að innflutningsverzluninni verði háttað svo, að verzlunarkostnaðurinn verði sem minnstur. Reynt verði, eftir því sem frekast er unnt, að láta þá sitja fyrir innflutningsleyfum, sem bezt og hagkvæmust innkaup gera og sýna fram á, að þeir selji vörur sínar ódýrast í landinu, hvort sem þar er um að ræða einstaklinga eða félög.“

Þannig er stefnan mörkuð í verzlunarmálum í sambandi við ráðstafanir í fjárfestingar- og gjaldeyrismálum, en það er svo bæði um stjórn á fjárfestingunni og framkvæmdir í viðskiptamálum, að þar verður mest undir sjálfri framkvæmdinni komið á löggjöfinni, og er þannig frá gengið í stjórnarsamningnum og frv. um fjárhagsráð, að þessi málefni heyra undir ríkisstj. alla. Reynslan verður að sýna, hvernig til tekst að framkvæma þá stefnu, sem mörkuð er í sáttmálanum.

Það er ætlun ríkisstj. með löggjöfinni um fjárhagsráð m.a. að minnka eyðslu, bæta verzlunarástandið og tryggja það, að nauðsynlegustu framkvæmdir sitji í fyrirrúmi.

Ég hef áður lýst öngþveiti því, sem ríkt hefur um öflun lánsfjár til nauðsynlegustu framkvæmda. Í því efni hefur í sambandi við stjórnarmyndunina verið samið um fyrsta skrefið, það er að segja allsherjar eignakönnun, sem gera á til þess að draga laust fjármagn, sem skotið hefur verið undan skattlagningu, inn til ríkisins og verja því þaðan aftur til þess að standa undir þeim framkvæmdum, sem mestu máli skipta.

Fer ég ekki nánar út í það mál hér, en líklegt er, að frekari ráðstafanir verði að gera í þessum efnum, áður en langt um liður.

Kommúnistar gera sér tíðrætt um lánsfjáröflun til framkvæmda. Þeir segja, að engar áhyggjur hafi þurft eða þurfi að hafa í þeim efnum. Allt sé hægt að gera, allir geti fengið óskir sínar uppfylltar, og menn geti lifað hátt — á lánum frá landsbankanum. Það er engu líkara en að telja eigi mönnum trú um það, að bankastjórn landsbankans geti gefið út seðla takmarkalaust og þjóðin byggt afkomu sína á því, án þess að það hefni sin. Við sjáum nú afleiðingar ofþenslunnar og eyðslunnar, sem þegar er orðin, í gjaldeyrisskortinum og afkomu atvinnuveganna.

Hvernig halda menn, að hér líti út eftir nokkur misseri, ef farið væri að ráðum kommúnista um seðlaútgáfu og lánastefnu þjóðbankans? Hagfræðingar, tilnefndir af fjórum flokkum, athuguðu þessar kenningar kommúnista í haust, og niðurstaða þeirra var sú, að þessi leið, að skylda þjóðbankann til þess að leggja fram fjármagn, án tillits til þess, hvernig ástatt væri um fjárráð bankans, hlyti að auka verðbólgu og fjárhagsupplausn og væri því ófær. Hagfræðingarnir segja svo um þetta úrræði:

„Annar möguleiki, sem til greina kæmi, væri sá, að landsbankinn af fúsum vilja eða með lagaboðum lánaði mikið fé til nýsköpunarframkvæmdanna, ýmissa opinberra framkvæmda og til byggingar íbúðarhúsa. Þetta mundi viðhalda og auka þá ofþenslu. sem nú á sér stað, skrúfa kaupgjald og verðlag áfram upp á við og auka enn misræmið á milli útflutningsatvinnuveganna og fjárfestingarframkvæmdanna og jafnvægið í greiðsluviðskiptum við útlönd.“

Fulltrúi Sósfl. átti sinn þátt í því að kveða upp þennan dóm yfir kommúnistum og ábyrgðarlausum vaðli þeirra um fjáröflun og framkvæmdir og eyðileggja þar með þennan Kínalífselixír kommúnista, sem notaður hefur verið að undirstöðu í ábyrgðarlausu tali þeirra undanfarið og enn þann dag í dag.

Hitt er svo óskylt þessu skrafi kommúnista, að útlánastefna bankanna verður að vera í samræmi við stefnu þings og stjórnar í atvinnu- og fjárhagsmálum — það er hægt að tryggja í framkvæmdinni, þar sem allir bankarnir eru ríkiseign.

Þótt bankarnir geri sitt, þá verður lánsfjáröflun mikið vandamál á næstunni. Eins og ég sagði áðan, er eignakönnun þar fyrsta skrefið.

Þá vil ég víkja að dýrtíðarmálinu.

Það er stefna ríkisstj. að vinna að því af alefli að stöðva hækkun dýrtíðarinnar og framleiðslukostnaðarins og vinna að lækkun hans. Í því skyni verður leitað til samtaka launastéttanna og samtaka framleiðenda til sjávar og sveita til að gera ráðstafanir gegn frekari vexti dýrtíðarinnar og um leiðir til lækkunar. Það er samkomulag milli stjórnmálaflokkanna að greiða niður fyrst um sinn vöruverð af ríkisfé svo mikið, að vísitalan hækki ekki frá því, sem nú er.

Höfuðáherzlan er lögð á að stöðva fyrst hækkun dýrtíðarinnar og vinna síðan að lækkun hennar. Sú leið, að greiða niður aukningu dýrtíðarinnar, sem stafar af verðhækkun erlendra vara, er aðeins bráðabirgðaleið, á meðan reynt er að skapa samtök um frekari ráðstafanir, sem flestir viðurkenna nú orðið, að verður að gera, svo framarlega sem forða á frá algeru hruni, stöðvun framkvæmda og atvinnuleysi.

Framsfl. er það vel ljóst, að þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til bráðabirgða í þessum efnum, eru ekki fullnægjandi frambúðarráðstafanir. En í þessu sambandi þykir rétt að undirstrika sérstaklega, að Framsfl. vildi samt sem áður vera með í því að mynda samtökin um þessa ríkisstj. og þá fyrst og fremst vegna þess, að honum er ljóst, að fyrsta skrefið varð að vera í því fólgið að stöðva sig á barmi gljúfursins og að slík stöðvun var undirstaða þess, að hægt væri að rétta við. Augljóst var og, að fengjust engin samtök gegn verðbólgunni nú, þá hlaut hún að vaxa risaskrefum frá mánuði til mánaðar og ástandið verða því óviðráðanlegra sem lengra liði.

Fyrstu ráðstafanirnar gegn verðbólgunni eiga að verða stjórnin á fjárfestingunni, framkvæmd verzlunarstefnunnar, sem ákveðin er í stjórnarsáttmálanum, eignakönnunin, stöðvun vísitölunnar með bráðabirgðaúrræðum fyrst í stað og almennt viðnám gegn öllum ráðstöfunum, sem aukið geta verðbólguna. Bráðlega verða frekari ráðstafanir að koma til, og kem ég að því síðar. En ég vil leggja áherzlu á, að hefðu ekki náðst samtök nú í vetur um fyrstu sporin, þá hefðu menn nú þegar verið búnir að missa öll tök á þessum málum.

Það má vera, að þjóðin beri ekki gæfu til að þola þær ráðstafanir, sem óhjákvæmilegt er að gera, áður en langt um líður, ef koma á í veg fyrir algert öngþveiti. Færi svo, mundi kannske margur segja, að þessi samtök, sem nú hafa verið gerð um byrjunarspor, hefðu orðið að litlu gagni. Ekki mundi ég telja það réttmætt. Ég mundi benda á það, að þessi samtök hefðu þó gefið þjóðinni tækifæri til þess að hugsa sig um á síðustu stundu, örlagastundu, áður en hún velur um það tvennt, sem nú er um að velja, hlíta forystu kommúnista og steypa sér ofan í gljúfrið eða horfast í augu við staðreyndir og leggja á sig fórnir og lífsvenjubreytingar til þess að geta lifað farsælu framfaralífi, þótt vera þurfi við minni eyðslukost en tíðkazt hefur um skeið.

Stefnu ríkisstj. í atvinnumálum verður bezt lýst með því að vísa til eftirfarandi ákvæða í stjórnarsáttmálanum:

„Að atvinnuvegir landsmanna verði reknir á sem hagkvæmastan hátt á arðbærum grundvelli og stöðvist ekki vegna verðbólgu og dýrtíðar, að allir framleiðslumöguleikar séu hagnýttir til fulls og öllum verkfærum mönnum tryggð næg og örugg atvinna, að öllum vinnandi mönnum og þá sérstaklega þeim, er stunda framleiðsluvinnu til sjávar og sveita, séu tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína, en komið í veg fyrir óeðlileg sérréttindi og spákaupmennsku, og að áframhald verði á öflun nýrra og fullkominna framleiðslutækja til landsins, eftir því sem gjaldeyrisástæður og vinnuafl leyfir frekast, enda verði tryggt fé til framkvæmdanna jafnóðum.“

Þessi eru höfuðsjónarmiðin í atvinnumálum. Við þau er miðað frv. um fjárhagsráð. Við þau eru miðaðar ráðstafanir ríkisstj. til þess að halda verðbólgunni í skefjum. Við þau eru miðaðar ráðstafanir ríkisstj. í landbúnaðarmálum, sem tryggja eiga stéttarsamtökum bænda réttmæta viðurkenningu og bændastéttinni réttlátt afurðaverð, og við þessi höfuðsjónarmið verður ríkisstj. að miða framhaldstillögur sínar um úrlausn vandamálanna.

Ég skal taka það fram, að ég ræði ekki að þessu sinni um stefnu ríkisstj. í landbúnaðarmálum, þar sem hæstv. landbrh. mun gera því efni skil annað kvöld.

Í stjórnarsamningnum er ákveðið að afgreiða að minnsta kosti rekstrarhallalaus fjárlög. Um tvær leiðir var að velja: Gerbreyta löggjöf síðustu þinga, skera niður verklegar framkvæmdir og leggja þó á einhverja nýja skatta eða þá að afla nýrra tekna til þess að kosta löggjöfina, halda uppi eðlilegum verklegum framkvæmdum og gera bráðabirgðaráðstafanir gegn vexti dýrtíðarinnar. síðari leiðin var valin, og verður því gerð tilraun til þess að halda áfram þetta ár án stórfelldra breytinga á útgjaldalöggjöf landsins. En þetta kostar mikið fé, 40–50 milljónir umfram þær tekjuvonir, sem fyrir voru. Það var ekki auðvelt verk að finna fjáröflunarleiðir. Tekjuskatturinn er svo hár, að ekki kom til mála að hækka skattstigann, a.m.k. ekki svo að neinu verulegu næmi. Aðalatriðið um beinu skattana er að tryggja og skerpa framkvæmd laganna. Eignakönnunarféð getur ekki orðið notað til almennra fjárlagaútgjalda, jafnvel helzt ekki til venjulegra verklegra framkvæmda ríkissjóðs. Eignakönnunarféð þyrfti fyrst og fremst að nota til þess að leysa eitthvað af hinni gífurlegu þörf fyrir lánsfé til framkvæmda með hagstæðum kjörum. Það var því ekki hægt að byggja á því við afgreiðslu fjárlaganna. Leita varð samkomulags um aðrar tekjuöflunarleiðir í því sambandi, og komu tillögur fram, sem ekki náðu samþykki, en að endingu var samið um þær leiðir, sem farnar voru.

Áfengi og tóbak var hækkað stórlega í verði, skattur á bílum og benzíni var hækkaður og loks voru hækkuð almenn aðflutningsgjöld, en undanskildar þessum hækkunum eru ýmsar helztu neyzluvörutegundir og vörur til framleiðslu bæði til lands og sjávar. Þessum ráðstöfunum fylgdi sú ákvörðun ríkisstj. að greiða niður þær hækkanir, sem verða kynnu á vísitölunni vegna þessara ráðstafana, og er með því fyrir það girt, að þær verði til þess að skapa nýja verðbólguöldu, og þá um leið loku fyrir það skotið, að þær verði til þess að rýra afkomu þeirra, sem taka laun eftir vísitölu og miða neyzlu sína við grundvöll hennar.

Kommúnistar æptu þegar mjög í móti þessari ríkisstj., og er það óp nú orðið að öskri. Hafa þeir sérstaklega hrópað um skattahækkunartillögur stjórnarinnar og talið þær árás á launastéttirnar. Hefur mörgu furðulegu verið haldið fram í því sambandi, svo sem því, að þessar ráðstafanir þýddu 8–10% almenna launalækkun. Þessum stórlygum er haldið á loft og þær endurteknar blákalt, þótt sú staðreynd liggi fyrir, að vísitölufyrirkomulagið helzt óbreytt eins og verið hefur, að verðhækkanir, sem skattarnir kunna að valda, koma annaðhvort fram í hækkaðri vísitölu og þar með hækkuðu kaupi eða þá að gera verður ráðstafanir á móti til verðlækkunar, svo að framfærslukostnaður hækki ekki og vísitalan standi í stað. Hvort sem ofan á yrði, þá er engra sérfórna krafizt af launafólki í þessu sambandi.

Auðvitað koma hinir nýju skattar viða við, þótt þeir komi ekki niður á launamönnum sérstaklega. En þegar menn meta réttmæti þess, sem gert er, þá verða menn að leggja fyrir sig þessar spurningar: Átti heldur að gefa dýrtíðinni lausan tauminn eða átti að skera niður eða jafnvel fella niður verklegar framkvæmdir? Jafnframt verða menn að gera sér grein fyrir því, hver tekjuskatturinn er hér orðinn og útsvörin og að eignakönnunarfé gat ekki orðið notað til almennra útgjalda, og loks, að ríkisstj. er studd af þremur flokkum og ekki var hægt að fara aðrar leiðir en þær, sem allir vildu samþykkja.

Enn fremur er áríðandi, að menn loki ekki augunum fyrir því, að 40–50 millj. króna nýjar álögur til ríkissjóðs nú, sérstaklega vegna löggjafar síðustu ára og verðbólgunnar, sýna það glöggt með öðru, að svo búið getur ekki staðið til frambúðar.

Tilraunir kommúnista til þess að koma af stað æsingum og illindum meðal launastéttanna sérstaklega út af tekjuöflunarlögum stjórnarinnar, enda þótt vísitölufyrirkomulaginu sé haldið og teknanna aflað til þess að halda uppi verklegum framkvæmdum og fullri atvinnu og til þess að koma í veg fyrir vöxt verðbólgunnar og stöðvun framleiðslunnar, — þessar æsingatilraunir minna á áflog út af smámunum um borð í sökkvandi skipi.

Eða hver er svo sljór, ef hann skoðar gjaldeyrisskortinn, söluhorfurnar, dýrtíðina, framleiðslukostnaðinn, fjárlögin og skattana, að hann ekki sjái og viðurkenni, að við munum hafa annað þarfara að gera, Íslendingar, á næstu mánuðum en að rífa okkur hása hver upp í annan út af bráðabirgðaráðstöfunum, eins og þessum tollaráðstöfunum, sem að hagfróðra manna athugun gætu hækkað vísitöluna um 6–7 stig, ef tollarnir fengju að koma fram í vöruverðinu að fullu? En 6–7 vísitölustig eru rúmlega 2% hækkun á framfærsluvísitölunni — en ekki einu sinni þessi 2% er þeim ætlað að bera, sem laun sín fá mæld eftir vísitölunni.

Það er óhætt að segja það með fullkominni vissu, að ríki sá hugsunarháttur í landinu. að kommúnistar geti nú notað samtök manna til þess að knýja af stað nýja verðbólguöld, þá er vonlaust, að náð verði þeim tökum á atvinnu- og fjármálum þjóðarinnar, sem verið er að reyna að mynda samtök um. Þá fellur skriðan, án þess að nokkuð verði við ráðið, hvar hún fellur eða hvar hún nemur staðar.

Hávaði kommúnista um þessar mundir sætir engri furðu. M.a. eru þeir að draga athygli frá því, hversu komið er fyrir þeim. Þeir áttu sæti í ríkisstj., meðan verið var að eyða stríðsgróðanum — þeir lofuðu því, að fara skyldi inn í rottuholurnar til fjáröflunar og taka peninga hjá þeim ríku. Þeir sviku þetta og áttu þátt í að koma á veltuskattinum, sem lagður var á allar nauðsynjar manna, jafnvel þær allra brýnustu. Þeir töluðu digurt um, að þeir skyldu gera ráðstafanir til umbóta í verzlunarmálunum og heildsalar skyldu lagðir niður við trog, en aldrei hefur átt sér stað í þessu landi annar eins óhemju stórgróði á verzlun og meðan þeir sátu í ríkisstj. Þeir áttu manna mestan þátt í að skapa verðbólguna, og þegar hv. þm. Siglf., Áki Jakobsson, skilaði af sér stjórn sjávarútvegsmálanna, þá var svo komið, að 30% verðhækkun þurfti á sjávarafurðir til þess að koma í veg fyrir stöðvun vélbátaflotans. Þeir áttu þátt í því, að samþykktir voru á Alþingi nýir lagabálkar, sem höfðu í för með sér milljónatuga útgjöld úr ríkissjóði, en svikust um að standa að því að afla fjár til þess að standa undir þessum lagabálkum. Þegar að skuldadögum kom og þeir sáu fram á erfiðleikana, sá í iljar þeim út úr ríkisstjórn, í stað þess að með réttu var hægt að krefjast þess, að þeir stæðu eins og menn að því að mæta afleiðingum sinna eigin verka. Síðan standa þeir álengdar og hrópa að þeim, sem hafa tekið að sér að leysa vandann og reyna að koma í veg fyrir algert hrun og atvinnuleysi, en tryggja framfarir.

Það helzta, sem kommúnistar hafa til málanna að leggja nú, eru tillögur um milljónatuga aukin útgjöld ríkissjóðs ofan á það, sem fyrir er, og upphrópanir og gaspur um, að allt sé hægt að leysa með því að taka verzlunargróðann — allar skatta- og tollaálögur séu óþarfar og árás á alþýðuna — það þurfti ekkert annað en að þjóðnýta verzlunina, þá sé hægt að greiða 220 millj. kr. ríkisútgjöld, nokkra milljónatugi í viðbót samkvæmt yfirboðstillögu þeirra við fjárlögin, lækka dýrtíðina og verðbólguna, borga 65 aura verð fyrir fiskinn, hvað sem söluverði hans erlendis liður, o.s.frv.

Auðvitað á að taka verzlunargróðann. Fyrst og fremst með því, að almenningur taki verzlunina í sínar hendur með félagssamtökum sínum, ráði þannig verði og njóti sannvirðis. Sé gróðinn tekinn þannig, og það þarf að gera, þá getur hann ekki líka runnið í ríkissjóðinn.

Skraf kommúnista um verzlunargróða og dýrtíð er verst fyrir þá sjálfa. Það liggur fyrir margyfirlýst hér á Alþingi af þeim, sem þekkja til samninga þeirra um stjórnarmyndun á nýjan leik undir forystu Sjálfstfl., sem fram fóru í vetur, að þeir samningar strönduðu alls ekki af hendi kommúnista á neinum skilyrðum af þeirra hálfu um að þjóðnýta verzlunina, heldur á allt öðrum atriðum, enda er það vitanlegt öllum þingheimi, að aldrei hefur staðið til, að kommúnistar settu slík skilyrði fyrir stjórnarsamstarfi í alvöru. Það vissu allir, hvað til stóð, ef kommúnistar hefðu einhverju ráðið um tekjuöflunarleiðir — þá var álagning veltuskattsins sjálfsögð á nýjan leik, og hv. þm. Siglf., Áki Jakobsson, hefur hvað eftir annað vikið að því, að ekki væri vandfarið í tekjuöflunarmálum, meðan veltuskatturinn væri ekki á lagður á ný.

Kommúnistar ættu að gera sér það ljóst, að þeir eru orðnir að athlægi um gervallt landið fyrir afstöðu sína og enginn treystir þeim. Menn brosa að fullyrðingum þeirra og orðaskaki gegn heildsölum og verzlunargróða og segja hver við annan í gamni, að það hafi verið leiðinlegt, að kommúnistar skyldu endilega þurfa að fara úr ríkisstj., þegar þeir ætluðu að fara að verða svo „voða“ duglegir að vinna fyrir alþýðuna gegn heildsölunum.

Á meðan kommúnistar áttu sæti í ríkisstj., áttu þeir fullan þátt í því að þjarma að verzlunarsamtökum almennings í landinu og unnu þeim ekki réttmæts hlutar. Þar sýndi sig áhugi þeirra fyrir því að bæta verzlunina. Það sést nú enn þessa dagana, hvernig kommúnistum ferst aðbúðin að verzlunarsamtökum almennings. Hafa þeir nú byrjað árásir á ríkisstj. fyrir að selja olíufélagi kaupfélaganna og útvegsmanna olíu- og benzíngeyma í Hvalfirði, til þess að þetta félag geti hafið olíuviðskipti og keppt við hringana, sem hér eru fyrir. Slíkur er ofsi kommúnista, að þeir hika ekki við að halda því fram, að samvinnumenn og útvegsmenn hafi gert sig að leppum fyrir herveldi og tekið að sér að draga lokur frá hurðum Íslendinga.

Allir þeir, sem stjórna mega sjálfum sér, munu meta ríkisstj. það til inntekta, að hún ráðstafaði olíustöðinni í Hvalfirði til olíusamtakanna og hafði að engu hróp kommúnista. Málsástæður hafa verið svo rækilega raktar af hæstv. utanrrh., að þar þarf ekki við að bæta.

Þetta atvik gefur hins vegar tilefni til þess, að menn rifji upp framkomu kommúnista við nokkur tækifæri, og þegar það hefur verið stuttlega gert, ætlast ég til, að kommúnistar játi það sjálfir, að það er ekki hægt að taka þá alvarlega um þessi mál. Um það hefur þjóðin hlotið reynslu, sem hefði getað orðið henni dýrkeypt. ef þeir hefðu þá verið látnir nokkru ráða. Voru það ekki kommúnistar, sem kröfðust þess, að Íslendingar hættu að færa Bretum fisk, þegar Bretar stóðu einir á móti nazistunum á stríðsárunum og ætlun nazistanna var að svelta þá til undirgefni og þar með okkur og fjölda annarra þjóða? Voru það ekki kommúnistar, sem heimtuðu, að Íslendingar gerðu viðskiptasamninga við Þjóðverja árið 1940, en vildu svo segja þeim stríð á hendur árið 1945? Voru það ekki kommúnistar, sem voru á móti herverndarsamningnum og töldu hann til landráða, en áttu ekki nægilega sterk orð til þess að lýsa ágæti hans um þær mundir, sem Bandamenn unnu styrjöldina? Voru það ekki kommúnistar, sem sneru við blaðinu nóttina, sem ráðizt var á Rússland, og sporðrenndu öllu, sem þeir höfðu áður sagt um styrjöldina, tilgang hennar og hver afstaða Íslendinga ætti að vera?

Nú vilja þeir láta rífa olíustöðina í Hvalfirði og láta menn trúa því, að standi olíutankarnir þar, þá sé hægt að geyma í þeim hernaðarolíu, en ef þeir standi annars staðar, þá sé þetta ekki hægt.

Ég held, að menn hljóti nú að skilja, að kommúnistum getur ekki verið sjálfrátt í þessum efnum og það er ekki fremur hægt að taka alvarlega nú kröfur þeirra um að ráðast á olíutankana og jafna þá við jörðu og landráðabrigzl þeirra í því sambandi, en unnt var t.d. eða nokkurt vit í að taka til greina kröfur þeirra um að leggja viðskiptabann á Breta, þegar þeir vörðust nazistunum einir.

Ég og margir fleiri vorum þá kallaðir landráðamenn fyrir að fylgja þeirri viðskiptastefnu og þeirri stefnu í sambúðinni við lýðræðisþjóðirnar, sem færði Íslendingum ekki aðeins fjármagn það, sem þjóðin eignaðist á stríðsárunum, heldur einnig fulla viðurkenningu lýðræðisþjóðanna á stofnun lýðveldisins. Hvernig halda menn, að þjóðin væri nú á vegi stödd, ef landráðahrópum kommúnista þá hefði verið gaumur gefinn og þeir einhverju látnir ráða um þessi vandasömu málefni?

Kommúnistar ættu aldrei að minnast á neitt, sem minnti þjóðina á framkomu þeirra undanfarin ár, og ekki ætti að vera vandasamt fyrir kjósendur landsins að sjá í gegnum vefnað þeirra. Aðstaða þeirra í utanríkismálum er fræg að endemum, jafnvel meðal manna, sem hafa álitið, að þeir mundu kannske reynast til einhvers nýtir í innanlandsmálum. En nú hafa þeir einnig sýnt sig í innanlandsmálum þannig, að skyni bornir menn hafá enga afsökun lengur fyrir því að efla slíkan flokk.

Nú eggja kommúnistar lögeggjan til þess, sem þeir kalla gagnráðstafanir verkalýðsins gegn ráðstöfunum ríkisstj. Ég minntist áðan á það, hver afleiðing þess hlyti að verða, ef kommúnistum tækist að fá menn til að hrinda nú af stað nýrri verðbólguöldu út af bráðabirgðaráðstöfunum ríkisstj. Kommúnistum er það vel ljóst, að sú barátta, sem þeir eggja nú til, yrði ekki háð vegna hagsmuna verkalýðsins. Það er ekki verkalýðsins hagur að loka nú öllum leiðum til þess að koma í veg fyrir stórfellda atvinnukreppu og fullkomið öngþveiti. Kommúnistar ætla sér hins vegar að beita samtökum verkalýðsins fyrir flokksvagn sinn og vilja fá pólitísk verkföll.

Engum dettur í hug að halda því fram í alvöru, að rétti tíminn til þess að knýja fram nýja verðbólguöldu sé nú, þegar hvert mannsbarn veit, að framleiðsluvörur landsmanna seljast hvergi nándar nærri fyrir það verð, sem þarf að fást með núverandi framleiðslukostnaði, og hrein atvinnukreppa er á næsta leiti, ef ekki eru gerðar gagnráðstafanir til þess að mæta því ástandi.

Í augum kommúnista mælir þetta ástand víst hins vegar með því, að nú sé hertur róðurinn. Hrunið skal koma, hvað sem það kostar. Það er og hefur verið ætlun kommúnista. Það sést bezt nú. Með nýsköpun á vörum hafa þeir undirbúið atvinnu- og fjárhagskreppu og komið málum þannig, að við erum komnir í sjálfheldu atvinnulega og fjárhagslega, á sama tíma sem aðrar þjóðir, sem svipaða atvinnu stunda og við, búa við glæsilega uppgangstíma og batnandi fjárhag.

Nú liggur allt annað fyrir mönnum en að deila um það, hvort auka megi verðbólguna. Nú liggur fyrir að gera sér grein fyrir því, að þjóðin hefur um tvennt að velja: að taka á sig verulegar fórnir til þess að koma jafnvægi á í atvinnu- og fjármálalífi landsins og koma í veg fyrir það, að þjóðin glati fjárhagslegu sjálfstæði sínu, eða þá að fylgja nú forystu kommúnista í nýrri baráttu fyrir aukningu verðbólgu og öngþveitis.

Spurningin er nú þessi: Ætla allir þeir, sem sjá hvert stefnir nú, að koma í veg fyrir, að kommúnistar noti samtök þeirra gegn hagsmunum þeirra sjálfra, eða ætla þeir að láta kommúnistum haldast uppi að gera það? Þeir geta komið í veg fyrir þetta, ef þeir vilja. Nú er síðasta tækifæri til þess að grípa í taumana, nú eða aldrei.

Auðvitað hlýtur það nú að vera öllum ljóst, að það ástand, sem nú er í atvinnu- og fjárhagsmálum, getur ekki staðið svo lengi. Þjóðin hlýtur að færa lifnaðarhætti sína og fjárhagskerfi til samræmis við þjóðartekjurnar, en þær ákveðast ekki hvað sízt af útflutningnum. Þótt menn vilji loka augunum fyrir þessu, þá neyðast menn þó að lokum til að láta í minni pokann fyrir staðreyndunum. Munurinn er hins vegar sá, að vilji menn halda svo fram sem horfir, og ég tala nú ekki um, ef menn fylgja kommúnistum í því að auka öngþveitið, þá gerast hér margvísleg ný tíðindi, áður en jafnvægið myndast að lokum. Þar á meðal þetta: ríkissjóður kemst í þrot vegna halla á ábyrgðum. ríkisábyrgð á fiski verður markleysa ein. Ríkissjóður gefst upp við að borga niður dýrtíð. Vísitalan þýtur upp. Bátar og skip hreyfa sig ekki til veiða, þar sem stórkostlegt tjón verður fyrirsjáanlegt í hverri veiðiför. Framkvæmdir stöðvast. Útflutningur dregst gífurlega saman. Þjóðin verður hlaðin vanskilaskuldum við útlönd á fáum mánuðum, svo gífurlegum, að engar líkur eru til, að hún fái haldið fjárhagslegu sjálfstæði sínu. Í stuttu máli, fátækt og örbirgð heldur innreið sína. Þetta er hrunstefnuleiðin, og fyrir henni beita kommúnistar sér með kjarabætur á vörum. Þegar þetta ástand hefur staðið um skeið, þvingast jafnvægið á, en þá ætlast líka kommúnistar til, að þeir hafi náð völdunum á tímabili niðurlægingarinnar.

Hin leiðin er sú, að menn myndi samtök um að koma nauðsynlegu jafnvægi á með því að taka á sig fórnir. áður en öllu er tapað, og tryggja með því velmegun og framfarir, þótt erfiðlega horfi sem stendur. Þessi leið krefst meiri þroska, meiri skilnings, meiri viðsýni en hin stefnan, en hvar er þá menntun Íslendinga, ef enginn sér nema niður fyrir tær sér, er til á að taka og mest reynir á, og svo reynist, að menn liggi flatir fyrir lýðæsingum á örlagastundum? Þessi leið krefst þess, að menn séu ekki bara fullir sjálfselsku og eigingirni og umfram allt ekki haldnir skammsýni. Menn verða að rífa sig upp úr daglega mókinu og ganga með áhuga að starfinu, sem fram undan bíður, og það er sérstök skylda þeirra, sem hafa hagnazt undanfaríð, að ganga á undan og taka á sig mestu byrðarnar.

Fyrsta sporið í þessum málum hefur ríkisstj. stigið með ráðstöfunum til stöðvunar dýrtíðarinnar um stundarsakir. En sú ráðstöfun er fyrst og fremst grundvöllur að öðrum víðtækari.

Stærsta sporið er, að nægilega margir sameinist gegn tilraunum kommúnista til þess að reisa nýja verðbólguöldu. Þá kemur að því, sem mikilvægast er, og það er að sameina nógu marga um leiðir út úr vandanum, sem til frambúðar séu, og það þolir ekki langa bið.

Þjóðin á mikið undir því, hvernig það tekst.