29.04.1947
Sameinað þing: 49. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (636)
12. mál, fjárlög 1947
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Allir þeir, sem hlustuðu á eldhúsumræðurnar fyrra kvöldið, hafa vafalaust veitt því athygli, að talsmaður kommúnista hefur sérstaklega veitzt að Alþfl. og forustumönnum hans á þann veg, að það lýsir ofsafullu og móðursjúku hatri og heift. En þannig er og hefur verið afstaða kommúnista um heim allan. Þeir hafa aldrei þreytzt á því að kalla jafnaðarmenn sósíal-fasista, böðla og svikara, samtímis því sem þeir hafa sungið ráðstjórnarskipulaginu og hinum alþjóðlega kommúnisma lof og dýrð. Það er sama, hvort lesin er Daily Worker í London og New York, Land og Folk í Danmörku, Friheten í Noregi. Ny Dag í Svíþjóð eða Þjóðviljinn á Íslandi, alls staðar er línan ein og sama: fyrst og fremst haturssjúkar árásir á jafnaðarmenn og lofgerðarrolla um kommúnista. Kommúnistar eru óvægnir og ósvífnir andstæðingar jafnaðarmannastjórnanna í Englandi, Noregi og Svíþjóð. Í Landsþingskosningunum í Danmörku nú fyrir skömmu síðan einbeittu kommúnistar sér einna mest gegn jafnaðarmönnum og réðust sérstaklega hatramlega gegn hinum glæsilega foringja þeirra, Hans Hedtoft. Í Þýzkalandi hafa kommúnistar sérstaklega lagt í einelti hinn skelegga og hugprúða foringja þýzku jafnaðarmannanna, dr. Schumacher, sem um fjölda ára þjáðist í fangaherbúðum Hitlers.
En hvað veldur þá þessu taumlausa hatri, þessum móðursjúku og ofsafengnu árásum? Svarið liggur raunverulega í augum uppl. Þeir telja jafnaðarmennina versta þröskuld á vegi sínum gegn áformum þeirra um að beita alþýðunni fyrir þeirra pólitíska kommúnistíska vagn. Þeir vita sem er, að upplýst og þroskuð verklýðshreyfing, sem alþýðuflokkarnir styrkja og efla og hafa samstarf við, er ólíklegust til þess að ljá eyru ofstækisbrölti kommúnista. Þeir vita sem er, kommúnistarnir, að allar umbæturnar, sem alþýðuflokkarnir berjast fyrir og hrinda í framkvæmd, svo sem almannatryggingar, orlofslöggjöf, öryggislöggjöf, verkamannabústaðir, aukið skipulag og lýðræði í atvinnumálum og margt annað á líka lund, verka algerlega gegn byltingarbrölti þeirra og ofstæki.
Þess vegna veitast kommúnistar alveg sérstaklega að jafnaðarmönnum alls staðar og rægja og ofsækja foringja þeirra með öllum þeim ráðum, en þau eru mörg, sem óvandaðir og heiftúðugir ofstækismenn hafa á takteinum, enda fylgja þeir dyggilega í því efni kennisetningu hinnar illræmdu Jesúítareglu, að tilgangurinn helgi meðalið.
Ég tel rétt, meðal annars að gefnu tilefni af þessum umræðum, að nefna hér örfá dæmi um baráttuaðferð kommúnista og vinnubrögð, í árásarákafa þeirra gegn Alþfl. og trúnaðarmönnum hans.
Um nokkurra ára skeið hafa kommúnistar endurtekið staðlausar ásakanir og ósannindi í sambandi við stofnun h/f Alþýðuhússins, og smjattaði Brynjólfur Bjarnason þar á gömlum rógi og dylgjum. En þegar kommúnistar höfðu, með aðstoð nokkurra vanmetakinda eins og Sigfúsar Sigurhjartarsonar, sprengt nokkuð út úr Alþfl. og tvístrað verkalýðshreyfingunni og skipulagsbreyting hafði verið gerð á alþýðusambandinu, þá ætluðu kommúnistar sér að klófesta húseignir, sem verkalýðsfélögin og Alþfl. höfðu frá upphafi átt í sameiningu, og nota þær fyrir flokksstarfsemi sína. Þá var af eðlilegum ástæðum nauðsynlegt að koma nýju formi á hið sameiginlega eignarhald þeirra aðila, sem fyrr og síðar hafa átt þessar húseignir og eiga þær enn. Það eru samtök Alþfl. og verklýðsfélaganna í Reykjavík. Þau eiga áfram, eins og hefur alltaf verið, þessar eignir, og í verklýðsfélögunum í Reykjavík, sem eru áfram aðaleigendur þessara eigna, eru því miður allmargir kommúnistar.
Þegar kommúnistar hófu rógsferð sina út af þessum eignum, skoruðu alþýðuflokksmenn innan verklýðsfélaganna á kommúnista að bera undir dómstólana það, sem gert hafði verið í þessu máli. Lengi vel voru kommúnistar tregir til þessa, en voru að lokum neyddir til þess og hafa nú gertapað þessu máli fyrir undirrétti, og munu úrslitin í æðra rétti verða þau sömu.
Þannig er þessi rógsaðferð kommúnistanna. Það er gömul aðferð óknyttamanna að gera hróp að saklausum mönnum til þess að dylja sína eigin sekt. Það hlutverk hæfir bezt kommúnistum utan þings og innan.
Kommúnistar hafa mjög belgt sig út af heildsölunum, kallað þá afætur, sem ætti að leggja niður við trog og skera. Þeir hafa og talið þá mestu óvini nýsköpunarinnar.
En hvernig hafa þá verið framkvæmdir kommúnista í samræmi við stóru orðin?
Ég vil benda á eitt dæmi, er sýnir það glögglega.
Þegar nýbyggingarráð, sem átti að hafa með höndum framkvæmd nýsköpunarinnar, var stofnað, sótti Einar Olgeirsson fast eftir formennskunni, en varð þó að láta sér lynda að vera varaformaður, þó að sænsk blöð hafi það, vafalaust ranglega, eftir honum, að hann sé formaður þess. En aðra kröfu gerði þó Einar Olgeirsson. Hann krafðist þess, að einn af umsvifamestu og auðugustu heildsölum landsins yrði gerður að framkvæmdastjóra nýbyggingarráðs. Þessi heildsali, eins og reyndar fleiri, hefur fyrr og síðar styrkt Kommúnistafl., sérstaklega með riflegum fjárframlögum. Og Einar Olgeirsson fékk vilja sínum framgengt, en heildsalinn hafnaði þessu boði. En söm var gerð kommúnista og venjulegt samræmi á milli kenninga og framkvæmda.
Og út af áburði kommúnista í minn garð í sambandi við heildsölu vil ég gera kommúnistum eða t.d. Sigfúsi Sigurhjartarsyni, en hann þekki ég manna tekjugráðugastan, á meðan hann var í Alþfl., það tilboð, að gefa honum allt það, sem ég á í heildsölufyrirtækjum, og allan þann gróða, sem ég hef af þeim haft. En nú, þegar kynni að fara að glaðna yfir þessum hv. þm. vegna fjárvonarinnar. verð ég að hryggja hann með því, að ég á ekki neitt í neinu heildsölufyrirtæki og hef aldrei fengið eyris ágóða frá neinu slíku fyrirtæki. En það er áreiðanlega meira, en segja má um suma kommúnista. t.d. hv. þm. Siglf., Áka Jakobsson, og hv. 2. þm. Reykv. Einar Olgeirsson, en sá síðarnefndi hefur meðal annars verið hluthafi í olíufélaginu Nafta og vafalaust hlotið þar góðan ágóða. Þangað verður því Sigfús Sigurhjartarson að snúa sér og til heildsalans mikla, sem eftir kröfu kommúnista átti að verða framkvæmdastjóri nýbyggingarráðs, ef hana vill fá einhvern hluta af heildsalagróðanum.
Kommúnistar hafa það til siðs hin seinni ár að guma af ættjarðarást sinni. Þessi yfirdrepskapur þeirra kemur þó aðallega í ljós á þann hátt að ráðast á og reyna að auka andúð gegn öllum þeim erlendum ríkjum, sem ekki eru á valdi kommúnista. Allir kannast við hatur það og ofstæki, er þeir reyna að efla gegn engilsaxnesku ríkjunum, og einnig að vissu leyti gegn Norðurlöndum og þó einkum Svíum.
Þeir reyna að læða því inn leynt og ljóst, að sjálfstæði Íslands stafi óumræðanleg hætta af yfirgangi Bandaríkjanna, Bretlands og jafnvel Svíþjóðar. Barátta þeirra, ofstopi og blekkingar út af flugvallarsamningnum við Bandaríkin, sem án efa var eins og á stóð hið eina rétta í samræmi við alþjóðlegar skyldur okkar innan Sameinuðu þjóðanna, er mönnum mjög minnisstæð að endemum og ósvífni. En þegar Rússar óskuðu eftir herstöðvum á Svalbarða, kröfðust norskir flokksbræður þeirra gegn öllum öðrum flokkum, að þær yrðu samþykktar, og íslenzkir kommúnistar hrópuðu hallelúja. Þannig er afstaða kommúnista. Óvinátta, tortryggni og illúð gegn öllum þjóðum og ríkjum, sem ekki eru undir áhrifavaldi kommúnista, en blind fylgd og hlýðni við stefnu Rússa í utanríkismálum, hversu tækifærissinnuð og yfirgangssöm sem hún kann að vera.
Einkennilegur og mjög táknrænn er málflutningur kommúnista út af íslenzkum landhelgismálum. Ég hef átt þess kost að halda fram málstað Íslands á erlendum vettvangi í sambandi við landhelgismálin. En einmitt af því, að ég, sem stend í fyrirsvari Alþfl., hef haft tækifæri til þess að bera fram erlendis eindregnar kröfur um stækkaða landhelgi við Ísland og einnig að veita þar öfluga andstöðu gegn erlendum óskum um not landhelginnar og landsins fyrir erlenda fiskimenn, hafa kommúnistar reynt að segja, að hvítt sé svart, og snúið alveg við staðreyndum, í ofstæki sínu og hatri.
Haustið 1943 var ég meðal fulltrúa Íslands á alþjóðlegri fiskimálaráðstefnu í London. Hinn 14. okt. 1943 komu ákvæðin um landhelgi til umræðu. Þá flutti ég mjög ákveðna yfirlýsingu um þetta mál og gerði þar grein fyrir óskum og kröfum Íslendinga um að fá íslenzka landhelgi stækkaða og Faxaflóa friðaðan.
Vorið 1945 var ég formaður íslenzkrar samninganefndar við Svía. Af þeirra hálfu voru í samningunum bornar fram mjög eindregnar og ákveðnar óskir um aukin réttindi fyrir sænska fiskimenn, er veiðar stunda við Ísland. Á fyrsta fundinum, sem þetta kom fram, eða 7. marz 1945, er það bókað eftir mér í fundargerðinni. að það væri ómögulegt fyrir Íslendinga að uppfylla þær kröfur Svía, sem fram hefðu verið bornar. En samninganefnd Svía sat fast við sinn keip, ég á fundi 20. marz 1945 endurtóku þeir óskir sínar. Þá er bókað eftir mér, að það væri ómögulegt að veita nokkurri þjóð sérstök réttindi í íslenzkri landhelgi og bað sænsku nefndarmennina að gæta að því, að fiskimiðin við strendur Íslands væru það dýrmætasta, sem Íslendingar ættu, og væri það því lífsnauðsyn fyrir þá að vernda þau á sem öruggastan hátt, og að Íslendingar væru að gera ráðstafanir til þess að færa út landhelgi sína.
Til þess að eyða þessum óskum Svía á kurteislegan hátt varð það að ráði, að formaður sænsku samninganefndarinnar skrifaði mér bréf um tilmæli Svía í þessu efni og ég eftir viðteknum formum í bréfaskiptum á milli vinveittra þjóða tók það fram í svarbréfi mínu, að ég skyldi mæla með því, að íslenzka ríkisstj. tæki þetta til velviljaðrar athugunar.
Það var þá hin mikla synd mín að fylgja föstum kurteisisreglum í slíkum bréfaskiptum. Blekkingarnar eru svipaðar hjá kommúnistum í hvert sinn, er þeir í sjúku hatri reyna að sverta andstæðinga sína.
S.l. sumar var haldinn í Noregi fundur norrænna þingmanna. Þar var meðal annars til umræðu norræn, fjárhagsleg samvinna. Ég notaði þá tækifærið til þess að skýra afstöðu Íslands og halda fram eindregnum málstað þess til verndunar íslenzkrar landhelgi og fiskimiðanna kringum strendur landsins. Hefur þessi ræða bæði verið birt í Alþýðublaðinu og eins orðrétt í þingtíðindum fulltrúafundarins. Á þessum fundi sat og Sigfús Sigurhjartarson, og ekki varð þess vart af neinum, að hann fyndi köllun hjá sér til þess að nota þetta tækifæri til þess að halda fram málstað Íslendinga. Hann steinþagði, eins og vafalaust hefur verið viturlegast.
Ég hef dregið fram þessi atriði sem táknræn dæmi um það, hvernig kommúnistar umhverfa staðreyndum í pólitísku skyni og með það fyrir augum að svala árásarþorsta sínum gagnvart andstæðingunum.