29.04.1947
Sameinað þing: 49. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (645)

12. mál, fjárlög 1947

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti, góðir hlustendur. Þá eru eldhúsdagsumræður þessar brátt á enda. Þær hafa á margan veg verið lærdómsríkar. Kommúnistar hafa greinilega sýnt innræti sitt og hugarfar í baráttu sinni gegn hagsmunum alþjóðar og ofstæki sitt gegn andstæðingunum og þá sérstaklega Alþfl. Öll málefnaatriði þeirra hafa verið hrakin lið fyrir lið, og stendur þar ekki steinn yfir steini. Persónulegar árásir þeirra, síendurteknar og þó hraktar, og ósvífni þeirra um menn og málefni hafa þeir, sem fyrir hafa orðið, látið sér í léttu rúmi liggja og sem vind um eyru þjóta. Það, sem átti að vera sókn af hálfu kommúnista, hefur breytzt í vesala vörn, blandaða stóryrðum og upphrópunum. Sú sókn og andstaða, sem nú hefur komið fram á Alþ., er tákn um sókn meginhluta þjóðarinnar gegn upplausnarstarfsemi kommúnista. Og þess er ekki sízt þörf. Ástand í íslenzkum atvinnu- og fjármálum er að verða á þá lund, án þess að um nokkurn barlóm sé að ræða, að lítið má út af bregða, ef ekki á að skapast öngþveiti og atvinnuleysi. Þau glæfralegu áform, sem kommúnistar eru nú að undirbúa í formi pólitískra verkfalla, eru sem svikráð og árásir á alþýðu manna. En því verður að treysta, að verkalýðssamtökin láti ekki þessa pólitísku loddara og glæframenn ginna sig út í slíka ófæru.

Ríkisstj. birti stefnu sína, þegar hún tók við völdum. Hún hefur hér í umr. gert nokkra grein fyrir þessari stefnu og sýnt fram á, að hún hafi nú þegar á stuttum tíma lagt fyrir Alþ. mörg frv. í samræmi við málefnasamninginn, og önnur eru í undirbúningi. Má fyllilega vænta þess, að áfram verði haldið á markaðri braut. En það er víst og áreiðanlegt, að ekki hvað sízt er nauðsynlegt að leggja öruggan grundvöll að því stefnuskrármáli ríkisstj., að atvinnuvegir landsmanna verði reknir á sem hagkvæmastan hátt á arðbærum grundvelli og stöðvist ekki vegna verðbólgu og dýrtíðar. Að þessu mun ríkisstj. vinna af öllu kappi og að sjálfsögðu gegn harðri andstöðu kommúnista. Ég heiti á góða Alþfl.menn um land allt og aðra stuðningsmenn stjórnarinnar að aðstoða hana í áformum sínum, sem mörkuð eru í upphafi málefnasamningsins, að vernda og tryggja sjálfstæði landsins, að koma í framkvæmd endurskoðun á stjórnarskránni, að tryggja góð og örugg lífskjör allra landsmanna og áframhaldandi velmegun og að halda áfram og auka nýsköpun í íslenzku atvinnulífi.

Þetta mark hefur stjórnin sett sér. Meginhluti íslenzku þjóðarinnar skilur áreiðanlega, að því marki þarf að ná, og mun að því styðja. Góða nótt.