17.05.1947
Efri deild: 134. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (657)
215. mál, flugvellir
Frsm. minni hl. (Steingrímur Aðalsteinsson):
Herra forseti. Ég hef ekki getað orðið hv. samnm. mínum sammála um afgreiðslu þessa máls, eins og sést á nál. á þskj. 850, sem nú hefur verið útbýtt.
Þau nýmæli, sem felast í þessu frv. á þskj. 590, eru varðandi stjórn flugmála. Í frv. felst, eins og hv. frsm. meiri hl. er búinn að gera grein fyrir, að setja á stofn sérstakt flugráð fimm manna, sem skipað er eingöngu af ráðh., sem fer með þessi mál, en samkvæmt brtt., sem meiri hl. n. flytur, á Sþ. að kjósa þrjá, en ráðh. að skipa hina tvo. Þetta flugráð á samkvæmt frv. að vera næst ráðh., sem fer með flugmál, og flugmálastjóri, sem skipaður hefur verið samkvæmt eldri l., á að vera undirmaður þessa ráðs, og jafnframt á að skipta embætti hans í tvennt, eins og gert er ráð fyrir, þannig að hann á aðeins að hafa nokkurn hluta þeirra starfa, sem hann hefur gegnt, en settur sérstakur embættismaður við hlið hans, flugvallastjóri, sem á að annast rekstur flugvalla, sem ríkið á, og sömuleiðis viðhald þeirra.
Ég tel, að þessi skipun á stjórn flugmála sé að ýmsu leyti bæði óviðfelldin og óheppileg, og ég held sérstaklega, að sú skipting, sem gert er ráð fyrir á embætti flugmálastjóra, sé ekki aðeins ástæðulaus, heldur óheppileg og það muni síðar í framkvæmdinni verða erfitt í ýmsum tilfellum að skilja milli þeirra valdsviða, sem þar er verið að reyna að draga upp, og muni verða til að torvelda framkvæmd þessara mála og sízt af öllu greiða fyrir henni, eins og hv. frsm. meiri hl. gerði ráð fyrir, að verða mundi.
Ég tel mjög óviðfelldna vægast sagt þá valdasviptingu, sem raunverulega er framkvæmd með þessu frv. gagnvart núverandi flugmálastjóra. Ég held, að ef það er borið saman við valdssvið þeirra embættismanna, sem helzt má telja hliðstæða honum, vegamálastjóra, vitamálastjóra og raforkumálastjóra, þá verði því ekki neitað, að það sé mjög óviðfelldið að setja hann þannig skör lægra á sínu valdssviði en þessa embættismenn, sem telja má hliðstæða honum. Varðandi vega- og vitamál þá eru engin ráð hvorki yfir vegamála- eða vitamálastjóra eða þeim til ráðuneytis, heldur eru þeir undir viðkomandi ráðh. og einu valdamennirnir hvor á sínu sviði. Í rafmagnsmálunum hefur verið komið á þeirri skipun með raforkul. frá síðasta þingi, að raforkuráð er alls ekki sett yfir raforkustjóra, eins og nú er talað um að setja flugráð yfir flugmálastjóra, heldur er raforkuráð til ráðuneytis viðkomandi ráðh. og raforkumálastjóra. Og ef talin er þörf að setja slíkt ráð varðandi stjórn flugmála, sem ég get fallizt á, að gert sé, þá álit ég, að eigi að hafa hliðstæða skipun á því og í raforkumálum, þannig að fyrst sé ráðh. að sjálfsögðu, síðan flugmálastjóri og síðan komi þá þetta flugráð til ráðuneytis flugmálastjóra og þeim ráðh., sem með þessi mál fer, ef það er talið tryggara við undirbúning þeirra framkvæmda, sem eru þannig varðandi flugmál, að stjórn þeirra sé tryggari en ella, ef kemur til fleiri manna yfirsýn. Ég get fallizt á, að slíkt ráð sé sett upp, en þeim málum sé þá skipað hliðstætt því, sem er í raforkumálum, og ég hef miðað mínar brtt. við það, að slíkri skipun sé á komið. Hins vegar get ég ekki fallizt á, eins og ég þegar hef getið um, að embætti flugmálastjóra sé skipt í tvennt á þann veg, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég held, að það sé alveg ástæðulaust, þó að þessi mál séu orðin talsvert umfangsmikil, svo að erfitt sé fyrir einn mann að komast yfir stjórn þeirra. Bæði vega- og vitamálastjóri og ekki sízt raforkumálastjóri hafa allir hver um sig mjög umfangsmikil störf, og hefur þó ekki verið talin ástæða til að framkvæma slíka skiptingu þar, eins og hér er gert ráð fyrir, heldur hafa þeir verið látnir fá sér til aðstoðar ýmsa sérfræðinga. Vega- og vitamálastjóri hafa sína verkfræðinga og sömuleiðis raforkumálastjóri, og það er gefið mál, að flugmálastjóri þarf líka að fá starfsmenn sér til aðstoðar. Fjölda þeirra starfsmanna og þeirra kunnáttu þarf að miða við, að þeir geti leyst af hendi þau störf undir yfirstjórn flugmálastjóra, sem þarf að leysa af hendi á hverjum tíma. Þessi mál er hægt að leysa á fullnægjandi hátt án þess að kljúfa embættið í tvennt.
Ég held þess vegna, að það, sem vakir fyrir með flutningi þessa frv., og þá væntanlega fyrst og fremst fyrir hæstv. flugmrh., sem að sjálfsögðu stendur fyrir flutningi frv., sé ekki það, að verið sé að tryggja fyrst og fremst betri framkvæmd, því að það er hægt að gera með því að fá flugmálastjóra nægilega starfsmenn til að annast þessar framkvæmdir, heldur sé annað, sem þarna liggur til grundvallar, sem ég hef nokkuð komið að í nál. mínu á þskj. 850. Ég held nefnilega, að þær breyt., sem fyrirhugaðar eru í þessu frv. á stjórn flugmálanna og á valdsviði þeirra embættismanna, sem eiga með framkvæmd flugmála að gera, standi í sambandi við flugvallarsamninginn, sem gerður var við Bandaríkin s.l. haust, og þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru á honum nú og á næstu árum, meðan hann stendur í gildi. Það hefur náttúrlega komið í ljós nú þegar og á sennilega eftir að koma betur í ljós, eftir því sem tímar líða, að framkvæmd þessa flugvallarsamnings er ekki á þá leið, sem mjög var túlkað af forsvarsmönnum hans, þegar verið var að fá hann samþ. á Alþingi. Það hefur komið fram í umr. hér á þingi ekki fyrir löngu og viðurkennt af hæstv. utanrrh., að eins og hann orðaði það, væri framkvæmd samningsins ekki komin í það horf, sem til hefði verið ætlazt. Það er sem sé viðurkennt, að þeir útlendingar, sem fara raunverulega með stjórn flugvallarins, fari allmikið eftir eigin geðþótta. Ég ætla ekki að telja upp þau atriði, sem nefnd hafa verið um vanefndir samningsins hvað þetta snertir, en skal þó geta þess, að það hefur jafnvel ekki verið hirt um það af hálfu útlendinga, sem starfa þar, að framkvæma þau fataskipti, sem áttu að vera til að breiða yfir stjórn þeirra á flugvellinum, og annað er svo eftir því.
Ég held þess vegna, að þetta frv. og sú breyt., sem með því er gerð á stjórn flugmála í landinu, standi einmitt í sambandi við þá framkvæmd, sem nú lítur út fyrir, að gerð verði í sambandi við rekstur Keflavíkurflugvallarins, sérstaklega gerð með tilliti til þess að rýra vald flugmálastjóra með því að setja á stofn þetta flugráð og velja það þannig, að hægt sé að útiloka, að Sósfl. eigi þar fulltrúa og koma í veg fyrir, að Sósfl. og sá starfsmaður, sem í þessu tilfelli er sósíalisti, geti fylgzt með og haft það „kontrol“, sem hann annars hefði getað í sambandi við rekstur flugvallarins, og þess vegna sé ekki aðeins sett þetta flugráð til þess að segja flugmálastjóra fyrir verkum og takmarka valdsvið hans, heldur sé embætti hans skipt þannig, að hann hafi ekki lengur með rekstur flugvallarins að gera, heldur sé það falið sérstökum manni til að útiloka, að hann geti skipt sér af rekstri Keflavíkurvallarins. Ég slæ því föstu, að þetta er raunverulega ástæðan fyrir flutningi þessa frv. og það sé þess vegna eins konar framhald af þeirri þjónustu við erlent vald, sem hafin var með samþ. flugvallarsamningsins á sínum tíma, og nú sé verið að tryggja þeirra vald yfir flugvellinum, svo að þeir geti farið þar sínu fram óáreittir af andstæðingum samningsins og þeirra, sem mest hafa barizt gegn þeirri afgreiðslu, sem var viðhöfð í sambandi við þá samningsgerð.
Ég mun þess vegna fyrir mitt leyti standa algerlega gegn þeirri breyt., sem hér er verið að gera á yfirstjórn flugmála, en legg hins vegar til, að yfirstjórn þessara mála verði komið í það form, sem sé algerlega hliðstætt því, sem nú er komið á í rafmagnsmálum, þ.e.a.s. að næst þeim ráðh., sem fer með flugmál, komi flugmálastjóri og verði embætti hans á sama hátt og verið hefur og hann annist undir yfirstjórn ráðh. alla stjórn flugmála, en honum til aðstoðar verði sett fimm manna flugráð, en ekki skipað af flugmálaráðherra og ekki heldur með þeim hætti, sem meiri hl. n. gerir ráð fyrir, heldur sé það að öllu leyti kosið hlutbundinni kosningu af sameinuðu Alþingi, eins og gert er með raforkuráð. Þetta er það, sem felst í brtt. á þskj. 850, að í stað tveggja fyrstu gr. frv., sem ákveða bæði um flugráð og valdsvið þess og eins um skiptingu milli flugmálastjóra og flugvallastjóra, komi þær 3 gr., sem hér eru á þskj. 850 og fela í sér þá skipun, sem ég hef lýst, að fyrst komi ráðh., síðan flugmálastjóri og síðan fimm manna flugráð kosið hlutfallskosningu af sameinuðu Alþingi. Sú skipun er, eins og ég er búinn að taka fram, hliðstæð því. sem er á raforkumálum. Ég sé ekki, að hægt sé með nokkrum rökum að mæla gegn því, að það eigi að vera á annan hátt með stjórn flugmála okkar miðað við okkar eigin hagsmuni og „interessur“, og það er það eina, sem ég vil taka tillit til, en ekki hlaða undir völd þeirra útlendinga, sem illu heilli ráða nú á Keflavíkurflugvellinum, eða hindra, að Íslendingar geti á hverjum tíma haft fullkomið „kontrol“ á því, sem fram fer þar á hverjum tíma, svo að við getum búið okkur undir að losna við þessa útlendinga, sem þar eru, þegar samningstíminn er runninn út.