21.05.1947
Neðri deild: 135. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (681)

215. mál, flugvellir

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) ...... Ég lagði þá til, að sá háttur yrði á hafður, að flugráðið yrði sett yfir einstaka embættismenn, en það yrði sett undir ráðherra. Vegna þess, hve mál þessi eru nýstárleg, kemur þar margt til greina, sem menn eru ekki viðbúnir að taka til meðferðar. Mér fannst eðlilegt, að flugráð yrði skipað af ráðherra, öðrum fannst eðlilegra, að það yrði kosið af þinginu, en ekki sami háttur á hafður og um fjárhagsráð, viðskiptaráð og nýbyggingarráð. Niðurstaðan varð svo sú, að ráðið er bæði skipað af ráðh. og kosið af þinginu, hvor þessara aðila á þar sína fulltrúa, og sætti ég mig vel við þá skipan, en ég get ekki sætt mig við það, sem minni hl. leggur til, að breytt verði.