21.05.1947
Neðri deild: 135. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (682)

215. mál, flugvellir

Jónas Jónsson:

Það eru ekki nema nokkur atriði. Það eru nokkrir dagar síðan ég beindi fyrirspurn til flugmálaráðh., hann var þá ekki viðbúinn að svara, en hefur nú að öllum líkindum kynnt sér málið betur. Spurningin var um það, hve miklu fé hafi verið varið til flugvallanna. Ég hef nú fengið upplýsingar um það, að búið sé að verja til flugvallanna, síðan hann tók við þeim, á áttundu millj. kr., og býst ég þó ekki við, að það sé talið með, sem fært er á reikning veðurstofunnar og landssímans. Það væri ástæða til þess, að um þetta færu fram skýrar umr. hér á Alþ., en lítið hefur verið um það fram að þessu, og ég hygg, að ástæðan sé sú, að menn búist við því, að allt fari á einn veg með fjárhag landsins, og því geri ekki til með nokkrar upphæðir til eða frá. Ég vil vekja athygli á því, að hæstv. flugmrh. hefur ekki gert þær ráðstafanir, sem honum sem ráðh. bar að gera. Fyrstu afglöpin voru þau, og þau voru ekki gerð í ráðherratíð hans, að taka umhugsunarlaust við báðum völlunum. Menn verða eðlilega að gera sér það ljóst, að Íslendingar hafa enga möguleika til að halda við báðum völlunum, þeir hafa ekki möguleika til að halda við einum velli, hvað þá tveimur. Það, sem átti að gera, var því það að láta allar stórar flugvélar, líka þær íslenzku, vera á Keflavíkurflugvellinum, en hafa Reykjavíkurvöllinn aðeins fyrir smávélar með fámennu starfsliði. Á Reykjavíkurvellinum vinna nú um 100 manns, sem eru þar við snatt, og svo aumt er ráðslagið, að ef eitthvað þarf að gera við, verður að sækja smiði í bæinn. Hurð á einn braggann kostaði t.d. 4 þús. kr., af því að enginn þessara 100 manna gat sett hana á. Þar er líka hótel, sem litið er kunnugt og lítið auglýst, enda ráðsmennskan þar svipuð og á öðrum sviðum á vellinum. Þar eru engar ráðstafanir gerðar til upphitunar, enda er þetta stór geimur og gisinn, og umgengnin þar er líkust því, sem í sjóbúð væri, og er þetta til lítils hróðurs fyrir landið. Það hefði verið sök sér fyrir hæstv. ráðh. að fá duglegan mann yfir hótelið, eins og þá, sem eru ferstöðumenn hjá Hótel KEA á Akureyri eða hjá Jóhannesi Jósefssyni á Hótel Borg. Það er því alls ekki að vænta að þessi íslenzki flugvöllur gefi af sér neinar tekjur, þar sem engar erlendar flugvélar koma þar heldur. Að vísu hefur eitt franskt firma látið flugvélar sínar lenda þar um stundarsakir, en eftir því sem kunnáttumenn segja — ég hef ekkert vit á því —, er völlurinn ekki nægilega sterkur fyrir stórar flugvélar, en ég fer ekki út í þá sálma. En aðalatriðið er þetta: Hvernig ætla Íslendingar sér að halda uppi flugvelli með 100 manna starfsliði, auk loftskeytamanna, radiómanna og annarra slíkra manna? Ég vildi nú spyrja hæstv.fjmrh., hvort hann telji það viðunandi, að dregið sé úr vega- og brúargerðum úti á landi, eins og hann hefur heimild til, til þess að halda við þessu ástandi á þessum flugvelli. Á hinum vellinum er sömu sögu að segja. Þar voru 30-40 manns, og þeir gátu ekki einu sinni komið upp almennilegu flaggi, og þegar forseti Íslands beið þar eftir flugvél, gat hann ekki fengið neitt húsnæði, a.m.k. ekki viðunandi húsnæði, og varð hann að biða í bílnum. Lengi vel var íslenzki fáninn ekki á stöng, heldur á spýtu, sem fest var á skúr. Störf, sem voru unnin fyrir stjórnarskiptin, eru táknræn um vinnubrögðin á þessum velli. Það þurfti að láta dytta þar að einhverju smávegis, og voru fengnir smiðir úr Reykjavík, sem ferðuðust á milli. Þeir fóru með rútunni til Keflavíkur og urðu svo að ganga þaðan til vallarins, svo þurftu þeir í mat kl. 12 og í kaffi kl. 3 og svo heim með rútunni kl. 4. Þarna höfðu þeir unnið heilan dag og svo nokkra eftirvinnu, eins og venjan er, vegna ferðalaga. Þetta dæmi er hversdagslegt um öll vinnubrögð á þessum völlum, enda er ekki hægt að eyða 7 millj. á þessum tíma, nema vel sé að verið. Núverandi ráðh. hefði átt að setja ráðdeildarmann yfir þetta og jafnvel setja núverandi flugmálastjóra frá, því að hann er ekki fær til að gegna þessu starfi, en hann kemur með frv., sem vissulega var nauðsynlegt, en fyrsta atriði þess átti að vera að fella það skipulag, sem á þessum málum var. Hæstv. ráðh. getur ekki hugsað sér að halda þessu skipulagi, hneykslið er svo augljóst, að mikla nauðsyn bar til að breyta alveg um yfirstjórn. En það er ekki gert, heldur er sett yfir það ráð, og ef hver þessara ráðsmanna fengi eins og var hjá síldarverksmiðjunum, eða um 20 þús., sem vel má við búast, sést bezt vanþekking og vankunnátta þess manns, sem tekur þannig á málunum. Ef húsbóndi er óhæfur eða bankastjóri, er ekki hægt að bæta úr því með neinu ráði, það getur aðeins haft minni háttar eftirlit. Það getur verið til stuðnings góðum húsbónda og góðum bankastjóra, en það er til einskis gagns yfir lélegum mönnum. En þetta bendir á annað, sem er merkilegt fyrir þessa stjórn. Hér er ekki tekið eins rösklega á málunum og hjá hæstv. fjmrh. við síldarverksmiðjurnar, þar sem hann hreinsaði burt ósómann, nei, hæstv. flugmrh. hefur ekki viljað ganga í berhögg við kommúnista. Hann hefur augsýnilega ekki gefið upp alla von um að komast til þeirra, sem hann hefur verið að reyna undanfarið, og ekki er lítið til unnið. Nú vill hann fórna stærsta málinu til þess að þóknast þessum mönnum. Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta. Það sér hver maður, hvert stefnir, að þessi fyrirtæki eru komin að gjaldþroti, á það vildi ég aðeins benda.