21.05.1947
Neðri deild: 135. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í B-deild Alþingistíðinda. (685)

215. mál, flugvellir

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Aðeins aths. Það er algerlega á misskilningi byggt, að núverandi starfslið haldi ekki áfram að starfa á flugvellinum, og það er líka misskilningur, að ég sé að ráða starfslið nú til langs tíma, en það þykir ekki rétt að ráða starfslið til langs tíma, fyrr en sá maður er fundinn, sem veita á þessu forstöðu, svo að hann geti verið með í ráðum við val starfsliðsins.