13.05.1947
Efri deild: 131. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í B-deild Alþingistíðinda. (699)
217. mál, innkaupastofnun ríkisins
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. Þessi ræða hv. þm. var ekkert annað en lögfræðilegt hártog og það mjög lélegt. — Það segir sig sjálft, að ef komið er til innkaupastofnunar ríkisins og beðið um að kaupa fyrir sig olíu, getur hún ekki annazt slík innkaup, nema hún hafi komið sér upp nægilegum olíugeymum, og hið sama er að segja um aðra vöru, því að það er ómögulegt fyrir stofnunina að gera innkaup á vörum fyrir aðra, nema hún hafi skilyrði til þess. Hún skal gera það, ef hún hefur skilyrði til þess, en því aðeins, að hún geti útvegað vöruna með lægra verði, en aðrir eða sem sambærilegt er við lægsta verð annarra innflytjenda. En hún getur ekki annazt innkaup á t.d. olíu, nema því aðeins, að henni séu sköpuð nauðsynleg skilyrði til þess að reka olíuverzlun, og svo er um aðra vöru. Hins vegar er nauðsynlegt að orða till. eins og ég gerði: „skal hún annast innkaup“, en ekki nota orðið heimilt, til þess að það séu bein fyrirmæli frá löggjafanum, að þessari ríkisstofnun sé skylt að annast innkaup fyrir landsmenn, að svo miklu leyti sem hún hefur skilyrði til þess að geta gert það og þannig, að hún geti útvegað vöruna með eins hagkvæmu verði og aðrir innflytjendur. Ef aðeins væri um heimild að ræða, væri hægt að gera þetta að dauðum bókstaf. Tel ég ekki nauðsyn bera til að fara í hita við hv. þm. út af svona augljósri hártogun.
Þá er það og rangt hjá hv. þm., að það komi ekki frekar fram í mínum till. en í frv., að innkaupastofnunin eigi að flytja inn vörurnar beint frá útlöndum. Ef hann les mínar till., mun hann sjá, að ætlazt er til þessa. Samkvæmt b-lið 2. gr. brtt. minnar á þskj. 801 stendur svo: „Innkaupastofnun ríkisins skal hafa forgangsrétt um gjaldeyri til vörukaupa sinna, enda geti hún útvegað vörur þær, er hún annast innkaup á, við verði, sem er sambærilegt við lægsta verð annarra innflytjenda.“ — Hér er vissulega um vörukaup að ræða frá útlöndum og ekkert annað. Þessi brtt. mín er nánari skýring á framkvæmd þess ákvæðis, sem ég ætlast til, að verði 1. gr. frv. Hins vegar er ekkert í frv., eins og það mundi verða, ef brtt. mínar yrðu samþ., sem bannar Innkaupastofnun ríkisins að kaupa einnig frá innlendum heildsölum, en eins Ég frv. er nú orðað, er ómögulegt að sjá, hvernig ætlazt er til, að þessi stofnun starfi. Reynslan mun svo skera úr, hvort stofnunin mun kaupa beint frá útlöndum eða frá innlendum heildsölum, og mun það fara eftir því, hvernig henni verður stjórnað. Hér er starfandi önnur innkaupastofnun, Innkaupastofnun Reykjavíkurbæjar, sem kaupir alls ekki frá útlöndum, heldur frá innlendum heildsölum, og þess vegna vil ég á það benda, að það er fullkominn möguleiki á því, að sú stofnun, sem hér er um að ræða, verði rekin með eitthvað svipuðum hætti, en úr því mun reynslan skera.