21.05.1947
Neðri deild: 136. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (713)
217. mál, innkaupastofnun ríkisins
Frsm. minni hl. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ræða hv. þm. Siglf. gefur mér ekki tilefni til að segja mörg orð. En það er sérstaklega eitt, sem ég vildi vekja athygli á. Það, sem átt er við með brtt. á þskj. 911. er það, að ríkisstj. leiti tilboða almennt og taki hagkvæmasta tilboði, hvaðan sem það kemur, hvort sem það er frá innlendum aðila eða erlendum. Einu sinni var sú tíð, að það þótti mikils vert, að verzlunin var komin á hendur innlendra manna. Og það er ekki langt síðan innlendir voru taldir rétthærri í verzlun við landsmenn, en erlendir „agentar“. Nú skilst mér á hv. þm. Siglf., að hann vilji meta erlendu „agentana“ meir en innlenda menn og vilji heldur láta innkaupastofnunina eiga viðskipti við útlendan en innlenda kaupsýslumenn, sem fyrir dugnað og gömul sambönd gætu boðið betri kjör, en þeir erlendu. Ég er sannfærður um, að allir nm. í fjhn., nema þá hv. þm. Siglf., eru sammála um, að það beri að leita tilboða hjá innlendum aðilum líka og taka tilboðum þeirra að öðru jöfnu, jafnvel þótt þau væru ekki betri, en eins góð. Og ágreiningurinn í fjhn. er náttúrlega nauðalitill. Og ég efast um, að till. á þskj. 911 hefði verið borin fram, ef vitað hefði verið fyrir fram um þá brtt., sem er á þskj. 914, því að ég lít svo á, að í aðalatriðum nál sú brtt. þeirri meiningu, sem felst í till. á þskj. 911. En að minni hl. hélt fast við sína till., er af því, að í henni felst skýrara og tryggara orðalag. Til að þóknast hæstv. viðskmrh. vil ég fyrir hönd minni hl. taka till. á þskj. 911 aftur, ef hann gefur yfirlýsingu um það, að í reglugerð, sem ráðgert er að setja samkv. 2. gr., sé fram tekið eitthvað á þessa leið: Í reglugerð skal ákveða um útboð og jafnan taka hagstæðustu tilboðum, hvort sem þau koma frá innlendum eða erlendum aðilum.