13.03.1947
Neðri deild: 94. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 735 í B-deild Alþingistíðinda. (734)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Það er næsta eðlilegt, að frv. eins og það, sem hér um ræðir, sé rætt talsvert, og ekki óeðlilegt, að stjórnarandstaðan leiti eftir veikum punktum eða atriðum í því og dragi þau í dilk sem gagnrýni á stjórnarstefnuna. Það er líka víst, að Alþ. þarf vel að vanda til löggjafar sem þessarar.

Ég hef haft þá ánægju að starfa í annarri þeirri stofnun, sem gert er ráð fyrir, að sú stofnun. sem hér um ræðir, yfirtaki. Og með tilliti til þess, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, vildi ég segja það, án þess að ég taki undir gagnrýni hans, að ég hef haft gleði af því að starfa að þeim verkefnum, sem þar hafa verið lögð okkur á herðar, og átt gott samstarf við hv. 2. þm. Reykv. við að leysa úr þeim verkefnum. Nú er svo ákveðið í þessu frv., að nýbyggingarráð hætti störfum, en í 1. gr. frv. er ákveðið, að fram skuli haldið í nýsköpun atvinnulífsins undir stjórn hins nýja fyrirhugaða fjárhagsráðs, en þó finnst mér, að í frv. séu ekki nægilega skýr ákvæði um það, að fjárhagsráð taki við og haldi áfram öllum þeim störfum, sem bæði löggjöfin og rás viðburðanna hafa gert nýbyggingarráði nauðsynlegt að vinna að. Það var t.d. ekki tekið fram í lögunum um nýbyggingarráð, að það ætti að afla lánsfjár til framkvæmdar nýsköpuninni. en rás viðburðanna fékk því þetta verkefni í hendur, og þá var farið inn á þá braut, að sett voru lög um stofnlánadeild sjávarútvegsins. Ég drep á þetta til þess að sýna, að nýbyggingarráð fékk fleiri störf til þess að vinna að en þau, sem beinlínis voru ákveðin í l. um nýbyggingarráð, og ég teldi illa farið, ef ekki verður eins unnið að þeim störfum, sem rás viðburðanna skapar á hverjum tíma, enda geri ég ekki ráð fyrir, að nokkur þeirra, sem að þessu frv. standa, hugsi sér það. Að sjálfsögðu er hvergi gert ráð fyrir því, að stofnlánadeildin falli niður, en nýbyggingarráð hefur sett sér ýmsar starfsreglur og gert sér far um að greiða eftir föngum fyrir þeim aðilum í þjóðfélaginu, sem á aðstoð og ráðum þurftu að halda, koma þeim í rétta röð eftir þörfum þeirra, leiðbeina þeim um lántöku, gagnrýna lánsþörfina og undirbúa lántökur og beiðnir fyrir þá, sem það taldi réttilega á því þurfa að halda. Ég tel nauðsynlegt, að hið nýja ráð haldi þessum störfum áfram og aðstoði landsmenn, eftir því sem kostur er á. Þá eru það fleiri verkefni, sem nýbyggingarráð hefur haft með að gera, sem ekki mega falla niður. Má þar til nefna starf það, er nýbyggingarráð var falið, er mþn. hafði haft með höndum, en það var að gera áætlun um skipulagningu atvinnumálanna og að rannsaka þjóðartekjurnar. Að þessu hefur verið unnið í ráðinu ásamt mörgu fleiru, en að sjálfsögðu er þessum störfum ekki öllum lokið, og vegna þess getur verið óheppilegt að skipta þannig um stofnun, eins og hér er gert ráð fyrir. En í trausti þess, að hið nýja fjárhagsráð vinni áfram að þeim störfum, sem nýbyggingarráð hefur hafið, og fullkomni þau og notfæri sér þær áætlanir, sem þar hafa verið gerðar, þá má vel fara.

Eins og kunnugt er, hafa allmargir litið nýsköpunina hornauga og fundið henni það meðal annar til foráttu, að þar væri litið um áætlanir, en í þess stað unnið af handahófi að verkefnunum. Það er að vísu rétt, að nýbyggingarráð hefur lagt mesta áherzluna á það að afla nýrra framleiðslutækja, en það hefur líka haft með höndum margs konar áætlanir og rannsóknir, og má þar til nefna rannsókn á því, hvort tiltækilegt er að reisa hér fullkomna ullarverksmiðju, sementsverksmiðju og framhaldsrannsókn á möguleika fyrir að reisa áburðarverksmiðju. Ég tel tvímælalaust nauðsynlegt, að hið væntanlega fjárhagsráð vinni að þessum verkefnum, því að þau mega ekki niður falla, þó að skipt verði um stofnanir, eins og frv. gerir ráð fyrir. Það hlaut svo að fara, að stofnun eins og nýbyggingarráð fengi aukin störf, eftir því sem tímar liðu, og vissulega eru mörg viðfangsefni nú, sem bíða úrlausnar og hafa ekki verið tekin fyrir, en það hefur komið í ljós, eftir því sem ráðið hefur starfað lengur, að hin kerfisbundna vinna hefur færzt í betra horf og skilað betri árangri.

Mér er það því mikið áhugaefni, að sú hv. n., sem fær þetta frv. til meðferðar, athugi þennan gang vinnunnar og tryggi það, að þau verkefni, sem nýbyggingarráð nú er að vinna að, verði ekki vanrækt, þó að skipt verði um menn og nafn á stofnuninni.

Um ýmislegt annað, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, er ég honum ekki sammála. Mér hefur þótt gott að vinna með honum í nýbyggingarráði. og ég virði mjög áhuga hans og dugnað, en ég er ekki sammála honum hvað snertir það, að allt sé undir hraðanum komið. Við höfum eitt greinilegt dæmi um það í ræðu hv. 6. þm. Reykv., hvað hlotist getur af hraðanum. Hann minntist á l. frá síðasta þingi um opinbera aðstoð við byggingu íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum Ég að til þess að framkvæma þau vantaði 25 millj. kr., sem hvergi væru til. Þetta er rétt, og það eru mörg önnur l., sem Alþ. hefur sett, sem sama gildir um. Það er komið svo að segja daglega með slíkar kröfur á hendur ríkissjóði, kröfur, sem viðkomandi aðilar hafa lagalegan rétt á að fá uppfylltar. En er ekki bezt fyrir okkur alla að viðurkenna það, að við höfum stundum gengið of langt hér á Alþ., hraðinn hefur á þessu sviði verið of mikill, svo að við höfum ekki getað staðið við þær fjárgreiðslur, sem við höfum skuldbundið okkur til að greiða. Nei. hraðinn er ekki einhlítur, það verður að gæta forsjálni til þess að komast áfram, kollsiglingin verður aldrei happadrjúg.

Þegar því hv. 2. þm. Reykv. telur, að það frv., sem hér liggur fyrir, marki spor aftur á bak, aðeins vegna þess, að ekki nema 15% af gjaldeyri fyrir útflutningsverðmæti sé ætlað til nýrra framlaga í nýsköpunarefnum, þá get ég ekki verið þessum hv. þm. sammála. Í fyrsta lagi vitum við ekki óðar en liður, hvað þessi 15% þýða mikla fjárupphæð. Því ræður sú upphæð, sem okkur tekst að selja útflutningsvörur fyrir. Í öðru lagi verðum við að gæta að því, að þó að margt vanti hér til sjávar og sveita af svo kölluðum nýsköpunartækjum, þá er þó búið að verja mjög hárri upphæð til kaupa á þessum nauðsynlegu tækjum, og þau hafa fyllt og fylla smám saman þau skörð, sem fyrir voru og myndazt hafa, þannig að það ætti ekki að þurfa ávallt jafnmiklu fé að verja í þessu efni eins Ég varið hefur verið til kaupa á nýsköpunartækjum, síðan sett var löggjöfin um nýbyggingarráð. — Þess vegna er það, að ég lit þannig á, að út frá hundraðshlutatölunni einni sama n verði alls ekki nein ályktun dregin um það, að þetta frv. miði ekki að því að halda áfram nýsköpuninni. En það virtist hv. 2. þm. Reykv. vilja draga í efa, að frv. geri.

Fv. 2. þm. Reykv. sagði — og með fullum rétti þar —, að það yrði að þora að segja þjóðinni það strax, að hún megi ekki gera sér í hugarlund, að heppilegt sé að starfa að nýsköpun með erlendum lántökum. Ég er sammála hv. 2. þm. Reykv. um það, að þetta þeir þurfi valdhafarnir að hafa á hverjum tíma. En við verðum að þora meira en þetta. Við verðum að þora, ef við trúum á nýsköpun, að horfast í augu við þá staðreynd, að þetta litla lýðveldi getur ekki sett heiminum neina afarkosti. Þetta verðum við að þora að horfast í augu við og þora líka að segja þjóðinni. Þegar svo er ástatt, að þeir, sem afla hinna sömu gæða úr skauti náttúrunnar og Íslendingar gera og bjóða þær á útlendum markaði fyrir miklu lægra verð, kannske helmingi lægra verð en Íslendingar treysta sér til að gera, þá verðum við sannarlega að þora að horfast í augu við og taka afleiðingunum af þeim staðreyndum, sem þar liggja fyrir. Við eigum ákaflega sterka keppinauta, Íslendingar, sérstaklega að því er snertir framleiðslu til sjávarins, keppinauta, sem eru alveð eins duglegir og við og alveg eins vitrir og við, en bara gera ekki eins háar kröfur hver til annars og við leyfum okkur að gera. — Við verðum að þora að segja þjóðinni það líka — ég vil bæta því við ræðu hv. 2. þm. Reykv. —, að framleiðsla á aðalmarkaðsvörum þjóðarinnar, þannig að ríkissjóður ábyrgist afkomuna, sú framleiðsla getur aldrei til langframa orðið okkur happadrjúg.

Hraðinn er góður. En hann er ekki einhlítur.

Það eru svo ákaflega mörg — mér liggur við að segja náttúruskilyrði eða a.m.k. náttúrleg skilyrði fyrir því, að fyrirtæki okkar geti blessazt, hvort sem þau heita nýsköpun eða aðrar framfarir, önnur heldur en hraðinn, sem verður að uppfylla, ef vænta má góðs árangurs. Um þetta veit ég, að hv. 2. þm. Reykv. hlýtur við nánari athugun að verða mér sammála, að það er ekki hraðinn einn, sem hér segir já eða nei. Það verður ekki, hvort sem er, gert allt í einu, sem miðar til gagns og framfara fyrir þetta land. Og að því leyti vil ég taka undir það, sem hæstv. forsrh. sagði. að nýsköpun og uppbygging hjá þjóðfélaginu er vitaskuld mál, sem er ævarandi. Við gerum það, sem við getum í þessum efnum, þann dag, sem okkur auðnast að starfa. Og eftirkomendurnir gera vonandi sitt á þeim tíma, sem kallið kemur til þeirra. Skilyrði fyrir því, að nýsköpunin, þ.e.a.s. hin nýju atvinnutæki, verði þjóðinni til varanlegs gagns til langframa, er það m.a. og ekki hvað sízt, að við höfum vit á að fara svo með þessi nýju tæki, að þau verði til framdráttar, en ekki til þess að draga okkur niður. Við höfum nú — og komum til með að hafa betri á næstu árum — góða aðstöðu, Íslendingar, til þess að afla gæðanna úr skauti náttúrunnar. Og þá er nauðsynlegt. að við reynum að tileinka okkur þá stillingu Ég þá vitsmuni og hófsemi í kröfum okkar hver til annars, sem nauðsynlegt er til þess að tryggja það, að nýsköpunin verði að verulegu gagni og til frambúðar.