28.04.1947
Neðri deild: 118. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (751)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Ég hafði farið fram á það við hæstv. forseta og hæstv. ríkisstj. að fá þessu máli frestað, þar til seinna í vikunni. vegna þess að mér hefur ekki tekizt ennþá að ljúka við neitt nál. Hæstv. ríkisstj. hefur lagt áherzlu á að fá þetta mál á dagskrá hér nú í dag. En þær brtt., sem ég hefði viljað gera í því formi, sem ég gekk frá þeim í gær, hafa ekki fengizt prentaðar, vegna þess að Gutenberg þarf að láta ganga fyrir að prenta fjárl. Ég verð því nú að láta mér nægja framsöguræðu um þetta mál án þess að geta lagt fram prentað nál.

Ég minntist á það í fjhn., að ég mundi reyna að vinna að því að gera mjög miklar breyt. á 2. gr. og út frá henni, vegna þess að minn hugsunarháttur viðkomandi íslenzku atvinnulífi væri allur annar en þar kemur fram. Ég hef því þennan tíma, síðan n. klofnaði og þar til nú, verið að reyna að vinna að þessu, að forma betur ákvæðin um það hlutverk, sem ég tel, að þetta ráð eigi að hafa.

Í frv. ríkisstj. er gengið út frá, að hlutverk fjárhagsráðs sé að samræma framkvæmdir einstaklinga og almannavaldsins, meðan hinar miklu framkvæmdir í íslenzku atvinnulífi standa yfir, þannig að þær verði gerðar eftir fyrir fram saminni áætlun fjárhagsráðs. er ríkisstj. staðfestir.

Hugsunarhátturinn er sá, að sökum þess, að undanfarið hefur verið mjög mikið að gera í íslenzku þjóðlífi, framkvæmdir og framtak afskaplega mikið, þá þurfi að setja ráð til þess að takmarka þessar framkvæmdir. Ég álít, að þannig sé það ekki í reyndinni. Ég álít, að þetta sé ekki aðalatriðið, sem beri að stefna að, heldur að við þurfum að samræma þær aðgerðir, sem gera skal, ekki aðeins fyrir hvert ár, heldur langt fram í tímann, því að öðruvísi sé ekki hægt að vinna að þessum málum, við verðum að búa til áætlanir, sem ná ekki aðeins yfir eitt ár, heldur 5–10 ár fram í tímann. Mun ég rökstyðja það nánar í þessari ræðu.

Mér hefur skilizt, t.d. á hæstv. dómsmrh. við 1. umr. þessa máls, að hann gekk greinilega út frá því, að Íslendingar tækju ekki upp áætlunarbúskap. Hins vegar skildist mér á hæstv. forsrh., að hann vildi leggja þann skilning í þessi l., að taka ætti upp áætlunarbúskap. Ég vil undirstrika það, að mínar brtt. eru allar við það miðaðar, að Íslendingar taki upp fullkominn áætlunarbúskap, og ég mun reyna að sanna það í þessum umr., að það sé ekki fært að ætla að reka virkilega stóriðju hér á landi, það sé ekki hægt að reka okkar atvinnulíf með nútíma tækni nema með því að taka upp fullkominn áætlunarbúskap. Við munum koma til með að reka okkur á það og erum þegar farnir til þess, að með því skipulagi, sem verið hefur hjá okkur, þá stöðvast meira og minna af iðju hjá okkur. Þess vegna hef ég reynt að gera allmiklar brtt. við þetta frv., sem miða fyrst og fremst að því, að áætlunarbúskapur verði tekinn upp.

Í öðru lagi er á það að líta, að það er ekki hægt að ætla sér að búa til l. um áætlunarbúskap, án þess að það liggi fyrir um það ráð, sem á að sjá um, að þessu verði framfylgt, hvaða stefnu skuli fylgja í þessum áætlunarbúskap. Það er óhjákvæmilegt, að Alþ. móti í þeim l., sem það samþykkir, þá stefnu, sem þar skuli framkvæmd í einstökum greinum.

Árið 1944, þegar nýbyggingarráð var sett í l. og þáverandi stjórn tók við völdum. þá var það ákveðið í prógrammi hennar, að það væri höfuðatriði, hvernig skyldi verja því fé. sem nýbyggingarráð ætti að ráðstafa, hvernig því væri skipt milli atvinnuvega o.þ.h., og var sú áætlun látin fylgja sem fskj. með l. um nýbyggingarráð. Það hlýtur að verða ákveðið af Alþ., þegar það ætlar að taka upp áætlunarbúskap hjá þjóðinni. hvaða atvinnugreinar eigi að leggja höfuðáherzlu á á hverju tímabili og hvernig skuli undirbyggja það sem stefna skuli að, og við munum sjá, þegar við förum að ræða þetta mál og athuga, að við þurfum að gera þetta alllöngu fyrir fram. Það er svo takmarkaður, ekki aðeins vinnukraftur okkar þjóðar, heldur líka fjármagn og annað, sem við höfum úr að spila, að við verðum að ákveða löngu fyrir fram, hvernig við ætlum að haga framkvæmdum. Þess vegna hef ég hér formað allmargar brtt., sem allar koma út frá 2. og 3. gr., um það, hvaða höfuðstefnu fjárhagsráð skuli fylgja viðvíkjandi sjávarútvegi, landbúnaði, iðnaði og öðru slíku, Ég einnig farið nokkuð inn á einstakar framkvæmdir. Þó að það sé að miklu leyti í samræmi við það, sem nú þegar hefur verið lagt til, en ekki ennþá komið til framkvæmda, held, þegar við rannsökum nánar, að við komumst að þeirri niðurstöðu, að ýmislegt sem við höfum hugsað um undanfarið eins og áburðarverksmiðja og annað slíkt. Ýmislegt, sem okkur hefur dottið í hug og við erum að semja áætlanir um og margir hafa áhuga fyrir, það komist ekki í framkvæmd, nema það sé sett inn í miklu stærri heild og samræmt á þennan hátt.

Ég skal svo snúa mér nákvæmar að frv. og rekja eins skýrt og ég get þessar brtt., sem ég flyt. Við 1. gr. geri ég þá brtt., að fé það, sem leggja á inn á sérstakan reikning samkvæmt þeirri gr., sé lagt inn mánaðarlega eftir á. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt, og eins verður með þessi 15%, sem nú á að leggja til hliðar, að ef við gerum það ekki jafnóðum, þá erum við ekki nógu sparsamir, leggjum það ekki inn strax, heldur viljum bíða með það þar til seinna. Ég tel betra, að þetta sé gert jafnóðum og jafnað svo eftir á fyrir árið. Enn fremur held ég, að það sé skynsamlegra að kalla þennan reikning nýbyggingarreikning. Enn fremur vil ég, að það komi skýrt fram, að þetta er sami reikningur og lagt hefur verið inn á undanfarin ár og nú eru í 100 millj. kr., og þó að búið sé að ráðstafa því fé, þá er það ekki komið til útborgunar ennþá. Í l. um nýbyggingarráð er tekið fram, að fénu skuli verja til nýsköpunar. til að kaupa atvinnutæki og annað slíkt í samræmi við áætlanir þess.

Aðalatriðið í brtt. mínum við 1. gr. er það, að ég legg til, að 25% sé lagt inn á þennan reikning í stað þess. að í frv. stjórnarinnar er lagt til, að það sé 15%. Ástæðan til þess er sú, að með því að leggja aðeins 15% til hliðar, ef miðað er við meðaltalsútflutning síðasta áratugar. þá verður sú upphæð, sem þar með sparast okkur, of lítil til þess að ljúka því mikla verkefni, sem ég álít, að okkur sé nauðsyn að ljúka á næstu 10 árum. Við höfum tekið við þessu landi alls vana og verðum að byggja það upp á skömmum tíma. En ef sú kynslóð sem næst kemur, á að geta tekið við því í sæmilegu ástandi, þá verðum við að leggja verulega að okkur. Ef við leggjum til hliðar aðeins 15%, þá þýðir það það, að við höldum aðeins sæmilega í horfinu. en ef við leggjum til hliðar 30–40 eða 25%o, þá þýðir það, að uppbyggingin verður með virkilegum hraða. Ég geng hér út frá meðaltali margra ára. Það getur verið. að 15% eitt árið verði meira að krónutali en 25% annað árið. en það þarf ekki að færa rök að því. að 25% er meira en 15%. Hins vegar álít ég, að sú kynslóð, sem nú er uppi, hafi skyldu til að leggja verulega að sér til þess að byggja landið upp. Henni ber að gera það vegna þess, að engin kynslóð á Íslandi hefur búið við eins góð kjör. Þess vegna eru möguleikar fyrir okkur, ef við í tíma byrjum að spara, að vinna stórvirki með þeim sparnaði. Við vitum, að 1944 voru lagðar 200 milljónir til hliðar til að kaupa atvinnutæki, en þó er ekki búið enn að kaupa nema lítið af þeim eða þau komin til landsins. Við vitum, hvað það þýðir efnahagslega, að lagt var í þetta.

Nú komum við til með á sama hátt að ákveða aftur: Eigum við á næstu árum að leggja það á okkur að spara það á öðrum innflutningi. sem við þurfum til ýmissa hluta, sem er okkur til skemmtunar og gagns, spara það við okkur til þess að geta lagt í verulega stórfellda uppbyggingu?

Nú vil ég skýra frá því, hvað ég álít sérstaklega mæla með, að við leggjum þetta mikið að okkur á næstu árum.

Ef við ætlum að gera virkilega stóra hluti, á hvaða sviði sem er, ekki sízt hvað stóriðju snertir, þá verðum við að gera það í mjög stórum stíl, og við verðum að hafa svo mikið kapítal, t.d. ef við ætlum að leggja í margfalt stærri virkjanir en að undanförnu. að við verðum að hafa svo miklu meiri peninga til að verja á 1–2 árum en við komum nokkurn tíma til með að hafa, ef það er aðeins lítið, sem við spörum upp á hverju ári. Ef við þurfum að leggja í eina vatnsvirkjunarstöð 100 millj. kr. og meginið af því útlendur gjaldeyrir, þá þorum við ekki að ráðast í slíkt og getum ekki ráðizt í það, nema við höfum stórar fjárfúlgur yfir að ráða. Ef það er lítið, sem við leggjum til hliðar á hverju ári, þá komum við ekki til með að spara nægilega mikið til að geta lagt í slíkar stórframkvæmdir. Spursmálið er, hvort við getum verið samkeppnisfærir við aðra, hvort við getum framleitt ódýrara rafmagn en Norðmenn, en til þess verðum við að geta lagt mikið fé í slíkar framkvæmdir í einu. Þess vegna álít ég óhjákvæmilegt fyrir okkur að taka ákvörðun um það strax að leggja verulega mikið til hliðar, eins mikið og við frekast treystum okkur til. Og ég álít, að við getum lagt 25% til hliðar án þess að taka verulega nærri okkur.

Þá kem ég að 2. gr. Eins og sú gr. er orðuð og þó sérstaklega 3. gr., þá er í frv. í raun og veru aðeins gengið út frá, að samin sé áætlun fyrir eitt ár í einu, en engin önnur áætlun samin. Þetta þýðir það. að fjárhagsráð ætti nú á þessu ári aðeins að semja áætlun fyrir 1948. En það er óhugsandi vinnulag að ætla sér að semja áætlun fyrir eitt ár í senn. Það er ekki hægt vegna þess, að svo og svo mikið af þeim undirbúningi, sem þarf að fara fram í sambandi við áætlun hvers árs út af fyrir sig. verður að gerast á öðrum árum, t.d. þarf langan og mikinn undirbúning, áður en viðkomandi verksmiðja kemst upp. Þess vegna þarf að gera áætlun 5–10 ár fram í tímann. þó að það sé kannske ekki hægt að reikna það nákvæmlega út.

Ég skal taka hér sem dæmi áburðarverksmiðjumálið. Ég geng út frá, að það mál sé komið í strand í augnablikinu, ef ekki eru gerðar sérstakar ráðstafanir til að koma upp stóru heildarplani. Á hverju strandar það? Það strandar á því, að ekki er til nægileg raforka til að koma upp áburðarverksmiðju. Það er talað um það í áliti n., sem átti að rannsaka það mál, að það kunni að fara svo, að hægt verði að koma upp áburðarverksmiðju, þegar búið er að virkja neðri fossana í Soginu 1949–1950, en samt sem áður muni framleiðsla þeirrar verksmiðju verða of dýr, vegna þess að raforkan verði of dýr, og efamál, hvort það verði þá nægileg raforka afgangs. Það er við því búið, að 1950 verði eftirspurnin orðin svo mikil eftir rafmagni á öðrum sviðum, ekki aðeins til heimilisnota í bænum, heldur líka til fiskiðjuvera og annars slíks, að vel má svo fara, að lítill afgangur verði af því 1950. Við getum því fyllilega gert ráð fyrir, að 1950 komi það á daginn, að ekkert rafmagn verði þar afgangs handa áburðarverksmiðjunni. Þetta þýðir m.ö.o. það, að ef á að koma hér upp áburðarverksmiðju, sérstaklega ef hún á að vera nægilega stór til að geta framleitt ódýrari áburð og eins mikinn áburð og flytja þarf nú inn og jafnvel flutt áburð út, þá verður að reisa þá verksmiðju i sambandi við nýjar vatnsvirkjunarframkvæmdir. Þess vegna er það, að þegar farið er að tala um að ráðast í stórar vatnsvirkjunarframkvæmdir, þá kemur sú röksemd frá sérfræðingunum, að það þýði ekki að ráðast í stórfelldar vatnsvirkjunarframkvæmdir, vegna þess að ekki sé markaður fyrir raforkuna innanlands. Þá er á öðru sviði áburðarverksmiðja látin stöðvast, af því að ekki er til nægilega ódýr raforka. og á hinu sviðinu hætt við að reisa stór raforkuver, af því að ekki sé markaður fyrir næga raforku. Aðeins með því að fella þessar framkvæmdir saman er hægt að skapa markað fyrir væntanlega raforku og koma virkjunum upp með tryggingu fyrir, að þær beri sig svo að segja strax fyrsta árið og einnig hægt að tryggja þeim stóru verksmiðjum, sem reistar eru, næga orku. En ef við ætlum að byggja slík stór orkuver, þá þarf máske á örskömmum tíma að leggja svo að hundruðum milljóna skiptir af kapítali í virkjun. t.d. í Þjórsá, og verksmiðjur, sem standa í sambandi við það. Slíka peninga komum við ekki til með að geta átt nema með því að spara upp á þó nokkru árabili. Þess vegna álít ég óhugsandi að ætla sér að gera svona áætlun fyrir eitt einasta ár í senn. Fjárhagsráð verður að hafa sæmilega yfirlitsáætlun fyrir 5–10 ár fram í tímann. eins konar plan fyrir sjálft sig. sem ríkisstj. vitanlega hefur samþ. og búast má við, að hafi fylgi Alþingis. Út frá þessu sem höfuðlínu verður síðan fjárhagsráð að ákveða fyrir hvert einstakt ár út af fyrir sig, hvað það er, sem það ætlar að ráðast í. Ef við spörum meira af gjaldeyri á þessum árum. þá þarf þetta að vera allt gert með slíkri forsjálni. að það sé hægt t.d. að koma upp stóriðju í svona litlu landi, sem geti staðið jafnfætis stóriðju erlendis, eða að við getum hagnýtt annað eins afl og við eigum í okkar vatnsföllum. þannig að við séum samkeppnisfærir.

Af þessum ástæðum legg ég til, að áætlun fjárhagsráðs sé tvenns konar: að það sé heildaráætlun um íslenzkt atvinnulíf í 5–10 ár, eftir því sem fjárhagsráð og ríkisstj. ákveða, og svo áætlun um hvert ár fyrir sig.

Út frá þessu eru mínar brtt. við 2. gr. gerðar. Þær eru aðeins við 2. málslið 1. málsgr. En það er ein smábrtt., sem ég flyt við 2. gr. Þar stendur, að öllum vinnandi mönnum, og þá sérstaklega þeim, er stunda framleiðsluvinnu til sjávar og sveita, séu tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína. en koma í veg fyrir óeðlileg sérréttindi og spákaupmennsku. Ég legg til. að orðið „vinnandi“ falli niður. Ég hygg, að það sé meining gr., að öllum mönnum séu tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína, þ.e. að allir, sem vinna, fái réttlátar tekjur fyrir það. Í niðurlagi málsliðarins stendur: „en komið í veg fyrir óeðlileg sérréttindi og spákaupmennsku“. Ég legg til, að orðið „óeðlileg“ falli niður. Ég álít, að sérréttindi eigi ekki að eiga sér stað. og spákaupmennsku viljum við allir útrýma, svo að það er ekki rétt að hossa sérréttindum og telja, að spákaupmennska eigi sér stað og sé eðlileg. Þetta er aðeins leiðrétting.

Þá legg ég til, að bætt sé við 3. gr., en í brtt. er prentvilla, það á að standa 3 a og b við 3. gr. Í a-liðnum legg ég til, að tekið sé upp í frv. sams konar orðalag um heildaráætlunina og er í núgildandi 1., en úr því er dregið með breyt. hæstv. stjórnar, og álít ég það óþarft.

Hins vegar er b-liðurinn mjög mikil efnisbreyt. Ég legg til, að aftan við gr. bætist ný málsgr. á þá leið, að fjárhagsráð skuli um samning og framkvæmd útflutnings- og innflutningsáætlana sinna alveg sérstaklega stefna að því að afstýra því, að atvinnulíf landsmanna verði fyrir kreppum, markaðsvandræðum og verðhruni, en beita sér fyrir því, að afkomuöryggi landsmanna verði tryggt með útvegun öruggra framtíðarmarkaða, m.a. með því, að samið verði til nokkurra ára í senn um sölu og kaup erlendra vara. Ég þarf ekki að ræða þetta ýtarlega nú, ég geri það kannske seinna í umr.

Til þess að halda mér við aðalatriðin í þessu, þá tek ég fyrir 4. brtt., sem er með allmörgum undirliðum og er um það í stuttu máli. að taka skuli upp í þessi l. að ákveða höfuðstefnu fjárhagsráðs á hverju af þessum sviðum. Ég tek fyrst fyrir sjávarútveginn. Nú er það svo hvað sjávarútveginn snertir, þá liggur fyrir fyrsta áætlunin, sem hefur verið gerð um það svið af þeirri stofnun, sem sett var til að semja um það, nýbyggingarráði, og mun hv. þm. að einhverju leyti kunn, þar sem hún hefur verið send út. Þar liggur fyrir áætlun um að efla sjávarútveginn í næstu fimm ár. Það er höfuðatriði, að “íslendingar eigi að eignast nægilegan skipastól til þess að geta annazt fiskveiðar á Íslandsmiðum, miðað við það, sem þessi fiskimið þola nú eftir þeim rannsóknum og niðurstöðum, sem sérfræðingar okkar hafa komizt að. Ég tek enga ábyrgð á, hvort þær eru endilega réttar, en ef annað reynist, þá getum við breytt áætluninni i samræmi við það. Við eigum í þessu efni að miða við, að það verði reynt að semja um alþjóðasamvinnu við aðrar þjóðir og þar verði m.a. samið um alþjóðaverkaskiptingu og þar verði það okkar hlutverk að framleiða þann fisk, sem hægt er að framleiða á Íslandsmiðum. En þá verðum við að geta leitt rök að því, að við séum þessum vanda vaxnir, við höfum nægan flota til að inna þetta starf af hendi. Við verðum að halda því fram í sambandi við þessa alþjóðasamvinnu, að það sé réttlátt og skynsamlegt, að við Íslendingar sjáum um þennan þátt. Fari svo, að þetta nái ekki fram að ganga, að það náist ekki samkomulag um, að við Íslendingar öðrum fremur sitjum að framleiðslu á fiskimiðum Íslands, en áfram haldi sú samkeppni og rányrkja, sem átt hefur sér stað, þá verðum við Íslendingar jafnt sem aðrar þjóðir að vera við búnir að veiða þar og enn fremur við því búnir að sækja á fiskimið annarra þjóða, hafa skip, sem geta það, og við það eru líka okkar stóru togarar miðaðir. Hins vegar sjáum við auðvitað fyrir, að svo framarlega sem ekki næst alþjóðasamkomulag, þá fer vaxandi sú hætta, að fiskimið okkar verði ekki önnur eins uppgrip og verið hefur fyrir okkar þjóðfélag. Náist hins vegar samkomulag við aðrar þjóðir, þá tel ég rétt að miða við þann flota, sem við göngum út frá í áætlun nýbyggingarráðs, en sú áætlun nær yfir fimm ár, 1946–1950, og að því tímabili loknu sé fiskiflotinn þannig búinn. að hann geti fullnægt þessum kröfum, að hann geti náð því marki að veiða þetta magn, 5600 þús. tonn af fiski úr sjó. 1950–1951 ættum við að hafa lokið höfuðatriðum þessarar aukningar skipastólsins. Sem sé geng ég út frá því, að aukning okkar skipastóls verði ekki meiri, meðan áætlunin, sem við höfum gengið út frá um fiskimið okkar og annað slíkt, er óbreytt. En ef ekki næst samkomulag um það í alþjóðasamningum, að við fáum að sitja að þessari auðsuppsprettu einir, þá verðum við að reikna með því í náinni framtíð, að við verðum að lifa að verulegu leyti á öðru en sjávarútvegi, og enn fremur höfum við reiknað með því, að aflinn verði undir eins hagnýttur. En til þess að leggja grundvöllinn að því, þá verðum við að spara svo mikinn erlendan gjaldeyri sem okkur er mögulegt og leggja hann til hliðar í þessu skyni. Þess vegna hef ég slegið föstu með þessari brtt., að sé þessi áætlun nýbyggingarráðs framkvæmd, þá sé þar með lokið höfuðáfanganum i að efla okkar sjávarútveg á þessu tímabili.

Við eigum að nota það fé, sem við vonandi ausum upp á þessu 5 ára tímabili, til þess að skapa undirbúning að því, sem við ætlum að leggja höfuðáherzlu á síðar. Þess vegna álít ég líka heppilegt, að við reynum að koma upp hinum nýja fiskiskipastól sem allra fyrst, að þetta gangi sem fljótast, vegna þess að hvert ár, sem hver togari er ekki kominn, er tap. T.d. telst mér svo til, að hinn nýi togari, Ingólfur Arnarson, muni á einu ári fiska fyrir álíka mikinn útlendan gjaldeyri og hann hefur kostað. Og þannig skulum við vona, að við getum haldið áfram að ausa upp gjaldeyri. Þess vegna hef ég í a-brtt. undir 4. gr. tekið fram í 9 undirliðum, að hvaða höfuðverkefnum ég álít við eigum að beita okkur á næstu fimm árum. — Hvað snertir hin atriðin, fiskiðjuverin, þá eru það í raun og veru allt ýmist mál, sem vitanlegt er, að nauðsyn er á að koma í framkvæmd, eða það hefur beinlínis verið ákveðið að koma þessu upp, en það ekki verið framkvæmt.

Nú, svo kemur 5. gr., sem frá mínu sjónarmiði er höfuðatriðið í sambandi við þessa áætlun. Það er enginn vafi á því, að það væri óráð fyrir Íslendinga þrátt fyrir það, hvað sjávarútvegurinn gefur okkur mikið, að byggja eingöngu á honum, þegar við hugsum um framtíðina. Við erum sem stendur ekki nema 130 þús. í þessu landi, en eins og fólkinu hefur fjölgað hér á síðustu öldum, vonumst við til, að þeir tímar komi, að hér búi milljónir manna, sem við þá verðum að geta fætt. Og þegar við hugsum um, af hvaða iðju við ætlum að lifa í framtíðinni, þá verðum við að hugsa um meira en okkar sjávarútveg og landbúnað í því ástandi, sem hann er nú. Við verðum að gæta að því, að við getum ekki í það óendanlega haldið áfram að auka sjávarútveg okkar, við verðum að finna eitthvað annað til þess að lifa af. Landbúnaðurinn, sem fram að þessu hefur verið okkar annar aðalatvinnuvegur, er nú orðinn langt á eftir tímanum, eins og hann er rekinn nú. Ég er þess fullviss, að íslenzkur landbúnaður á mikla framtíð fyrir höndum. Við eigum vafalaust eftir að rækta allt landið, a.m.k. þann hluta, sem ræktanlegur er, og hafa þar mikla framleiðslu og góða vinnu. En til þess að geta það þurfum við að geta látið landbúnaðinum í té bæði fjármagn og jarðhita í miklu ríkari mæli en nú. Ef við ætlum að hafa allan okkar heyskap á ræktuðu landi og koma hér upp fjöldamörgum gróðurhúsum, eins og jarðhitasvæðin skapa raunverulega möguleika fyrir, verðum við að hefja mjög stórfelldar raforkuframkvæmdir í landi okkar. Hins vegar er ekki gefið, þó að við ykjum þann landbúnað gífurlega, margfalt á við það, sem nú er, með aukinni vélanotkun — þá er ekki gefið, að sá fjöldi, sem vinnur við landbúnaðinn, yrði svo miklu meiri en nú er. Við verðum að leggja grundvöll að stórfelldum iðnaði, og nú erum við svo heppnir að eiga okkar mikla fossaafl. Viðvíkjandi okkar fossafli og rafmagni þá höfum við alltaf rekið okkur á það, að við höfum byrjað of smátt, af því að við höfum verið svo fátækir. Við höfum verið fátækir og þurft að taka lán erlendis og gengið á milli höfuðborga erlendis til þess að biðja um þessi lán og af vanefnum ráðizt í þetta. Við höfum alltaf séð það eftir á. En sú kynslóð, sem hefur ráðið þessu á undanförnum áratugum, hefur þarna eina afsökun, sem verður tekin gild: Þeir áttu ekki meiri peninga. En við, sem nú tækjum við þessu, hefðum ekki þessa afsökun, við eigum ekki að þurfa að taka þessi lán, ef við höfum mannrænu í okkur, því að við ættum að geta lagt nógu mikið fyrir til þess að geta lagt í þetta. Við tölum oft um stóriðju Norðmanna, hvernig þeir flytja inn hráefni, vinna úr þeim í sínum stóru verksmiðjum og flytja síðan út aftur. Og hví skyldum við ekki geta gert þetta sama? Við vitum allir, hvaða mótbárur eru gegn þessu og erfiðleikar í þessum efnum, við höfum ekki treyst okkur fram að þessu að ráðast í neinar nægilega stórar vatnsvirkjanir, sem gætu gefið okkur nægilega ódýrt afi. Við höfum ekki haft peninga til þess, og þess vegna höfum við rekið okkur á það, að hver einasta vatnsvirkjun, sem við höfum ráðizt í, hefur verið fullásetin — og meira en það. Við vitum, að þannig er þetta hjá okkur nú, og vitum enn fremur, að nú þegar stendur þetta íslenzkum iðnaði fyrir þrifum. Hér verður því að koma gerbreyting í þessum efnum. Við þurfum á næstu árum að ráðast í það stórar vatnsvirkjanir, að við virkilega getum reiknað með orku, nægilegri til þess að koma upp stóriðju til þess að geta keppt við Norðmenn. Ég á við, að við verðum að einbeita okkur að fáum verksmiðjum, því að hver um sig verður að vera svo stór. — Þá er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir þeim skilyrðum, sem við þurfum til þess að við getum ráðizt í þessar stórvirkjanir. Það er þá fyrst ódýrt kapítal, það þýðir fjármagn, sem við getum látið okkur nægja að reikna lága vexti af, því að ef fjármagnið, sem við notum til þess að byggja stóra stöð, er tekið að láni erlendis og við verðum að borga vexti, þá kiknum við undir þessu. En ef við getum sparað þetta fjármagn upp hjá okkur sjálfum og hagnýtt þá pólitík, sem við höfum tekið upp með stofnlánadeild sjávarútvegsins. Þá getum við staðið undir þessu, fyrir utan það, að þá eigum við þetta sjálfir. Þetta er því fyrsta skilyrðið: lágir vextir. Í öðru lagi er svo það, að ráðizt sé í nógu stórt í einu, í þriðja lagi, að þegar slíkri stórvirkjun hefur verið komið upp, sé nægilega mikið til af verksmiðjum. tilbúnum til þess að hagnýta sem mest af orkunni. og í fjórða lagi, að okkar tekník við að vinna þetta geti orðið sem fullkomnust.

Þá er það viðvíkjandi 6. gr. (Forseti: Stæði ekki vel á hjá hv. þm. að láta hér staðar numið?) Jú, ég mun verða við tilmælum hæstv. forseta og fresta ræðu minni. [Frh.]