06.05.1947
Neðri deild: 122. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (767)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Jón Pálmason:

Herra forseti. Í tilefni af ræðu hv. frsm. meiri hl. fjhn. þykir mér ástæða til að segja nokkur orð í viðbót við það, sem ég hef áður sagt, út af brtt. mínum. Hann mælti gegn þeim báðum, og skal ég víkja nokkuð að þeim rökum, sem fram komu hjá honum.

Varðandi fyrri till. sagði hv. frsm., að valdið ætti að vera hjá stjórninni, en hún ætti svo að taka tillit til flokkastærðar og fleiri atriða. Ég verð nú að segja það, að mér þykir undarlegt að heyra þetta frá þessum hv. þm., því að ég efast ekki um, að hann viti, hvert það leiðir, ef þessi hugsun er hugsuð til enda. Með þessu frv. er farið inn á meiri haftabraut en dæmi eru til áður. Undir eina n. er lagt meira vald en áður hefur þekkzt í þessu landi. Ef valdið er hjá stjórninni, er það ekki hjá Alþ. Alþ. á þá aðeins að koma saman til þess að mynda stjórn, hún gefur svo út tóm brbl., sem Alþ. skal svo segja já eða nei við. Í þessu frv. er ekki orð um það, til hve langs tíma ráðið skuli skipað. Nú er það ekki venjulegt, að stjórnir sitji lengi. Nýr meiri hl. á Alþ. hefur tækifæri til að bera fram ný l., svo að nýtt ráð verði sett, og hver kann þá að ráða við, að á stuttum tíma verði algerlega skipt um stefnu, vegna þess að skipt hefur verið um flokka í ríkisstj.?

Við atkvgr. hér í hv. Alþ. hefur það komið í ljós, að 11/2 þingflokkur hafði snúið við blaðinu, vegna þess að skipt hafði verið um stjórnarflokka frá því í fyrra, en ég greiddi atkv. eins og í fyrra, því að ég kann ekki við svona vinnubrögð. Mér finnst því það eitt eiga við, að Alþ. kjósi ráðið og ákveði, til hve langs tíma það skuli kosið.

Varðandi seinni till. þá kunni hv. frsm. því illa að sjá það í lagagr., að gefið sé í skyn, að slagur sé milli kauptúnanna og sveitanna um framkvæmdir, það er ekki rétt orðað, að það sé slagur, það er samkeppni á milli sveitanna og stærri bæjanna og hefur verið nokkuð lengi, og það hefur farið svo, að sveitirnar hafa orðið undir, en Reykjavík orðið ofan á. Hún hefur nú blásið svo út, að þangað eru nú 2/5 landsmanna komnir, af því að atvinnu- og fjármálin hafa verið rekin á þá leið að draga fólkið hingað utan af landsbyggðinni, og svo langt er þetta gengið, að ýmsar sveitir landsins eru að leggjast í auðn af þessum sökum.

„Það er aldrei minni ástæða en í sambandi við þetta frv. að setja föst ákvæði um það, að framkvæmdir úti á landi skuli sitja fyrir“, sagði hv. frsm. Ég lít allt öðrum augum á þetta en hv. frsm. Ég tel aldrei meiri ástæðu en nú. Aðalatriði þessa frv. er að takmarka framkvæmdir í landinu frá því, sem fólkið vill hafa þær.

En þó að hægt sé að segja, að svo miklar framkvæmdir eigi að hefja úti á landi, að Reykjavík fái ekki neitt, þá er þó eftir að ákveða það, hver fær það fé, sem varið er til bygginga. Ef sveitirnar verða þar alveg út undan, verður áfram að rótast í því, að opinber völd byggi yfir fólkið. Ég álít því, að þetta sé vitlausara en allt, sem vitlaust er, og þess vegna vil ég skipta um, svo að framkvæmdirnar komi þar, sem skynsamlegt er vegna atvinnulífsins.

Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þessar till. Ég býst við, að svo sterkur hringur hafi verið sleginn um þetta frv. að fá það í gegn svo til óbreytt, að hvorki þessar eða aðrar till. nái samþykki.