06.05.1947
Neðri deild: 122. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í B-deild Alþingistíðinda. (770)
195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Jón Pálmason:
Herra forseti. Út af síðustu ræðu hv. frsm. meiri hl. fjhn. vildi ég gera tvær aths. Í sinni fyrri svarræðu sagði hv. frsm. meiri hl., að framkvæmdarvaldið ætti að vera hjá ríkisstj. Hér er í raun og veru í sambandi við mínar brtt. ekki verið að deila um framkvæmdarvaldið, eins og það orð er skilið. Deilan er um það, hvort valdið til þess að skipa þetta valdamikla fjárhagsráð eigi að vera hjá Alþ. eða ríkisstj. Og því held ég ákveðið fram, að frá mínu sjónarmiði sé það ósamboðið þinginu, þegar það er að kasta frá sér jafnmiklu valdi og hér er verið að gera, að það ekki einu sinni eigi að kjósa þessa nefnd, sem á að taka við valdinu.
Varðandi síðari brtt. mína sagði hv. frsm. meiri hl. n., að hún væri óframkvæmanleg eins og hún er. Þar fer hann villur vega, fyrst og fremst af því, að hann sneiðir alveg fram hjá höfuðatriðunum í þessari seinni brtt. minni. sem ég hef orðað svo: „Skal fjárhagsráð vera í samráði við nýbýlastjórn ríkisins, raforkuráð, vegamálastjóra og vitamálastjóra varðandi þær framkvæmdir, sem þeim aðilum koma við.“ En það eru þessir aðilar, sem hafa með að gera nálega allar framkvæmdir, eins og nú er komið, úti á landsbyggðinni á vegum ríkisins. Og allir þessir aðilar eru bundnir við lög og margvíslegar takmarkanir, bæði fjárveitingar frá Alþ. og annað. Þess vegna er það aðalatriðið í minni kröfu varðandi þessa brtt., að þetta fjárhagsráð eigi ekki og megi ekki koma í veg fyrir þær framkvæmdir, byggingar, samgöngubætur og annað, sem ákveðið er samkv. l., sem hér er um að ræða, að á að framkvæma — að þetta ráð geti ekki komið í veg fyrir þetta með því að láta fara til Reykjavíkur svo mikið af gjaldeyri, efni, vélum og vinnu sem oft hefur átt sér stað á undanförnum árum og stefnt er auðsjáanlega miklu meir að nú en nokkru sinni áður, eftir þeim grundvelli, sem þessi l. eiga að hvíla á. — Þessar aths. vildi ég láta koma fram. Að öðru leyti skal ég ekki fara fleiri orðum um þessar brtt.