12.05.1947
Neðri deild: 126. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í B-deild Alþingistíðinda. (789)
195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Ásgeir Ásgeirsson:
Hæstv. ríkisstj. hefur skv. stjórnarmyndunarsamningnum lagt fyrir Alþ. frv. um fjárhagsráð. Í þessu frv. er sameinuð starfsemi viðskiptaráðs og nýbyggingarráðs og bætt við einum höfuðkafla um fjárfestingu — eða með öðrum orðum ráðstöfunum á fjármagni til lengri tíma til hvers konar framfara í atvinnuvegum og aðbúð þjóðarinnar.
Hér er stigið fyrsta stóra sporið á langri leið, sem þjóðin á eftir að fara til að skapa jafnvægi og öryggi í atvinnumálum. Þetta verður ekki gert með einu frv. og 3 umræðum í báðum deildum Alþ., heldur er þetta fyrsta ákvörðunin um skipulega sókn að settu marki. Það stendur að vísu í 2. gr. frv., að fjárhagsráð skuli „samræma framkvæmdir einstaklinga og almannavaldsins, meðan hinar miklu framkvæmdir í íslenzku atvinnulífi standa yfir“. en það er hvort tveggja, að ráðinu er falið að hlutast til um, að miklar framkvæmdir haldi áfram í hinum ýmsu atvinnugreinum og eins hitt, að það þarf enginn að segja mér, að nokkur ábyrgur stjórnmálaflokkur vilji fella þessa löggjöf niður, ef atvinnuleysi steðjaði að við sjávarsíðuna og söluerfiðleikar fyrir bændur. Þetta orðalag er dregið af undanfarandi ástandi. Eftirspurn eftir vinnuafli hefur verið svo mikil, að það skapar miklar hættur fyrir framtíðina. Það er eins og allir vilji gera allt í einu með sívaxandi stofnkostnaði — þar til pendúllinn slæst um yfir í minnkandi framkvæmdir og minnkandi eftirspurn eftir vinnu og afurðum. Því lengra sem pendúllinn slæst til annarrar handarinnar, því lengra leitar hann til hinnar, ef ekkert er að gert. Flest leitar jafnvægis, og það er nú í lok hinnar síðari heimsstyrjaldar viðurkennd skylda í hverju siðuðu þjóðfélagi, að það þurfi að skapa festu og öryggi í atvinnumálum — ekki með klakahöggi á vetrum, eins og áður tíðkaðist, heldur með ráðstöfunum, sem sköpuðu þegar til lengdar lætur næga og arðbæra atvinnu jafnt fyrir verkamenn. sjómenn, iðnaðarmenn og bændur. Við Íslendingar erum ekki undanþegnir þessari nauðsyn, nema síður sé. Við skulum ekki ofmetnast af velgengni undanfarinna ára, heldur hafa í huga, að hún skapaðist af ófriðarástæðum, en engri nýbreytni í atvinnuháttum eða auknum þroska í þjóðfélagsmálum. Allur útflutningur þjóðarinnar greiddi aðeins rúmlega innflutning stríðsáranna, og stríðsgróðinn í erl. gjaldeyri, sem nú er að mestu búið að ráðstafa, átti rót sína að rekja til setuliðsins. Ef hér á að skapast varanleg velgengni, þá þurfum við nú að taka okkur til og láta hillingarnar ekki trufla okkur. Tvær síðustu ríkisstj. hafa lýst yfir því, að þær vilji stuðla að því, að öllum verkfærum mönnum verði tryggð næg og arðbær atvinna, og nær það jafnt til allra stétta, en yfirlýsingin ein verður skammgóð, ef ekkert er að gert til að ná þessu marki, svo að tryggt sé til frambúðar. En til þess er beinasta leiðin, að þjóðfélagið taki að sér það verkefni að sjá um, að fjárfesting sé hvorki óhæfilega mikil né lítil á hverjum tíma, og þær framkvæmdir hafi forgangsrétt, sem mestu varða fyrir alþjóðarheill.
Nú skyldi maður ætla, að þessu frv. væri fagnað af öllum, sem hafa opin augun fyrir núverandi ástandi og framtíðarþörf þjóðarinnar. En það er öðru nær. Sá flokkur þingsins, sem annars vill ganga lengst í afskiptum þjóðfélagsins af atvinnumálum, hefur nú upp þann söng, að nú sé verið að stöðva nýsköpun undanfarinna ára og skapa tilbúna kreppu handa auðmönnum og heildsölum til að græða á. Við 2. umr. þessa máls voru bornar fram till. af 2. þm. Reykv. (EOl), sem allt var talið velta á, en ekkert fengið með frv. ríkisstj. né framkvæmd hennar og fjárhagsráðs. Voru þær till. felldar, og mun það vera ástæðan til þessarar útvarpsumræðu. Skal nú vikið nánar að þessum brtt.
Þegar horfið er að skipulegri fjárfestingu, þá er fyrst að gera sér grein fyrir, hve mikill hluti af þjóðartekjunum þarf að fara til neyzlu og hve mikið sé hægt að taka frá til framfara — eða nýsköpunar, eins og nú er farið að kalla það. Ef um eldri sjóð er að ræða. þá er tiltölulega einfalt að taka frá tiltekna fjárhæð, t.d. 300 millj. eins og gert var fyrir 2 árum, en ef taka á gjaldeyrinn af óvissum þjóðartekjum, jafnóðum og þær skapast. þá vandast málið. Það má segja, að erfitt sé að tiltaka nokkra hundraðstölu í lögum, heldur verði á hverjum tíma að fara eftir ástæðum, áhuga ríkisstj. á því að hafa fjárhæðina svo háa sem frekast er unnt og samstarfsvilja almennings til að draga úr neyzlu sinni. Í frv. ríkisstj. er þó lagt til, að eigi skuli leggja minna en 15% af erlendum gjaldeyri á hverjum tíma til kaupa á framleiðslutækjum. Og ég legg hér áherzlu á, að hér er átt við framleiðslutæki og ekki ýmiss konar óarðbæran innflutning, sem komizt hefur á nýbyggingarreikning til þessa. En vitanlega þarf fjárhagsráð og ríkisstj. að gera þennan lista. Slíkt er ekki venja að lögfesta. Með góðum vilja ríkisstj. til að hafa hundraðshlutann svo háan sem aðstæður leyfa og gera sitt ýtrasta til að fullnægja eftirspurn eftir framleiðslutækjum — þá verður ekki annað sagt en að hér sé forsvaranlega um búið. En við 2. umr. bar hv. 2. þm. Reykv. fram brtt. um að leggja til hliðar, hvernig sem á stæði, 25% af útflutningsverðmæti, og taldi það þýða fullkomna stöðvun á öllum framförum, ef það væri ekki samþykkt. Því hærra sem farið er með þessa hlutfallstölu, því nauðsynlegra er að gera um leið ráðstafanir til, að tilsvarandi sparnaður sé innanlands, og vel gæti til þess komið, að það þyrfti að innleiða skömmtun á öllum nauðsynjum, skófatnaði, vefnaðarvöru og öðru, sem enn hefur ekki verið skammtað, skyldusparnað og annað, svo að kaupgetan sprengi ekki verðlagið innanlands. En engar till. þess efnis fylgdu till. 2. þm. Reykv. (EOl). enda væri það ekki í samræmi við þá kauphækkunarstefnu, sem nú er verið að hefja. En þetta er algengt fyrirbrigði í stjórnmálum — og mjög hættulegt fyrir það jafnvægi, sem nauðsynlegt er í áætlunarbúskap. Ég er þess fullviss, að ákvæði stjfrv. er hæfilegt sem lágmark, og aukið fjármagn til framfara verður að vera undir afkomu þjóðarinnar komið og samstarfsvilja almennings — bæði ríkra og fátækra. Þegar búið er að ráðstafa okkar setuliðságóða, þá verður ekki hjá komizt, að það hægi á ferðinni, og er þeim ekki um að kenna. sem við tekur. Þó verður haldið áfram á þeim brautum, sem síðasta stj. lagði út á, eftir beztu getu.
Í 2. gr. frv. er mælt svo fyrir, að fjárhagsráð samræmi framkvæmdir einstaklinga og almannavaldsins, svo að þær verði gerðar eftir fyrirfram samdri áætlun, sem ríkisstj. samþykki. og í 3. gr. að ársáætlanir skulu gerðar um heildarframkvæmdir. En við þetta bar hv. 2. þm. Reykv., Einar Olgeirsson. fram brtt. um, að gerðar skyldu 5–10 ára áætlanir um nýsköpun atvinnulífsins. Nú liggur það í augum uppi, að þegar gerðar eru ársáætlanir, þá þarf að hafa lengra sjónarmið. En þó er framtíðin ekki svo skýr — og það sízt nú fyrstu eftirstríðsárin —, að það sé vert að kalla þær hugleiðingar og ritgerðir, sem samdar eru um langa og óljósa framtíð: „staðfestar áætlanir ríkisstj.“ Fjárhagsráð með sínum aðstoðarmönnum þarf að gera sér ljósa hina stóru drætti þróunarinnar og vekja umhugsun og umræður meðal almennings um framtíðarmöguleika þjóðarinnar, en „áætlunar“ nafnið er rétt að takmarka við svo stuttan tíma, að einhverju sé að treysta um framkvæmdir. Það er margt fyrir okkur í óvissu, og ekki sízt hin erlendu viðskipti, — útflutningur, verðlag, efni og vélar, — að það er varlegra fyrir okkur fyrst um sinn að fara gætilega í ákvörðunum. Við erum byrjendur, sem þurfum að þreifa okkur áfram, og skipulagður þjóðarbúskapur stekkur ekki á einu vetfangi úr höfði neins nýsköpunarráðs eins og Aþena alvopnuð úr höfði Seifs forðum. Við erum byrjendur og vantar enn jafnvel hinn nauðsynlegasta hagfræðilega grundvöll. Okkur vantar líka menn, sem þurfa að alast upp við þessar nýju þjóðfélagsskyldur í nánu samstarfi við þá, sem eru hinir raunverulegu brautryðjendur atvinnuveganna. Þróunin verður ekki strikuð út af lærðum manni á skrifstofu og kölluð 10 ára áætlun. Það er jafnvel ekki úr vegi að benda á, að í sjálfu Ráðstjórnar-Rússlandi hófst ekki 5 ára áætlunarbúskapurinn fyrr en 10 árum eftir byltinguna, og er þó ólíkt hægara að áætla í landi, sem er heil heimsálfa og sjálfu sér nógt, og þar sem hægt er að flytja vinnuaflið eftir fyrirmælum yfirvaldanna — en í landi, sem á hálfa afkomu sína undir erlendum viðskiptum og ætlar að sveigja saman frjálsræði þegnanna og þörf þjóðarheildarinnar. Það má einnig minna á, að nýbyggingarráð úthlutaði sínum 300 millj. án þess að hafa nokkra 10 ára né heldur 5 ára áætlun í baksýn. Það mun því nógu hratt af stað farið að fela fjárhagsráði að gera áætlanir, sem þó geta ekki verið bindandi, til eins árs í senn og láta það frjálst um allar hugleiðingar og ráðagerðir til lengri tíma, sem hvort sem er koma ekki til úrslita eða framkvæmda fyrr en jafnóðum og árin líða.
Ég skal nefna til dæmis till. hv. 2. þm. Reykv. (EOl) um sjávarútveginn, sem á að vera eins konar 5 ára áætlun, samin af nýbyggingarráði, frá 1946 til 1951, og á þá árið 1951, eins og í till. segir. „að vera lokið höfuðframkvæmdum á því sviði“, og síðar er að vísu bætt við „í bráð“. Þar er lagt til að kaupa minnst 20 nýja togara. En þetta ákvæði á ekki heima í frv. um starfsaðferðir fjárhagsráðs og stefnumið. Slíkar till. má bera fram sérstakar, rétt eins og í tíð fyrrv. stjórnar, og skal ég alveg ósagt látið, hvort togarar verða 10–20 eða 30 fleiri eftir 4 ár en nú. — Þá er till. um að koma upp fiskiðjuverum ríkisins á 4 stöðum: Hornafirði, Vestmannaeyjum. Ísafirði og Suðurnesjum, en annars staðar eiga einstaklingar eða hreppsfélög að sjá um sig með lögákveðnum lánum. Nú má það merkilegt heita, ef ríkið á að reka slík fyrirtæki einmitt á þeim stöðum, sem sumir hverjir geta bezt bjargað sér sjálfir, — og skilja eftir hina smærri staði, sem engan atvinnurekstur hafa nema útgerð. Mér skilst á þessu, að þorpin séu flest of smá til að hægt sé að taka þau upp í þjóðarbúskapinn, og jafnframt sé ég í hinni stóru áætlun, að enga báta skuli byggja til 1951 minni en svo, að þeir geti verið einir um nót á síldveiðum. Það verða mörg sæmileg mið, landróðrar og jafnvel þorp, þar sem margir okkar beztu sjómenn hafa lært sjóinn frá barnsaldri, lögð niður, ef þessa áætlun á að samþykkja. Það er ekki svo. að ég sé hræddur um framkvæmd á þessu, en svona getur ýmislegt smávegis gleymzt á skrifstofum. — Þá er í brtt. Einars Olgeirssonar, hv. 2. þm. Reykv., fjárhagsráði falið að koma upp: lýsisherzluverksmiðju, síldarniðursuðu- og tunnuverksmiðju og einni síldarbræðslu, — en allt þetta er talið í sérstökum lögum og hér ekki þörf. Þá eru nefnd hraðfrystihús og hafnir og verbúðir, en um þetta gegnir sama máli, aðstoð ríkisins um lánveitingar til þeirra er einnig ákveðin í sérstökum lögum. — Þannig er þá um þessa 5 ára áætlun sjávarútvegsins, þar er, eins og sagt hefur verið, margt nýtt og margt gott, — en hitt á þó enn betur við, að hið góða er ekki nýtt. og hið nýja er ekki gott. — Það er margt fleira í 5 ára áætlun nýbyggingarráðs. sem hv. 2. þm. Reykv. (EOl) hefur ekki treystst til að taka upp í till. sínar, og skal ég ekki vanþakka þá viðleitni, sem þar er sýnd til að hugsa fram í tímann — en þetta sýnir og sannar, að hér er ekki um áætlun að ræða, sem á það nafn skilið í hinni nýju merkingu orðsins, heldur ritgerð eða hugvekju til að skapa umræður meðal sjómanna og útgerðarmanna, en á ekkert erindi inn í þetta frv. eða löggjöf að svo stöddu. Það er þó til varnaðar, að þeir, sem samið hafa þetta álit, virðast leggja til, að allt fjármagn þessara 5 ára fari til sjávarútvegsins eins — og fyrst síðar sé hægt að sinna öðrum limum þjóðarlíkamans. Svo fer stundum þeim, sem stara á einn blett, að þeir blindast fyrir umhverfinu. En það má sízt henda þá, sem eiga að áætla alhliða þróun atvinnulífsins, þó ekki sé nema til eins árs í senn.
Þá eru enn till. hv. 2. þm. Reykv. (EOl) um iðnaðinn, og bera þær þess vott, að ekkert fjármagn er honum ætlað fyrr en þróun sjávarútvegsins „er lokið í bráð“, eins og þar stendur. Á árunum 1950–1955 á að reisa slík raforkuver, að þau geti nægt til sköpunar stóriðju, sem þó er ekki getið, hver skuli vera, og skal þó skv. brtt. sérstaklega rannsaka virkjunarskilyrði við Urriðafoss í Þjórsá. Hins vegar er ekki í till. minnzt á hinn smærri iðnað, sem nú er til vísir að, og mætti þó ætla, að þar væru ýmis viðráðanleg viðfangsefni, og langt mun sumum brautryðjendum í hinum smærri iðnaði þykja að bíða fram yfir 1955 eftir því, að þjóðfélagið geti litið til þeirra í viðleitni sinni til að skapa hér atvinnu, öryggi og vellíðan. Ég er líka hræddur um, að ýmis héruð og fulltrúar þeirra hefðu líka viljað sjá sinn foss prýða frv. og ekki láta Urriðafoss einan kveða þar sína Gilitruttrímu fyrir alla þjóðina. En það er ekki í samræmi við eðli þessa frv. að nefna neinn einstakan eða heila tylft af fossum, og það skildu þingmenn yfirleitt. Það hafa nýlega verið sett raforkulög, og fjárhagsráð og ríkisstj. geta látið rannsaka alla þá virkjunarmöguleika, sem líklegastir eru taldir — og þá sérstaklega til að fullnægja þeim verkefnum, sem þegar eru fyrir hendi, — en ekki einhverri tröllaukinni stórvirkjun, sem enginn veit, hvað á að vinna.
Till. hv. 2. þm. Reykv., Einars Olgeirssonar, um 10 ára áætlun landbúnaðarins er til annars staðar, í frv. um framleiðsluráð landbúnaðarins, sem liggur fyrir þessu þingi, þó að hún sé öðruvísi orðuð þar og engin 10 ár nefnd. Þá skal og bent á, að í till. hans er ekkert um 5 eða 10 ára skipulagningu á framkvæmdum sjálfs ríkisins og einstakra bæja og hreppsfélaga, og eru það þó langsamlega stærstu vinnuveitendur þjóðarinnar. og fjárhagsráði skylt að hafa hliðsjón af þeim í heildaráætlunum sínum.
Það má með fullum sanni segja um þessa þrjá aðila: iðnaðinn, t.d. byggingar- og smáiðnað, sem ekki er mjög háður erlendum hráefnum, landbúnaðinn og þá sérstaklega ræktunarstarfið, sem og um almannavaldið, t.d. vega- og hafnargerðir, að þessir þrír aðilar eru líklegastir til að geta komið í veg fyrir tímabundið atvinnuleysi, því að framkvæmdir þeirra eru hvað mest óháðar erlendum viðskiptum og hægt að stofna til þeirra með tiltölulega stuttum fyrirvara. Það má því ætla þessum aðilum að taka af stærstu truflanir, sem leitt geta af snöggum verðbreytingum á erlendum markaði. Við ráðum bezt við þá starfsemi. sem notar mest innlend hráefni. Það er viðráðanlegast að afla fjár til slíkra starfa, því að það getur ekki talizt neinni þjóð hættulegt að skulda sjálfri sér, ef þjóðarauðurinn vex til jafns eða umfram skuldasöfnunina. En sé ekki almenningur nógu samstarfsfús, getur þurft að grípa til skyldusparnaðar eða lána, og er slíkt engin frágangssök.
Það er sama að segja um till. 2. þm. Reykv. (EOl) um byggingarmálin, að hún er óþörf til viðbótar ákvæðum sjálfs frv. um það, að fjárhagsráð skuli starfa að því, „að húsnæðisskorti og heilsuspillandi íbúðum, hvar sem er á landinu. verði útrýmt með byggingu hagkvæmra íbúða.“ Auk þess eru til nýleg lög um þetta efni, og vantar ekkert á annað en útvegun nægilegs fjár — en því ræður till. EOl enga bót á —. og er það eitt aðalviðfangsefni fjárhagsráðs og ríkisstj. að finna ráð til að leysa þann vanda.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast á till. EOI um verzlunina. Skal fjárhagsráð samkv. henni draga undan henni fjármagn og takmarka verzlunargróða, svo að aðrar atvinnugreinar þyki álitlegri. Nú er það svo, að álagningarvaldið er í höndum ríkisvaldsins. og þegar veitt eru innflutningsleyfi, verður ekki hjá því komizt, að einhver fari með þá verzlun. Þeir, sem vilja skipta við kaupmenn, eru frjálsir að því, og hinir, sem ekki vilja una heildsalaokrinu, eiga allir kost á að vera í samvinnufélögum og taka hinn mikla verzlunargróða undir sjálfum sér. En þegar koma slík ár eins og 1946, að útdeilt er innflutningsleyfum fyrir samtals 800 millj. kr., þá verður ekki hjá því komizt, að það hækki kaupmannagróðann, — og er þessi till. nokkuð seint á ferðinni til þess að koma í veg fyrir það. Minnkandi innflutningur nú og lægri álagning, sem nýlega hefur verið ákveðin, munu draga mjög úr verzlunargróða þessa árs. En það hefur víst ekki þótt fært að sleppa heildsölunum í brtt., því að nú er það mikil tízka að benda á þá, ef ríkið vantar fé eða lífga þarf kjósendur um kosningar. Það er fámenn stétt og þægileg, líkt eins og Gyðingar fyrir Hitler. En ólíkt kann ég betur við ákvæði sjálfs frv. um þetta efni, en það hljóðar svo: „Að neytendur eigi kost á að kaupa neyzluvörur sínar og framleiðendur rekstrarvörur sínar á hagkvæmasta hátt og vörukaup til landsins og vörudreifing innanlands gerð eins ódýr og hagkvæm og frekast er unnt.“ Er hér miðað við hagsmuni neytenda og framleiðenda og frjáls viðskipti þeirra, — og ætti það að ná réttmætum tilgangi.
Við annað hljóð kveður aftur í brtt. hv. 2. þm. Reykv. (EOl) um svonefndar framleiðslunefndir, sem stofna má á vinnustöðum, þ.e.a.s. við hvert framleiðslufyrirtæki sem er, og eiga að hafa „rétt til þess að fá aðgang að reikningum viðkomandi fyrirtækja til þess að geta gert tillögur um bætt rekstrarskipulag, betri hagnýtingu fjármagnsins, viturlegri innkaup eða sölu og sparnað við stjórn og rekstur fyrirtækisins.“ Það er ekkert nánar tekið fram um það, hvernig til þessara nefnda skuli stofnað, en hér er öllum landslýðnum vísað inn á skrifstofu hvaða framleiðslufyrirtækis sem er og gerast þar nokkurs konar forstjóri. Ekki veit ég, hvort þetta er gert til að hvetja þá, sem einhver peningaráð hafa, til að stofna ný fyrirtæki, en hitt þykist ég vita, að svona tillaga verður vart samþykkt á Alþingi, meðan nokkuð er byggt á einstaklingsrekstri. Á þennan hátt er ekki hægt að stjórna fyrirtækjum. Það er máske ekki ástæðulaust að benda á í þessu sambandi, að þó að verkarnannanefndir yfirtækju verksmiðjur og atvinnufyrirtæki í Rússlandi í byltingunni. þá var snemma á árum Leníns horfið frá því og að eins manns forstjórn, sem var svo ábyrgur gagnvart ríkisvaldinu. Ef ísl. ríkisvald teldi sér rétt að hafa afskipti af einstaklingsrekstri, þá mundi allur annar háttur vera hafður á en lagt er til í þessari till., — enda hefur nýbyggingarráð átt þátt í að auka og stofna mörg ný fyrirtæki án nokkurrar slíkrar klásúlu.
Ég hef nú sýnt fram á, að till. hv. 2. þm. Reykv. (EOl), sem allar voru felldar, eru ekki nauðsynlegar fyrir tilgang og starfsemi fjárhagsráðs. Sumar þeirra geta að vísu verið til leiðbeiningar, en eiga ekki við í lögum. Þegar stigið er fyrsta stóra sporið til samræmingar í atvinnulífi þjóðarinnar, ætti sízt að vera ástæða til að halda því fram, að stofnað sé til stöðvunar og atvinnuleysis. Við ættum allir að geta verið sammála um, að þjóðfélagið hefur tök á því að samræma og örva framkvæmdir í landinu. Þjóðfélagsvaldið eitt er þess umkomið að skapa jafnvægi: stuðla að því, að fjármagnið sé hæfilegt til að halda öllum höndum starfandi. Ríkisvaldið eitt getur dregið úr forgangsleyfum, þegar eftirspurnin er of ör, og ríkisvaldið á að hafa forustu um að örva framtakssemina, þegar þess þarf með, og leggja sinn skerf til. Þjóðfélagið hefur möguleika, sem eru á einskis félags eða einstaklings valdi, og þó ekki til fulls nema þegnarnir sýni skilning og samstarfsvilja. Þjóðfélagið getur ákveðið, hve mikið af þjóðartekjunum skuli ganga til neyzlu, en það er erfitt að klípa af neyzlunni, nema þegnarnir séu fúsir til sparnaðar og vilji leggja að sér um skeið til að ná betri árangri í framtíðinni um almenn lífsskilyrði og menningu. Það er ekki hægt að festa annað verðmæti en það, sem er afgangs neyzlunni. Fjárfestingin getur ekki að ósekju farið fram úr sparnaðinum. Möguleikum þjóðfélagsins eru takmörk sett. Gullkálfurinn á að vísu að vera þjónn, þarfasti þjónninn, — en það verður að fara vel með hann, eins og hvert annað húsdýr.
Mér kemur ekki til hugar að halda því fram, þó að við tökum nú upp eftirlit með fjárfestingu og framkvæmdum, að við höfum himin höndum tekið og að aldrei komi hér framar atvinnuleysi né óáran. Það eru ýmis öfl og ytri skilyrði, sem við ráðum ekki einir við. Svo er um aflamagn og uppskeru. Okkar þjóð hefur meiri erlend viðskipti á nef en allar aðrar þjóðir. Við erum háðir þróuninni í viðskiptum og þjóðfélagsmálum annarra þjóða. Það er erfitt að sjá fyrir okkar erlendu markaðsskilyrði. Útflutningur okkar er einhæfur. Sjávarútvegurinn verður að borga svo að segja allt, sem þetta land vantar: timbur, málma og korn. Og af okkar útflutningsvöru er ég hræddur um. að ekki sé nema ein tegund, sem nú væri hægt að selja til nokkurs arðs — en það er lýsið. Það er feitmetishungur, og má reikna út, að það kemur til að vara um hríð. En lýsið getum við ekki selt frá fiskinum, sem bæði hefur þrengri markað og borgar ekki framleiðslukostnað eins og stendur. Jafnvel Rússinn vill ekki greiða framleiðslukostnaðinn, og þó virðast vinir þeirra hér á landi vera í þeim ham, að ætla enn að auka framleiðslukostnaðinn. Til langframa er ekki hægt að framleiða yfir markaðsverði. Áætlunarbúskapurinn verður að bera sig eins og hver annar búskapur. Og hann verður að vera liður í stærri áætlun margra þjóða. En svo er fyrir þakkandi. að flestar þjóðir taka nú upp áætlunarbúskap í einhverri mynd.
Sá áætlunarbúskapur, sem hér er hafizt handa um, byggist á frjálsri þjóðfélagsskipun. Það er framtak einstaklingsins, framleiðslu- og kaupfélaga, sveitarfélaga, bæjarfélaga og ríkisheildarinnar, sem á að samræma og jafna frá ári til árs. Framtak og atorka einstaklingsins og félagssamtaka er enn grundvöllurinn — en þó ekki einhlítt til að stýra þróuninni. Þar þarf almannasamtök til. Hér er ekki stefnt að þjóðnýtingu á öllum sviðum. Okkur Íslendingum dugar ekki neinn einn —ismi, hvort sem það er kapítalismi eða kommúnismi. Okkar þróun verður svipuð og hjá okkar skyldustu þjóðum vestrænnar menningar, atvinnureksturinn skiptist eftir eðli sínu milli einstaklinga, samtaka, bæjarfélaga og ríkisins sjálfs, — en þjóðfélagið stýrir þróuninni til aukinna framfara, velmegunar og menningar.