14.05.1947
Efri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (806)
195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég stend aðeins upp til þess að láta í ljós undrun mína yfir því, að enginn af hæstv. ráðh. skuli sýna þessu stórmáli þann sóma að vera viðstaddur í d., þegar umr. fara fram um það. Þar sem ég tel slíkt alveg ótilhlýðilegt, þá mun ég ekki taka þátt í neinni atkvgr. um málið nú.