21.05.1947
Efri deild: 139. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (812)
195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara langt út í að ræða þetta mál, það hefur þegar verið rætt allmikið hér á þingi og einnig í útvarpi. Ég get þó ekki skilið svo við málið að lýsa ekki ánægju minni yfir því, að gerð er tilraun til þess að koma einhverju skipulagi á fjárfestingu, því að það þarf ekki annað en að líta á það, að nú er svo komið í landinu, að þeir aðilar, sem hafa ábyrgð ríkissjóðs, geta ekki einu sinni fengið lán til þess að framkvæma þau nauðsynlegustu verkefni, sem ríkisstj. eða Alþ. telur, að séu svo mikilvæg, að það heimilar ríkisstj. að ábyrgjast allt að 85% af öllum stofnkostnaði af öllum rafveitum og raforkuverum o.fl., og hefur þá fyrst eitthvert fé fengizt, og skal ég ekki fara út í það.
En mér er sérstaklega kunnugt um, hvernig hefur gengið með þessi mál, og hlýtur það að verða fyrsta verk þessa fyrirhugaða ráðs að reyna að skapa fé til þess að starfrækja orkuver og eitt og annað, sem nauðsynlegt er að koma áfram.
Ég ætla að segja nokkur orð um brtt. n. á þskj. 918. Þetta hefur verið fært í það horf, sem upphaflega var í frv., þegar það var lagt fram, þ.e.a.s. ef samþ. verður a-liður við 13. gr., þ.e. hvernig skipta skuli gjaldeyri milli bankanna, og mun þetta vera nokkurn veginn eða alveg eins og það er ákveðið nú í l. Nú er það svo, að Útvegsbankinn fær hér aðeins 1/3 af gjaldeyrinum, en um þetta var fullt samkomulag, og var lýst yfir af þáverandi fjmrh., Birni Ólafssyni, að þótt þetta væri ekki sett inn í l., þá var gefið fyrirheit um, að þetta skyldi vera svona, og þetta fyrirheit hefur verið haldið, að Útvegsbankinn fengi ekki nema 1/3 af gjaldeyri með innkaupsverði. Þá skyldi hann eiga kost á því að fá með söluverði það af erlendum gjaldeyri, sem hann þyrfti. Þessu mun hafa verið haldið, þar til nú alveg nýlega, að á þessu varð töluverð breyt., svoleiðis að viðskiptamenn, sem hafa þar viðskipti, hafa orðið fyrir töluverðum erfiðleikum út úr því atriði. Mér þætti vænt um að heyra, hvort n. hefur kynnt sér það mál. Mér er kunnugt um það, að á síðasta ári mun Útvegsbankinn hafa greitt sem svarar 500000 kr. í vaxtamismun fyrir það að kaupa þá hluti, sem hann þurfti að fá, en átti ekki heimild á samkvæmt l. Þessar 500000 kr. lagði svo bankinn á herðar viðskiptamanna bankans, þeirra manna, sem afla þessa gjaldeyris, og bankinn hafði áður orðið að hækka vexti til sinna viðskiptavina. af því að hann hafði ekki eins góð kjör og aðrir bankar. Þess vegna er nauðsynlegt, jafnframt því sem hér er ákveðið, að bankinn skuli hafa 1/3 af gjaldeyri. að setja tryggingu fyrir því í löggjöf, að hann eigi a.m.k. kröfu á því að fá það, sem hann þarf af gjaldeyri, eins og hefur verið „praktíserað“ undanfarin ár og loforð hafa verið gefin um. Ég hefði þó helzt óskað eftir því, að sú breyt. yrði gerð hér á, að framleiðendur, sem flytja vörur út, fengju sjálfir að ráða því, á hvern hátt bankarnir skila sínum gjaldeyri, og skal ég færa fyrir því nokkur rök. Í fyrsta lagi komu háværar kröfur um það frá útgerðarmönnum á síðasta landssambandsaðalfundi, að þeir fengju með l. ákveðinn hluta af sínum gjaldeyri til þess að ráðstafa sjálfir. Ég hef ekki getað fallizt á þessa till., og það er vegna þess, að þeir töldu, að þeir ættu meiri rétt á þessum gjaldeyri, vegna þess að þeirra starf væri í því fólgið að afla gjaldeyris, en aðrir, sem flytja inn vörur. Um þetta má deila, þetta er þeirra skoðun. En um hitt verður ekki deilt, að það getur ekki talizt ósanngjarnt, að þeir, sem flytja inn erlendan gjaldeyri, fengju að ráða því, hvort þessi gjaldeyrir fari til þess banka, sem hjálpar þeim í viðskiptum, eða til þess banka, sem ekki hjálpar þeim. Og ég verð að benda n. á það, að eitt af undirstöðuatriðunum í öllu fjármálalífi þjóðarinnar er það. að útflutningur bregðist ekki og það séu fleiri menn, sem vilja starfa við útflutning en við innflutning eða eitthvert annað starf, sem ekki gefur erlendan gjaldeyri. Mér er það alveg persónulega kunnugt, að á þeim tíma, sem við áttum í baráttu með gjaldeyrismálin, 1930–1939, þá var það einmitt útvegsbankinn, sem hjálpaði mest til þess að koma upp nýjum fyrirtækjum, sem skapa útflutning. Ég segi þetta ekki sem árás á landsbankann, hann hafði þá eins og nú ýmsum skyldum að sinna, eins og að sjá fyrir erlendum gjaldeyri fyrir ríkið, en ég er að benda á þetta sem staðreynd, og fyrir þessu má ekki loka augunum. Ef því útflytjendur vilja og telja sér hag í því vegna útflutnings og vegna öflunar erlends gjaldeyris og vilja frekar hafa einn banka en annan, þá tel ég sjálfsagt og skylt að mæta þeim óskum. Ég vil því óska þess, að n. taki þetta mál enn til athugunar, hvort ekki sé fært að setja það ákvæði inn, að útflytjendur mættu ráða hvaða banka þeir afhenda sinn gjaldeyri, eða ef það er ekki unnt. þá a.m.k. að setja inn, að sá banki, sem fær minni hlut. skuli mega kaupa það, sem hann þarf fyrir sína viðskiptavini, af hinum bankanum með kaupverði, og ef ekki það fæst, þá með söluverði. Um b-lið er það að segja. að um þá till. er ég ekki sammála n. Þessi till. er ný og hefur ekki komið inn í frv. áður, og ég sé ekki, að þessi leið sé til bóta. Hér er verið að setja upp eina sérstaka n., sem heitir millibankan., sem mér skilst, að eigi að ákveða. í hvaða röð leyfi skuli afgreidd. Ef fjármálakerfi þjóðarinnar kemur inn í þann farveg aftur, að ekki sé hægt að afgreiða leyfi, sem gefin eru út, þá hlýtur það að verða verkefni fjárhagsráðs, en ekki millibankan., að ákveða. hvað eigi að ganga fyrir og hvað ekki. Ef það ástand skapast, þá tel ég sjálfsagt, að slík leyfi, sem gefin eru út, séu stöðvuð, sé ekki hægt að uppfylla þau eða færa peninga inn. Ég vil benda n. á það, að það er upplýst í Sþ., að það hafi verið gefin út leyfi fyrir 4–5 millj. kr. meira á s.l. ári til bílavarahluta heldur en hefur verið notað, og ef þetta er þannig um fleiri vörutegundir, að gefin hafi verið út 30–50% meiri leyfi en nauðsynlegt hafi verið að flytja inn, þá er ekki að furða, þó að gangi á gjaldeyrinn. Ég get ímyndað mér, að hér verði tekin upp önnur stefna, og það er, að fjárhagsráð flokki leyfin eftir því, hvað er óhjákvæmilegt á hverjum tíma. Það yrðu þá fyrst og fremst veitt leyfi til þess, sem þjóðin þarf af útlendum afurðum til að geta fætt sig, og þess, sem hún þarf til þess að geta framleitt ný verðmæti til útflutnings, og þann flokk mætti aldrei stöðva, það yrði þá frekar að taka gjaldeyrislán erlendis en að stöðva þann flokk. Það ætti ekki að vera millibankan., sem ákvæði, hvernig þeim leyfum væri úthlutað, heldur fjárhagsráð, frá mínu sjónarmiði, ef hér yrði um nokkra verulega erfiðleika að ræða.
Á þeim erfiðu árum 1930–1939 þá var það víst sumum mönnum ekkert lítil tekjulind að verzla með gjaldeyrisleyfi, og ég tel mjög óheppilegt að skapa þá aðstöðu hér, að nokkur milliliður eigi að taka á sig þetta, sem ætlazt er til með þessari gr., og vil alvarlega vara við því að samþykkja gr. eins og hún liggur fyrir. Ég sé ekki ástæðu til þess á þessu stigi málsins að ræða frv. að öðru leyti. En ég vildi mjög mælast til þess, að hæstv. fjmrh. og n. athugi, hvort ekki væri fært fyrir 3. umr. að taka þennan b-lið til baka. og síðan, hvort ekki væri hægt að setja inn í gr. þau ákvæði, sem ég hef talað um, til réttlætingar á þessu máli.