21.05.1947
Efri deild: 139. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (821)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Gísli Jónsson:

Ég vil ekki misbjóða þolinmæði hæstv. forseta. Ég ætla að geyma mér til 3. umr. að kitla hv. 3. landsk. Út af ummælum hv. frsm. vil ég segja, að mér þykir ákaflega leitt, að hann hefur ekki skilið mín ummæli í þessu máli. Ég hef aldrei beðið hann að taka aftur alla tillgr., en b-liðinn. Ég einmitt tók fram, að ekkert gerði til, þó að a-liðurinn færi í gegn, því að við hann mætti bæta. Ég mun bera fram brtt. við frv. við 3. umr., vil ekki lýsa þeim nú, en læt þetta nægja.