21.05.1947
Efri deild: 140. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (833)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Hannibal Valdimarsson:

Ég legg ekki mikið upp úr síðustu orðum hv. þm. Barð. frekar en þeim fyrstu. Ef um nokkra framlengingu mína eða minna pappíra er að ræða, þá væri það ekki á, valdi neinna hér, heldur kjósenda minna í Norður-Ísafjarðarsýslu.

Hann var að tala um afstöðu mína í lýðveldismálinu. Ein ástæðan til þess, að ég ákvað að bjóða mig fram, var sú, að ég vildi sýna, hvernig brugðizt var við þessu, og þrátt fyrir allan áróður varð niðurstaðan sú, að 17% af kjósendum greiddu atkvæði á þann hátt, að þeir skiluðu auðu eða sögðu nei um stjskr. Ég skal viðurkenna það, að sjálfstæðismenn voru til, sem voru á sama máli. Voru það t.d. flokksbræður hv. þm. Barð., eins og séra Bjarni Jónsson o.fl., en þeir hafa síðan verið taldir nógu góðir til að punta upp á lista íhaldsins, þó að þetta væru talin flokkssvik 1944.

Ég heyri. að Sigurður Kristjánsson er að tala í Nd., og er þá ástæða til að minnast á það. að það mun hafa verið maður af skrifstofu hans, sem hringdi mig upp 17. júní 1944 til þess að votta mér fyrirlitningu sína. Þannig voru menn í þjónustu landsins látnir hringja menn upp, þar á meðal Bjarna Jónsson vígslubiskup, og mér var sýnd sú virðing vestur á Ísafirði, að þessir menn vottuðu mér fyrirlitningu sína.

Hv. þm. Barð minntist á verksmiðju Kveldúlfs á Hesteyri. Ekkert dæmir einstaklingsframtakið betur en einmitt verksmiðja Kveldúlfs á Hesteyri. Fyrir hvern var hún rekin? Fyrir einstaklinginn. Reksturinn hélt áfram, meðan Kveldúlfur græddi. Þegar það var talið hagkvæmara að flytja sig, þá var það gert og verksmiðjurnar skildar eftir. Þetta þurfti að leggja í auðn, af því að einstaklingsframtakið sveik. Þannig hafa fleiri þorp á Vestfjörðum verið lögð í auðn. Það er ekki langt síðan þorpið Bíldudalur var lagt í auðn, og það ekki af útlendingum. þó að það hafi nú reist höfuðið frá koddanum.

Atvinnurekstri, sem ekki er rekinn með hag almennings fyrir augum. er valt að treysta. Ef hv. þm. Barð. á eftir að verða formaður fjárfestingarráðs, þá held ég, að það sé gott fyrir hann að horfa til Hesteyrar og Bíldudals, eins og þau þorp voru, þegar einstaklingsframtakið lék þau verst. og það, sem við Sigurður Bjarnason meinum með þessari till. okkar, er að reyna að láta eitthvað af húsakynnunum og byggingaræflunum koma að notum. ef hægt væri að fá þau keypt fyrir skikkanlegt verð. Þarna yrði þá ef til vill hægt að skapa fyrirtæki, sem gæti orðið til frambúðar fyrir þorpsbúa.

Ég á þarna brtt. við 10. gr. frv., og er hún aðeins til þess að orðalag gr. fari betur. Hér segir í frv., að fjárhagsráð skuli starfrækja innflutnings- og gjaldeyrisdeild. Ég kann illa við orðalagið. Tel ég betra, að það væri orðað þannig, að „undir yfirstjórn fjárhagsráðs starfar innflutnings- og gjaldeyrisdeild“. Efnisbreyt. er engin, en mér finnst hún betur orðuð þannig og vænti, að hv. þm. sjái sér fært að samþykkja hana. Það er ekki af því, að ég teldi ekki ástæðu til, eins og ég sýndi við atkvgr. til 2. umr., að ýmsar aðrar brtt. væru samþ., en ég hef ekki flutt þær fleiri. En ég tel, að það, sem mestu máli skiptir um þetta mál, sé það, hvernig til tekst með framkvæmdirnar. Ef framkvæmdir verða röggsamlegar, inntar af hendi af sannfæringu og krafti þeirra manna. sem vilja notfæra sér yfirburði þjóðnýtingarbúskaparins. get ég verið ánægður með þessa lagasmíð. En ég veit, að hún fer í handaskolum. er andúð á „planökónómí“ ræður aðgerðum þeirra manna, sem með framkvæmdirnar fara.