17.05.1947
Neðri deild: 130. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (859)

240. mál, félagsheimili

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Eftir að 2. umr. þessa máls lauk hér í d., var útbýtt brtt. við frv. frá hv. þm. Borgf.. sem prentuð er á þskj. 847. Menntmn. kom saman á fund í dag og athugaði m.a. þessar brtt. Vill hún fyrir sitt leyti vera með fyrri brtt., þar sem segir, að aftan við 1. gr. bætist nýr málsl., svo hljóðandi: „Sama gildir um samkomuhús sveitarfélaga.“ Þetta er engin efnisbreyting frá því, sem frv. gerir ráð fyrir, en það er ekki nema vel til fallið að kveða skýrar að orði um þetta í 1. gr. en áður hefur verið gert í frv. Á hinn bóginn getur n. ekki fallizt á að mæla með síðari brtt. á sama þskj., sem fjallar um að fella 4. gr. frv. niður. Það leiðir af sjálfu sér. að um leið og þessi viðbót er færð á 1. gr., þarf að koma að dálítilli orðabreytingu við upphaf 4. gr., og leyfir n. sér að bera fram skriflega brtt. þess efnis, að upphaf 4. gr. orðist svo: „Nú hefur sveitarfélag eða sveitarfélög forgöngu um byggingu félagsheimilis og áskilur sér rétt til þess að nota húsið að meira eða minna leyti til annarrar starfsemi en um ræðir í 1. gr., og skal þá draga frá byggingarkostnaði þess“ o.s.frv. Um þetta atriði hefur nokkuð verið rætt á fyrra stigi málsins, og skal ég ekki endurtaka neitt af því, sem komið hefur fram um það, en til viðbótar við það, sem áður hefur sagt verið, vil ég benda á, að þessi hugmynd varðandi 4. gr. en engan veginn ný. Á 2 eða 3 undanförnum þingum hefur borgarstjórinn í Reykjavík, núverandi hæstv. dómsmrh. (BBen), flutt frv. til l. um æskulýðshöll í Reykjavík, og nú á þessu þingi hefur þetta frv. verið tekið upp af hv. 7. þm. Reykv. (JóhH), sem er fulltrúi í bæjarstjórn Reykjavíkur. Í 1. gr. þess frv. segir svo. með leyfi hæstv. forseta: „Ríkissjóður og Reykjavíkurborg reisa í félagi æskulýðshöll í Reykjavík. Leggur Reykjavík til hæfilega lóð undir höllina ókeypis, en að öðru leyti taka báðir aðilar jafnan þátt í kostnaði af byggingu og rekstri hallarinnar. Ef bæjarbókasafn Reykjavíkur verður í höllinni, þá skal Reykjavík ein bera allan kostnað þar af, enda skal það ákveðið með mati þriggja dómkvaddra manna, hversu mikill aukinn kostnaður af byggingu hallarinnar hafi orðið vegna bókasafnsins og hversu mikinn þátt Reykjavíkurborg skuli aukreitis taka í viðhaldi hallarinnar vegna bókasafnsins.“ Ég drep á þetta til þess að benda mönnum á, að 4. gr. frv. er fjarri því að vera nokkuð viðsjárverð og felur ekki í sjálfu sér neitt það nýmæli, sem ágreiningur hafi verið um meðal þeirra manna, sem um þetta hafa hugsað og fjallað að undanförnu.

Í 10. gr. frv. segir. að til greina geti komið að styrkja hús, sem nú séu í smíðum, ef byrjað hafi verið á byggingu þeirra eftir 1. janúar 1942. N. hefur nokkuð athugað þetta og komizt að þeirri niðurstöðu, að með þessu væri farið nokkuð langt aftur í tímann, og leggur því til, að í stað „1. janúar 1942“ í 10. gr. komi: 1. janúar 1944. — Þessar tvær skriflegu brtt., sem n. flytur og er einhuga um, leyfi ég mér hér með að afhenda hæstv. forseta.