18.12.1946
Efri deild: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

45. mál, menntaskólar

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson):

Ég get gefið þær upplýsingar, að n. hefur ekki fengið neina nákvæma skýrslu um, hver séu heildarlaun einstakra kennara við hina ýmsu skóla, en hitt er kunnugt, að við þennan skóla hafa verið mjög mikil kennaravandræði nú síðustu ár. Það ástand hefur skapazt sérstaklega í stríðinu og einkum eftir að nemendum fjölgaði stórlega. Rektor hefur því neyðzt til að láta kennara skólans taka aukakennslu og hefur fengið til þess menn, sem eru fastir kennarar við skólann. Um sundurliðun á því er mér ekki kunnugt nákvæmlega. Hitt er líka ljóst, að það ástand, sem hér ríkir, er sennilega bráðabirgðaástand, vegna þess að vitanlega liggur það fyrir, eftir því sem möguleikar leyfa, að fengnir verði að skólanum nægilega margir menn með nauðsynlega menntun til að annast kennslu þar, því að það þyrfti að fjölga föstum kennurum við skólann í samræmi við þá þörf, sem þar er.