28.10.1946
Efri deild: 5. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í B-deild Alþingistíðinda. (872)
27. mál, eftirlit með skipum
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta mál er ekki nýtt, það var flutt á Alþ. í fyrra og kemur nú fram á sama stigi og skilið var við það í þessari hv. d. Það voru gerðar við það lítils háttar breyt. í Nd., sem hafa verið færðar inn í frv., svo að það kemur fram í sömu mynd og það var í, þegar umr. lauk um það þá, en umr. var ekki lokið um það hér, þegar síðasta aðalþingi lauk.
Ég skal ekki fara langt í að skýra efni frv. Það fylgdi því í fyrra ýtarleg grg., sem að vísu hefur ekki verið prentuð upp nú, en er að finna í þskj. frá þinginu 1945 og skýrir málið mjög rækilega. Frv. er samið af mþn., sem skipuð var snemma á árinu 1944 til að endurskoða lögin um eftirlit með skipum, og hafði hún til hliðsjónar hliðstæður erlendis frá þeim löndum, sem hún náði til, og hygg ég, að hún hafi unnið störf sín mjög samvizkusamlega og tekið allt til greina í þessu sambandi. E.t.v. má segja um sumt af því, sem hér er bent á, að það orki tvímælis. En allt er það sett fram í þeim tilgangi að reyna að auka öryggið og tryggja öruggt eftirlit með öllum fleytum og förum, sem ferðast hér við land. Eins og gefur að skilja, hefur frv. í för með sér ýmsar breyt. frá því, sem núgildandi l. kveða á um í þessum efnum. Eru þær helztu í fyrsta lagi, að nú eru settar almennar reglur um byggingar, breytingar og innflutning skipa. Í öðru lagi, að skipaeftirliti ríkisins er komið í fast horf, og í þriðja lagi, að settur er á laggirnar sérstakur dómstóll til þess að dæma í refsimálum út af slysum og þess háttar málum. Enn eru ný ákvæði um það, að refsifyrirmæli l. eru hert og varða réttindasviptingu í sumum tilfellum.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa um þetta langt mál. Það er öllum hv. þm. ljóst, að nauðsyn ber til að koma þessum málum í eins öruggt horf og frekast má verða, sem fyrst og fremst verður gert með því að hafa þær fleytur og þau för, sem sjófarendur eru á, eins tryggilega útbúin og frekast eru föng á, en á það hefur stundum verið talið bresta nokkuð.
Eins og ég sagði, þá hefur frv. verið hér fyrir áður, svo að mönnum hefur gefizt nokkurt tóm til að athuga það. Verður það til þess að greiða fyrir götu málsins í þessari deild. Vil ég svo leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til sjútvn.