19.03.1947
Efri deild: 97. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 966 í B-deild Alþingistíðinda. (889)

27. mál, eftirlit með skipum

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það var eitt atriði, sem kom frá hv. 1. landsk., er hann gaf þá yfirlýsingu, að hann hefði ætlað sér að gera kaup með atkv. og hefði þá verið fús til að fylgja mínum till. að útiloka Alþýðusambandið. Ég hélt nú ekki, að hv. þm. mundi stofna þingheiðri sínum í hættu með þessu.