18.12.1946
Efri deild: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (89)
45. mál, menntaskólar
Hannibal Valdimarsson:
Mér heyrist á öllum ræðum hv. þm. Barð., að hann telji vinnutíma kennaranna 24 tíma á viku. Ef hann meinar þetta, þá vil ég segja honum. að þetta er argur misskilningur. Ég hygg, að flestir samvizkusamir kennarar vinni allt að 100% meira en stundaskráin segir til. Mér þykir líka furðulegt, ef hann ætlar að ákveða vinnutímann eftir upplýsingum um, hvað aukakennarar hafa á þessu skólaári. en aukakennslan byggist á því, að það fáist ekki nægilega margir kennarar að skólanum. Kennararnir hafa síður en svo óskað eftir að hafa þessa aukakennslu, því að þeim nægir fullkomlega það skyldustarf, sem þeir hafa, en þeir gera það fyrir bænarstað stjórnarvalda að taka á sig þessa aukakennslu, til þess að skólinn geti starfað.
Hv. þm. Barð. er alltaf að tala um hin óhóflega háu laun, sem kennararnir hafi fyrir þessa aukakennslu, og að föst laun og aukalaun þeirra geti farið allt upp í 50 þús. kr. Mun hann þar eiga sérstaklega við einn kennara skólans, Kristinn Ármannsson. Hann mun ekki aðeins hafa aukakennslu við þennan skóla, heldur líka við háskólann vegna skorts á kennurum þar. Mun hann kenna þar latínu eða grísku. Það er því ómögulegt að ákveða kennslustundafjölda kennaranna eftir kennslustundafjölda þeirra á þessu skólaári. Mér finnst því, að upplýsingar um þetta væru kannske fróðlegar fyrir hv. þm., en ekki vera neitt atriði til að ráða úrslitum um afgreiðslu þessa máls. það er vitanlegt, að þegar skólinn byrjaði í haust. óskuðu fastir kennarar eftir að losna við alla aukakennslu og vildu fá að vinna svipaðan tíma og þeir gerðu áður l. samkvæmt.
Ég hef hlýtt á þessar umr., og ég veit, að hv. þm. hefur farið þar með rangt mál, þegar hann ræðir um lengd kennslustundanna. Hann blandar þar saman lengd kennslustundanna. Hann blandar þar saman lengd kennslustunda á gagnfræðaskólastiginu og í menntaskólunum. Hann segir, að stundirnar hafi verið styttar úr 50 mín. niður í 45 mín. Þetta er rangt. Kennslustundin hefur verið í áratugi 45 mín., en í gagnfræðaskólunum er hún 50 mín. Auk þess er það upplýst mál, að þessar brtt., sem hér liggja fyrir, eru brot á samkomulagi. sem gert var í haust milli menntaskólans og hæstv. menntmrh. Það má vel vera, að hv. þm. Barð. virði það einskis, þó að hæstv. ráðh. hafi orðið að gera slíkt samkomulag, og vilji láta þingið koma og rjúfa það á miðju skólaári. en ég tel það ósæmilegt, hvort sem viðkomandi ráðh. er flokksmaður eða andstæðingur. Þetta hefur verið gert af nauðsyn fyrir menntaskólana í landinu, en ekki af neinni tilhneigingu til að hlaða óhóflega undir þessa stétt, enda stendur öll hæstv. stjórn að þessu máli. og mér hefur verið tjáð af öðrum hæstv. ráðh., að þeir séu jafnbundnir af þessu samkomulagi. og tel ég því, eins og fyrr segir, ósæmilegt að rjúfa það samkomulag á miðju skólaári.