20.05.1947
Efri deild: 138. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (904)

27. mál, eftirlit með skipum

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja mjög umr. um þetta mál, en vil þó fara nokkrum orðum um það deiluatriði, sem hér er á ferðinni. Mér þykir vænt um, að hæstv„ dómsmrh. er hér viðstaddur, því að hann mun gera grein fyrir því, sem hér er deilt um. Fyrsta brtt., sem meiri hl. gerir við frv. við þessa umr., er á þskj. 667. við 8. gr. Það er, að orðið „siglingafróður“ falli niður. Hv. frsm. n. hefur lýst afstöðu sinni til þessa máls, og ekki borið fram önnur rök í málinu en þau. að það mundi valda mikilli óánægju og álitast sem vantraust á þessa stétt. ef menn úr henni fengju ekki einnig leyfi til þess að skipa þessa stöðu, sem þeir hafa ákaflega takmarkað vit á, og virðist það eiga að víkja fyrir því öryggi, sem þarna er verið að reyna að skapa. Það á að halda fast við það að samþ. ákvæði um að skipa í þessa stöðu menn, sem hafa ákaflega takmarkaða þekkingu til þess að gegna stöðunni.

Ég hirði ekki að taka hér upp nein bein dæmi þess, sem sýna, að ég fer hér með rétt mál, en ég veit, að hv. frsm. veit um nærtæk dæmi, og þótt jafnvel þessir menn hafi verið látnir ráða þarna miklu, þá hefur það ekki verið til öryggis, og einnig kostað ríkissjóð stórfé. Ég er því ákaflega undrandi yfir þessum rökum hjá hv. frsm. n. gegn þessari brtt., sem mundi verða, ef hún verður samþ., til meira öryggis fyrir fólkið í landinu. Ég vænti þess, að þessi brtt. verði því samþ., og þeirri baráttu verður ekki hætt, þótt svo færi, að hún yrði ekki samþykkt nú.

Það virðist sem hv. þm. sé búinn að gleyma því, hvað sé höfuðtilgangur með þessari löggjöf, sem sé að skapa meira öryggi sem undirstöðuatriði þessa máls. En nú vill hv. þm. ekki, að þeir sem eiga að vera skipaðir samkv. 11. gr., hafi neina þekkingu á málinu, eins og 11. gr. segir nú, enda virðist allt annað hafa vakað fyrir hv. þm. en að þessir menn eigi að skapa öryggi. Og hefur það komið ákaflega bert í ljós við allar umr. þessa máls, að það er allt annað, sem reynt er að koma hér fram undir yfirskini þessa viðkvæma máls en öryggi og kom það langskýrast fram í ræðu hv. þm. við þessa umr. Hér er farið fram á að skapa meira öryggi með því, að þeir menn, sem valdir eru í þetta starf, hafi meiri þekkingu og séu færir um að skera úr um ágreining um haffæri skipa o. fl. Og ég skil ekki þá menn, sem vilja taka þá ábyrgð á sig að greiða atkv. á móti slíku.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að ræða þetta atriði frekar, en kem þá að 2. brtt. á þskj. 667. sem er um það, að í stað þess, sem stendur í frv., 17. gr. 7. mgr.: „skuli sóttur til saka“ komi: skuli skipið stöðvað. Hv. frsm. n. álítur of mikið að stöðva skipið, en ég vil þá spyrja: Er ekki of mikil ábyrgð að láta skipið halda áfram, ef ekki eru uppfyllt skilyrði laganna?

Ég held, að hv. frsm. hafi fleygt svo frá sér blæjunni í þessu máli, að það væri langbezt fyrir hann að fylgja nú þessari till. og bæta fyrir það, sem hann hefur áður sagt.

Þá vil ég gjarnan spyrja hæstv. dómsmrh., hvort hann almennt teldi ekki það sjónarmið rétt og heppilegra að breyta þessum ákvæðum þannig, að stöðva skipið heldur en að sækja viðkomandi til saka. Ég álít það varhugavert að bíða eftir úrskurði dóms um að stöðva skip, ef það væri þannig útbúið, að tvísýnt væri um öryggi þess og hætta væri á að það gæti kostað mannslíf, og þess vegna legg ég til, að skipið verði stöðvað. Ég tel mig ekki færan um að hafa hitt á samvizkunni. Ég mun fylgja brtt. á þskj. 870. frá hæstv. dómsmrh., og einnig brtt. á þskj. 614, frá hv. frsm., hún er meira en leiðrétting, heldur efnisbreyt. Ég bar fram brtt. við 2. umr. um að fella þetta niður, af því að ég taldi ekki rétt að taka atvinnuréttindi af mönnum, sem fyrir gáleysi eða af einhverjum ástæðum, en ekki þó fyrir vítavert gáleysi, hefðu gerzt brotlegir. Ég mun því fylgja þeirri brtt.