20.05.1947
Efri deild: 138. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (907)

27. mál, eftirlit með skipum

Gísli Jónsson:

Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir skýringu hans á 17. gr., en ég vil leyfa mér að benda á, að í sambandi við þetta mál er að sjálfsögðu ekki sök að halda skipi áfram, ef það er haffært. Hér er einmitt um það að ræða, sem ekki er von, að dómsmrh. viti. Við skulum hugsa okkur skip, sem hefur beyglaða plötu, en heldur sínum fulla styrkleika, og það er föst venja, t. d. hjá Lloyds', að gefa ársfrest til slíkra viðgerða, og ef hún hefur ekki verið framkvæmd á þeim tíma, þá er skipið stöðvað til að framkvæma viðgerðina, og þeirri sömu reglu vil ég láta fylgja hér, og þarf það ekki að rýra hið minnsta haffæri skipa. Það þykir sjálfsagt, m. a. vegna sölu milli manna, að úr göllum sé bætt, en sé örygginu hins vegar ábótavant, þá er sjálfsagt að stöðva skipið. Það getur þá ekki uppfyllt haffæriskírteinið. Ég held þess vegna, að ákvæði um að beita viðurlögum svo mjög sem frsm. leggur áherzlu á og dómsmrh. hefur mildað nokkuð, eigi að falla burtu. Þessa skýringu læt ég nægja.

1. landsk. sagði, að ég væri að bera marga valinkunna menn míns flekks sökum. Ég vísa þessu á bug og m. a. með því, að hann hefur margviðurkennt í umr. um þetta mál, að ýmislegt af þeim ákvæðum, sem sett voru í mþn. og hann átti sæti í séu samkomulagsatriði og ég veit, að hann persónulega hefur sótt þetta ákvæði l. með jafnmikilli harðneskju í mþn. og sjútvn. til að ná ákveðnu marki, sem ég fer ekki frekar út í hér, og þessir valinkunnu menn hafa látið undan þeirri ásælni, til þess að fá þó einhverja afgreiðslu þessa máls.

Hinu ætla ég að vísa algerlega á bug, sem hann sagði um mig persónulega. Hvenær sem er og á hvaða vettvangi sem er skal ég taka þau mál upp og sýna hv. 1. landsk., að hann hefur ekki við nokkur rök að styðjast í því, sem hann sagði, hvorki í einu né neinu. Ég veit, að ég er sóttur pólitískum ásökunum m. a. í Tímanum, t. d. í sambandi við byggingu togara, og stundum í hans eigin blöðum. en allt hefur þetta orðið þeim til smánar, og sízt til sóma fyrir þm. að blanda þessu hér inn í umræðurnar.