12.03.1947
Efri deild: 92. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (955)

35. mál, matsveina- og veitingaþjónaskóli

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Hv. sjútvn. hefur haft þetta mál til athugunar og rætt það mjög ýtarlega á ný. Hún getur ekki fallizt á þær breyt., sem gerðar voru á þessu frv. í hv. Nd., og ber því fram á ný brtt. við frv., sem eru á þskj. 506, alls átta að tölu og alveg samhljóða þeim breyt., sem hún bar fram við frv. við 2. umr. í þessari hv. d. Sjútvn. leggur því til, að málinu verði breytt í það horf, eins og hv. Ed. gekk frá því á þskj. nr. 463 eftir 2. umr. hér í hv. d.

Meginágreiningurinn í þessu máli er sá, að sjútvn. þessarar hv. d. litur svo á, að hér eigi fyrst og fremst að koma á með samþ. þessa frv. fræðslu fyrir matsveina á fiskiskipum og flutningaskipum, en að ekki sé þörf á með þessu frv. að grípa inn í þá kennslu, sem ákveðin er með iðnfræðilöggjöfinni. hvorki viðvíkjandi veitingaþjónum né um fræðslu um fullkomna matreiðslu, þ. e. a. s. um skyldur og réttindi og fræðslu veitingaþjóna og matreiðslumanna, sem ákvæði eru nú um í iðnfræðslulöggjöfinni. Álítur sjútvn. ekki ástæðu til að blanda þeim ákvæðum inn í þessi l., sem frv. þetta stefnir að. Þegar svo reynsla kemur á þennan skóla, sem frv. þetta er um, eftir að hann byrjar að starfa, þá mun sú reynsla skera úr um það, hvort nauðsynlegt þykir að auka við skólann. En n. vill ekki, að skólinn sé reistur strax svo stór eins og gert er ráð fyrir með þeim breyt., sem gerðar hafa verið á þessu frv. af hv. Nd.

Væntir sjútvn. þess. að brtt. hennar verði samþ., svo að málið komist í það form, sem það var í hér eftir 2. umr. í þessari hv. d. — Ég sé svo ekki, að þörf sé að ræða þetta mál frekar nú. Það hefur verið gefið út nál. um málið, svo að öllum hv. þdm. ætti að vera kunnugt um málið.