21.05.1947
Sameinað þing: 56. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 985 í B-deild Alþingistíðinda. (962)

35. mál, matsveina- og veitingaþjónaskóli

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara mörgum orðum um þessa brtt. á þskj. 670. Mál þetta hefur verið til meðferðar í báðum d. þings, eins og l. gera ráð fyrir, og einnig til einnar umr. í hvorri d. Það er þess vegna orðið hv. þm. allljóst, hvað þeir vilja aðhyllast.

Það, sem d. ber á milli, er aðallega ákvæði 5. gr. frv., og er það meira formsatriði. sem hv. Ed. vildi breyta og breytti. en hv. Nd. sýndist ekki fara betur og jafnvel lakar.

Ég skal aðeins taka það fram, sem hv. Nd. lagði sérstaklega áherzlu á og orðið hefur ágreiningur um í 5. gr. Það er það, að með þeim skóla, sem þannig væri stofnaður, yrði lagt í mikinn stofnkostnað í sambandi við hann, húsnæðið mundi kosta út af fyrir sig mörg hundruð þús. kr., ef ekki millj. kr., svo og öll áhöld og tæki, sem mundu kosta mjög mikið fé. Og sjútvn. Nd. sýndist það vera of mikill tilkostnaður, ef menn ætla ekki að læra meira þarna en gert er ráð fyrir í frv., eins og hv. Ed. hefur gengið frá því, en það er verkefni þessa skóla að hafa eins vetrar námskeið fyrir matsveina á fiskiskipum og flutningaskipum. En eins og kunnugt er, þá sækja Íslendingar nú mjög mikið og með ærnum kostnaði ýmiss konar nám varðandi matreiðslu og framreiðslu til annarra landa, og þegar þessi skóli kemst upp á annað borð hér á landi, þá sýndist sjútvn. Nd., að þessi skólastofnun ætti að losa okkur Íslendinga við þörfina fyrir að vera að sækja nám í þessum greinum til annarra landa.

Hv. d. féllst alveg á þessa skoðun n., að mig minnir ágreiningslaust. Hins vegar er mér ekki kunnugt um það, hvernig þetta hefur gengið í hv. Ed., en svo mikið er víst, að hv. Ed. breytti þessu frv. Okkur þótti eðlilegt, þegar svona ágreiningur er milli d., þá réði sú d., sem fjölmennari er. En ég ætla þó ekki að fara hér út í neinar kappræður út af þessu af þeim ástæðum, sem ég tók fram, að málið er orðið svo margrætt í báðum d., að þess gerist engin þörf.

Ég skal taka það fram, að sjútvn. og d. öll féllst á breyt. hv. Ed. varðandi mötuneyti skólans, að heimila ríkisstj. að láta starfrækja mötuneyti við skólann, en áður hafði verið ætlazt til, að sami háttur væri hafður þarna eins og í fjölmörgum skólum úti um land, að nemendur hafi þar um félagsskap sinn. En það má segja, að það skipti öðru máli um þennan skóla, og má búast við, að þar fari fram veitingar, sem ekki eru viðkomandi nemendum hans, svo sem við ýmsar samkomur og mót. Og að athuguðu máli féllst n. á þessa breyt. á frv.

Ég hef svo ekki annað um þetta að segja en að það er ósk okkar flm., sem erum allir í sjútvn., að þessi till. á þskj. 670, sem er alveg það sama og samþ. var af hv. Nd. án ágreinings, verði nú samþ. hér við meðferð málsins í Sþ.