13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (988)
238. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Ég vil leyfa mér að þakka hv. n. sérstaklega fyrir fljóta og góða fyrirgreiðslu þessa máls og láta í ljós ánægju mína yfir hennar till. í málinu og vænti þess, að hv. þd. fallist á að greiða fyrir málinu fyrir sitt leyti jafnfljótt og vel og n. hefur gert. Ég vil annars beina því til manna að láta niður falla að flytja brtt. um breytta ráðstöfun fjárins frá því, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég get vel skilið, að það séu mismunandi meiningar um það, hvernig þessi skipting skuli vera, en nú er búið að leggja vinnu í það að fá nokkurt samkomulag um þá skiptingu, sem frv. gerir ráð fyrir, og er því nokkuð undir hælinn lagt, hvernig færi um málið, ef það yrði hrakið verulega. Þess vegna vil ég mælast til þess, að menn sameinist um að afgreiða það eins og það liggur fyrir.