15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 851 í B-deild Alþingistíðinda. (1001)
188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Ég geri ekki ráð fyrir að tala langt mál um þetta frv., en ástæðan til þess, að ég segi nokkur orð, er sú, að fallið hafa ýmis ummæli frá þm. Barð., sem mér finnst ástæða til að minnast á, en áður en ég kem að því, vil ég segja það um það frv., sem hér er til umr., að því verður ekki neitað, að ýmislegt af því, sem hér á að fresta, er þannig vaxið, að um það geta verið a.m.k. skiptar skoðanir, hvort það er ekki ýmislegt annað, sem þá mætti fylgja með eða taka fremur. Og náttúrlega verður því ekki neitað, að fjárhæðin, sem sparast, er ekki stór, þó að hins vegar megi svara því, að einhvers staðar verði að byrja.
Ég heyrði á hv. þm. Barð., að hann er ekki ánægður með það fyrirkomulag, sem er fjárhagsráði og viðskiptanefnd. Það er enginn efi á því, að ástæðan til þess, að þessi l. um fjárhagsráð og viðskiptanefnd voru sett, var sú, að mönnum þótti sem fjárfestingin undanfarin ár hefði verið nokkuð skipulagslaus og með öðrum hætti en ákjósanlegt hefði verið. Þess vegna verður að lita á l. um fjárhagsráð sem eins konar „reduktion“ frá stefnu fyrri ára. Það, sem menn festu þó fyrst og fremst augun á, var það, að fjárfestingin hafði að sumu leyti farið úr hófi fram, þó að ég álíti, að hún hafi kannske verið of lítil á öðrum sviðum. Þegar þessi lög um fjárhagsráð voru sett, þá var fyrst og fremst hugsað um þær framkvæmdir, sem gera átti, og ráðinu fengið vald til þess að ákveða, hvaða framkvæmdir mætti gera.
Í sambandi við störf ráðsins hefur verið talað um áætlunarbúskap og þau jafnvel verið kölluð því nafni, en það er alrangt að kalla starfsemi ráðsins það. Það má benda á það, að ef á að koma á áætlunarbúskap í einhverju þjóðfélagi, þá þarf valdsvið þeirrar stofnunar, sem hann á að hafa með höndum, hvort sem það er fjárhagsráð eða einhver önnur stofnun, að vera miklum mun víðtækara en það valdsvið, sem fjárhagsráð nú hefur. Í l. er ekki minnzt á það, að fjárhagsráð eigi að hafa eftirlit með því, að dýrtíðin í landinu verði aldrei svo mikil, að hún valdi truflunum á sviði atvinnuvega og fjármála. Gerð var fyrirspurn um það til ríkisstj., hvort ráðið ætti að gera till. í dýrtíðarmálunum, en hæstv. ríkisstj. svaraði á þá leið, að hún óskaði þess ekki. Þetta út af fyrir sig veldur því að sjálfsögðu, að eitt grundvallaratriði þess, sem fjárhagsráð ætti að fjalla um, ef um áætlunarbúskap væri að ræða, er alls ekki í verkahring þess. Dýrtíðarmálin ráða því að miklu leyti, hvað mikil útgjöld ríkissjóðsins eru, og nú er svo háttað, að talið er, að ríkissjóður kosti 55 millj. kr. til niðurgreiðslu á dýrtíðinni. Hér er um svo stórt atriði að ræða, að ef áætlunarbúskapur væri hér, þá þyrfti fjárhagsráð fyrst og fremst að ráða þessu, en út í það skal ég ekki fara frekar að sinni. Hins vegar vil ég benda á það, að fjárhagsráð hefur ekki með höndum, hvernig haga skuli rekstrargjöldum ríkisins. Það hefur auðvitað stórkostleg áhrif, og sama er að segja um skiptingu vinnuaflsins. Þá komum við að verzlunarmálunum, þar hefur fjárhagsráð heldur ekkert haft að segja; jafnstórkostlega þýðingu og þau hafa þó, og það er augljóst mál, að ef á að vera um áætlunarbúskap að ræða, sem í lagi sé, þá verður að draga verulegan hluta af því fjármagni og vinnuafli, sem til verzlunarinnar fer, og láta það aftur á móti ganga til framleiðslunnar. Ég vil taka það fram, að þessi orð mín eru ekki till. um áætlunarbúskap. Það hefur sýnt sig, að þessi eini þáttur, verzlunarmálin, er þannig, að hæstv. Alþ., ríkisstj. og fjvn. geta ekki sætt sig við það, að fjárhagsráð ráði honum.
Ég hef komizt að þeirri niðurstöðu, — og ég hafði það einnig í huga, þegar h um fjárhagsráð voru selt, og ég hef einnig lýst því áliti mínu við ríkisstj., — að fjárhagsráð og viðskiptanefnd ættu að vera eitt ráð, sem starfaði í nánu sambandi og samráði við Hagstofu Íslands. Hagkerfi okkar er enn algerlega ófullnægjandi, en mikið ríður á að koma á fót góðri hagstofu með víðtæku starfssviði. Þessi nýja hagstofa ætti fyrst og fremst að vera ráðgefandi. Í fyrsta lagi um framkvæmdir ríkisins, í öðru lagi um lausu dýrtíðarvandamálanna, í þriðja lagi, hversu mikill fjöldi starfsmanna ríkisins skyldi vera, og í fjórða lagi. Hvernig reka skuli verzlunarmálin, þannig að þan taki ekki of mikið fjármagn og vinnuafl frá framleiðslunni. Það má minna á það, þó að ekki liggi fyrir greinilegar skýrslur um þetta atriði, sem þó væri í mesta máta nauðsynlegt, að það er þegar upplýst, að nokkuð af þeim nýsköpunaratvinnutækjum, sem komið hefur verið upp undanfarin ár, vantar nú tilfinnanlega vinnuafl. Það liggur m.a. fyrir, að nokkrir bátar stunda nú ekki vetrarvertíð vegna fólkseklu. Þess ber þó að gæta, að erfitt er að draga markalínuna í þessu efni, þar sem um það getur verið að ræða, að ekki borgi sig að gera út, jafnvel þótt menn fengjust á bátana.
Ég get lokið þessum ummælum mínum um fjárhagsráð með því, að þótt ég telji, að það hafi unnið þarft verk og að mörgu leyti merkilegt, þá álít ég, að þetta fyrirkomulag sé ekki til frambúðar.
Þegar fjárhagsráð tók til starfa á s.l. hausti, var ástandið þannig, að svo sem ekkert byggingarefni var til í landinu, gjaldeyrir var enginn til og búið var að eyða því fjármagni, sem til hafði verið. Bankarnir gátu ekkert lánað, en fjöldi fyrirtækja og framkvæmda, svo sem frystihús, íbúðarhús o.fl., stóð hálfkarað, vegna þess að ekki fékkst efni til að Ljúka því. Einn stærsti og merkasti þátturinn í starfsemi fjárhagsráðs er sá, að það hefur komið í veg fyrir það, að efni væri eytt til framkvæmda, sem ekki gætu talizt nauðsynlegar í bili. Ég skal geta þess, að sótt hefur verið um leyfi fyrir verzlunarhúsum að upphæð 44 millj. kr., en veitt hafa verið leyfi fyrir 4 millj. kr., og er það mest til þess að hægt sé að ljúka við þau verzlunarhús, sem þegar var byrjað á. Sótt hefur verið um leyfi til þess að framkvæma eitt og annað, sem til þarf 87 þús. tonn af sementi. Innflutningur s.l. árs mun hafa verið 60 þús. tonn, en gert er ráð fyrir, að á þessu ári verði flutt inn 45 þús. tonn, og er það þrefalt meira en flutt var inn árin fyrir stríðið. Fjárhagsráð hefur reynt að skipta þessu þannig, að framleiðslan sæti fyrir og sömuleiðis íbúðarhúsabyggingar og aðrar framkvæmdir, sem teljast mega aðkallandi. Til dæmis um hinar mörgu og miklu leyfisbeiðnir til fjárhagsráðs vil ég nefna félagsheimilin, en til þeirra hefur verið sótt um 12 millj. kr., en ákveðið hefur verið að veita þeim leyfi fyrir 1 millj. kr. — Ef ekki væri hér neins staðar tekið í taumana, er áreiðanlegt, að í ofanálag á allar hafnirnar og hinar ýmsu hálfkláruðu framkvæmdir hefðu verið byggð verzlunarhús fyrir 44 millj. kr.
Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þetta lengur, en margt fleira mætti um það segja. Hins vegar sé ég ástæðu til að svara því nokkru, sem hv. þm. Barð. sagði um það, að fjárhagsráð hefði leyft skólabyggingar fyrir 17 millj. kr. Ef ég man rétt, þá hefur fjárhagsráð veitt leyfi fyrir 6 nýjum skólum í stað 45, sem beðið hefur verið um leyfi fyrir. Það hefur ekki verið hægt að setja fótinn fyrir þessa skóla, sem leyfi hefur verið veitt fyrir, og sums staðar hefur verið svo erfitt um húsnæði, að ef ekki hefði verið úr því bætt, hefði kennsla orðið að hætta. Meðal þeirra staða, þar sem vantar skóla, er Skagafjörður, en þar hefur bygging skólahússins verið stöðvuð. Einnig vantar skóla á Sauðárkróki og í Vestmannaeyjum. Ég nefni bara þessi þrjú dæmi af svo ótal mörgum, sem fyrir hendi eru. Samkvæmt fræðslulöggjöfinni nýju þá er, eins og við vitum, heimilt að hefja framkvæmdir með lögboðnum styrk úr ríkissjóði. f9 skólar af þeim 45, sem koma undir þetta ákvæði, hafa fengið leyfi vegna þess, að við treystum okkur ekki til þess að taka fram fyrir hendurnar á þeim, sem hér var um að ræða, vegna hinnar brýnu nauðsynjar í öllum tilfellunum á nýjum skólahúsum. Þegar reiknað er svo út, hvað greiða skal til þessara skóla úr ríkissjóði, þá eru það um 17 millj. kr., eins og hv. þm. Barð. sagði réttilega.
Nú verða menn að athuga það, að það er alls ekki fjárhagsráð, sem ræður framkvæmdum í landinu, þó að það eigi að heita svo, heldur eru þær ákveðnar og bundnar af þeirri löggjöf og því, sem gert hefur verið undanfarin ár, og í sambandi við starfsemi fjárhagsráðs er þess vegna ekki hægt að tala um áætlunarbúskap. Allt að helmingur þeirra framkvæmda, sem gerðar hafa verið síðan fjárhagsráð tók til starfa, var hafinn, þegar það var stofnað. T.d. vil ég minnast hér á stórt verzlunarhús, sem mun kosta 2–3 millj. kr. Byrjað var á byggingu þess, þegar fjárhagsráð tók til starfa, en eftir það var byggingin stöðvuð í 2 mánuði, en að lokum varð þó að halda því áfram, þó að til þess þurfi mikið efni. Sama er að segja um annað stórhýsi, sem áætlað var, að kosta mundi 2 millj. kr. Byggingin var stöðvuð um tíma, en þar sem hún kom til með að kosta eigendurna 40 þús. kr. á ári, ef ekki væri haldið áfram, þá sá fjárhagsráð sér ekki annað fært en gefa leyfi fyrir því. Svipað stendur á um mikinn fjölda framkvæmda. Sem stendur sjáum við ekki, hvernig hægt verður að láta þessi 45 þús. tonn af sementi, sem ákveðið hefur verið að flytja inn í landið á næsta ári, nægja til allra þeirra framkvæmda, sem þegar hefur verið byrjað á og fyrir hendi er að gera, jafnvel þótt ekki sé tekið nema það, sem mest er aðkallandi, svo sem hafnir, íbúðarhús úti um land og fleira.
Ég vil ljúka máli mínu með því að benda mönnum á það, að til þess að um fullkomna áætlun geti verið að ræða innan hins takmarkaða sviðs fjárhagsráðs, þá þarf í fyrsta lagi að liggja fyrir áætlun um út- og innflutning, í öðru lagi skýrslur um vinnuaflið í landinu og skiptingu þess og í þriðja lagi skýrslur um tekjur þjóðarinnar. Til þessa alls hefur fjárhagsráði enn ekki unnizt tími, og hefur það mjög seinkað fyrir, hversu hagskýrslukerfið hér hjá okkur Íslendingum er ófullkomið. Erlendis er þetta svo fullkomið, að hver og einn einstaklingur getur fylgzt með þjóðarbúskapnum með því að lesa skýrslur þær, sem fyrir liggja um það. Störf fjárhagsráðs hafa hingað til að mestu farið í það að bjarga því, sem hægt var að bjarga, sem sagt því, sem byrjað var á, en þegar í upphafi skorti bæði efni og gjaldeyri, svo að skilyrði hafa verið og eru hin örðugustu.
Mér er óhætt að fullyrða það, að allir þeir, sem unnið hafa í fjárhagsráði, hafa unnið eftir beztu samvizku, og það er álit mitt, að starf það, sem ráðið hefur unnið, sé bæði mikið og merkilegt, þó að ræða hv. þm. Barð. hafi ekki gefið tilefni til að álíta það. Ég get verið þessum hv. þm. sammála um, að fjárhagsráð sé ekki frambúðarfyrirkomulag, þó að ég sé þess fullviss, að hvaða menn sem hefðu starfað í því, þá hefði þeim ekki tekizt — og það af þeirri einföldu ástæðu, að ekki hefur unnizt tími til þess — að safna fullkomnum skýrslum um vinnuafl og þjóðartekjur á jafnstuttum tíma og ætlazt hefur verið til. Ég veit, að fjárhagsráði er það ljóst, að strax þegar búið er að ganga frá fjárfestingarleyfum og áætlun um út- og innflutning, þá er það næsta verkefni, sem bíður úrlausnar fjárhagsráðs, að gera áætlun um vinnuaflið í landinu og skiptingu þess. Ég gat þess áðan, að ég hefði um skeið starfað í fjárhagsráði. Ég hef unnið þar eftir beztu getu, og mér er það ljóst, að margt þarf að gera, en að þessu sinni mun ég ekki gera það að umtalsefni. Að svo stöddu mun ég enga yfirlýsingu gefa um það, hvernig ég mundi greiða atkvæði um það, hvort leggja ætti fjárhagsráð niður eða ekki.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta og hef nú gefið upplýsingar í sem fæstum orðum út af ummælum hv. þm. Barð. og læt því máli mínu lokið.