22.03.1948
Neðri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)
188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Finnur Jónsson:
Án þess að blanda mér inn í þessar umr., sem hér hafa farið fram milli hæstv. ráðh. og hv. 2. þm. S-M., þá vil ég segja það í framhaldi af því. sem hæstv. fjmrh. upplýsti, að ég veit ekki betur en það sé ráðgert að framkvæma, ekki að öllu leyti nýja, en framkvæma þó stækkun á síldarverksmiðjunum á landi við Faxaflóa, sem mundi veita allt að 15 þús. mál, og er þá með talið það, sem fyrir var. Ef þetta skip kemst í framkvæmd, þá mundi þetta verða allt að 25 þús. mála vinnsla á dag á næstu síldarvertíð. Með þessu er gert mjög stórt átak.
Á það hefur verið minnzt í þessu sambandi, að um það hefði verið talað að gefa ríkisstj. heimild til að taka lán í því skyni, jafnvel erlendis, til að koma þessum málum í framkvæmd. Það hefur verið upplýst, að ekkert af þessu kemst í framkvæmd með núverandi gjaldeyrisástandi. nema svo sé gert. Þeir, sem vilja þess vegna láta Faxaflóasíldina verða að atvinnuvegi. ef hún heldur áfram að koma hingað, þeir hljóta að fylgja þessu máli. Hitt er annað mál, það sem hv. 2. þm. S-M. gerði að umtalsefni, að það getur verið að vissu leyti vafasamt að gefa einstökum skipum heimild til að hafa forgangsrétt til að leggja upp síld í bræðsluskip, sem að nokkru leyti er keypt af ríkinu. Þó má bæta því við, enda hefur það verið upplýst af hæstv. fjmrh., að sá háttur verður ekki hafður meðan skipið verður á vegum Síldarverksmiðja ríkisins við Norðausturland. Og í rauninni er þetta ákvæði ekki svo mjög hættulegt, ef þessi sömu skip hafa ekki jafnan rétt við önnur skip til löndunar við verksmiðjurnar í landi. Ef þessi skip ættu að hafa jafnan rétt við önnur skip við verksmiðjurnar í landi og auk þess forgangsrétt að bræðsluskipinu, þá væri það mjög mikið misrétti, sem hvorki sjómenn né útgerðarmenn mundu þola, enda er það svo á síldveiðunum við Norðurland, að þar gera skipin samninga við verksmiðjurnar, og jafnvel þó að síldarverksmiðjueigandi eigi þar síldveiðiskip, þá hafa þau engan forgangsrétt fram yfir önnur samningsskip. En ég fyrir mitt leyti sé ekki þrátt fyrir þetta, að ástæða sé til að setja um þetta sérstök skilyrði í þessa heimild, því að ef síldveiðiskip, sem hefðu forgangsrétt við hina nýju verksmiðju, ættu þar að auki að hafa jafnan rétt við önnur skip við verksmiðjurnar í landi, þá væri það svo mikið misrétti, að hvorki útgerðarmenn né sjómenn mundu þola það. Og þá mundi fara á sama hátt og farið hefur á Norðurlandi, þó að nú sé ekki sleginn um það neinn varnagli, en ef það kæmi í ljós, að þess þyrfti, þá er hægt að láta stofnsamninginn gilda, en setja það ákvæði, að skip, sem hefðu forgöngu við þessa verksmiðju. kæmu ekki á sama tíma til að leggja upp afla í aðrar verksmiðjur. Með því móti er ekki trufluð sú félagsstofnun, sem þegar hefur verið komið af stað og nauðsynlegt er að halda áfram með fullum krafti, ef þetta mikilsverða mál á að komast í framkvæmd fyrir næstu síldarvertíð.
Þá vil ég segja nokkur orð út af þeim lið, þar sem lagt er til að hækka skipaskoðunargjöld. L. um skipaskoðunargjöld voru sett 1947. Áður voru gjöldin samkv. reglugerð. Síðasta reglugerð, sem um það efni var sett, er frá 15. apríl 1939. En ef maður ber saman l. við þá reglugerð, þá kemur í ljós. að með l. hefur verið framkvæmd allmikil hækkun á skoðunargjöldum. Sem dæmi má nefna, að áður áttu skip 15–30 rúmlestir að greiða lágmarksgjald í ríkissjóð 20 kr., en nú 30 kr., skip 30–50 lestir áður 30 kr., nú 45 kr., skip 50–100 lestir áður 45 kr., nú 70 kr., skip 100–200 lestir áður 85 kr., nú 130 kr. og skip 400–800 lestir áður 160 kr., nú 440 kr. Ef gjöldin hefðu verið látin óbreytt, þá mætti segja, að full ástæða væri til að leggja nú á fulla dýrtíðaruppbót, en þar sem þessi taxti hefur verið hækkaður svo mjög frá 1939, þá er tæplega rétt að leggja ofan á þá hækkun fulla dýrtíðaruppbót. Ég vil mjög skjóta því til hæstv. ráðh., að hann beini því til n., hvort hún mundi ekki vilja athuga, að nokkuð mundi verða séð fyrir þessu með því að hækka gjöldin um 100% frá því, sem 1. mæla fyrir. Það má vera, að bifreiðaeftirlitið standi undir sér, en það má þó benda á, að skipaeftirlitið er nokkuð annars eðlis, þar sem menn eiga svo mjög undir því líf sitt og öryggi, þó að vísu bifreiðaeftirlitið sé alltaf að verða meira og meira öryggismál, sem þarf að taka til gagngerðrar endurskoðunar.
Út af þeirri breyt. að losa ríkið við þá skyldu að leggja fram fé til aðstoðar við að útrýma heilsuspillandi íbúðum vil ég taka fram, að eins og sakir standa er ákaflega mikið af ófullgerðum byggingum, sem þarf að leggja alla stund á að fullgera. Nýbyggingar á þessu ári eru ekki eins miklar og á síðasta ári, en þó sjáanlega miklu meiri en gert var ráð fyrir að yrði fyrir 2–3 árum síðan. Eins og fjárhag ríkisins er nú komið, er ákaflega þýðingarlitið að leggja ríkissjóði á herðar skyldu til að inna af hendi fjárgreiðslur, sem ekki er gert ráð fyrir í fjárl. Og þar sem hér er ekki farið fram á neina breyt. á l. og húsnæði, sem væntanlega kemst í not á þessu ári, verður óvenjulega mikið og hins vegar fjárhagur ríkisins þannig, að ekki er til neins að vonast eftir, að hann geti innt af hendi miklar greiðslur í þessu efni með þeirri afgreiðslu, sem nú er á fjárl., þá get ég eftir atvíkum fylgt þessari till. En ég vil geta þess vegna þeirra, sem vilja láta þessi l. komast að fullu í framkvæmd, að það verður að stilla svo til framvegis, að í fjárl. verði gert ráð fyrir útgjöldum til að koma þessu mikilsverða máli í framkvæmd. En meðan fjárl. eru afgr. þannig, að ekki er gert ráð fyrir neinni upphæð til þessara framkvæmda, þá þýðir ekkert að amast við þessari frestun. Hitt er miklu meira vert, að þegar dregur úr byggingum einstakra manna, ráðist Alþ. þá á ný í að nota sér ákvæði þessarar merkilegu löggjafar og fá fjárveitingu í fjárl. í samræmi við þá þörf. sem þá mun væntanlega koma í ljós.