22.03.1948
Neðri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (1037)
188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það var í framhaldi af umræðunni í morgun og sérstaklega út af ummælum hæstv. fjmrh., og slæmt að hann skuli ekki vera hér, og ætla ég því að fala við hv. deild. Er það þá fyrst í sambandi við 2. tölul. frv., þar sem gert er ráð fyrir að hækka skipaskoðunargjöld. En með þessu er verið að íþyngja útveginum. Hæstv. ráðh. gerði litið úr þessu og vildi láta þennan lið standa undir sér og vildi gera þetta sambærilegt við aðra skoðun og eftirlit. Hv. þm. Ísaf. benti á, sem rétt er, að á síðasta þingi væru skipaskoðunargjöld hækkuð allverulega með lögum. Og nú er enn komið með brtt. um að hækka skipaskoðunargjöld um 200%. Ef þetta næði fram að ganga, yrði útkoman sú, að ríkissjóður tæki að græða allverulega á skipaskoðuninni. Í fjárl., sem lögð voru fram í haust, er gert, ráð fyrir, að tekjur skipaeftirlitsins séu 184 þús., en útgjöld 338 þús. En nú er gert ráð fyrir, að þessar 184 þús. hækki sem nemur fullri vísitölu. En nú hefur sýnt sig, að tekjuafgangur af skipaútgerðinni er allt of lágur miðað við það, sem reynslan hefur sýnt. Er því ekki þörf hækkunar á þessum gjöldum nema reynt sé að fóta sig á nýjum tekjustofni. En nú er það svo, að ekki er hægt að bera saman öryggiseftirlit og annað eftirlit og láta útveginn greiða skipaeftirlitið. Ríkissjóður hefur nú greitt beint ýmsan kostnað, sem sambærilegur er. Eða hvernig er það með öryggismálin í landi, með kostnað af lögreglu o.fl.? En þegar Alþ. setur lög um það, að ríkið skuli hafa allmarga fasta starfsmenn við skipaeftirlitið, þá er komið og lagt til, að lagður verði skattur á allan farkost í landinu. Ég bendi á þetta í sambandi við það, að þetta eru ekki einu útgjöldin, sem lögð eru á útgerðina, heldur aðeins einn af mörgum liðum. Og ég taldi rétt, að hv. alþm. vissu þetta allt, áður en þeir færu að samþ. hluti sem þessa. Mér virðist sem menn hafi ekki gert sér þetta fyllilega ljóst, og af ræðu hæstv. sjávarútvegsmálaráðh. var ljóst, að hann hafði ekki gert sér grein fyrir því, hvað þetta þýddi.
Í sambandi við deilurnar um 6. lið 3. gr., um heimild handa ríkisstj. til að leggja fram 11/4 millj. til móts við h/f Hæring til byggingar síldarverksmiðju, gerði ég þá aths., að mér fyndist undarlegt, að ríkið legði fram svo mikinn hluta án þess að selja skilyrði fyrir því, á meðan útgerðarmenn hér við Faxaflóa, sem fjármagn hafa til að leggja fram, setja þau skilyrði, að þeir hafi forgangsrétt til löndunar. Og mér heyrðist á hv. 7. þm. Reykv., sem er formaður Hærings, að ýmsir útgerðarmenn hafi verið látnir á biðlista, hvort þeir kæmust í félagið og hefðu þannig forgangsrétt til löndunar. Mér er einnig kunnugt um það, að mönnum hefur verið neitað um inngöngu í félagið. En sennilega fer það eftir því, hvort menn hafa nægilegt fé til að kaupa sig inn í félagið. Svo er reynt að draga úr fyrirhugaðri stækkun síldarverksmiðjanna við Faxaflóa með því, að á næsta hausti verði komin upp síldarverksmiðja, sem bræði 15 þús. mál á sólarhring, en slíkt nær ekki nokkurri átt. Það er rétt, að hér við Faxaflóa eru nokkrar verksmiðjur, sem von er um, að stækki. En þetta verður síður en svo til að draga nokkuð úr forgangsrétti þeirra manna, sem að Hæringi standa. þar eð útgerðarmenn þeir, sem að því félagi standa, eru einmitt sömu mennirnir, sem eiga síldarbræðslurnar hér við Faxaflóa og hafa því bæði forgangsrétt til að landa í þeim verksmiðjum og hjá Hæringi. En útgerðarmenn af Norður-, Vestur- og Austurlandi hafa ekki rétt á móts við þessa menn, enda þótt ríkissjóður leggi fram 1/4 af kostnaðinum. En svo er mönnum sagt, að þetta létti af öðrum verksmiðjum á landinu. Sem sagt, útgerðarmönnum annars staðar á landinu er sagt, að þeir geti fengið sína síld flutta til Siglufjarðar, en útkoman verður bara sú, að þeir fá helmingi lægra verð með því móti fyrir sína síld en hinir, og er þetta heldur huggun fyrir menn utan af landi. — Þá setur ríkisstjórnin þau skilyrði, að félagið leigi S. R. skipið yfir sumarið. Félaginu er sem sagt gert að skyldu að leigja skipið yfir sumartímann. Sér er nú hver kvöðin, sem sett er, eftir að ríkið hefur lagt fram 11/4 millj. króna. Að félagið leigi Síldarverksmiðjum ríkisins skipið, þegar engin veiði er í Faxaflóa og þar af leiðandi ekkert með skipið að gera, — þá ætlar ríkissjóður að taka það á leigu og þar með alla áhættuna. Það hefði aftur á móti mátt teljast kvöð. ef félagið hefði verið skyldað til að reka verksmiðjuna fyrir Norðurlandi á sumrin. En nú ætla Síldarverksmiðjur ríkisins að taka skipið á leigu og ríkissjóður að taka verulegt erlent lán til að félagið geti rekið þetta og leggur auk þess fram 11/4 millj. Þá finnst mér, að lágmarksskilyrðin, sem ríkið getur sett, séu þau, að allir hafi jafnan rétt til löndunar í skipið. En þetta mátti ekki. En afleiðingin verður sú, ef skipið kemur næsta haust, að einungis útgerðarmenn í Rvík og við Faxaflóa og þá einungis þeir, sem bezt eru efnum búnir, hafa aðstöðu til að hagnýta sér vetrarsíldina, en aðrir ekki. Og það bætir ekki úr, þó að sagt sé, að ekki hafi verið minnzt á þetta áður. Þetta eru sannindi, sem liggja fyrir og verður ekki mótmælt.
Útvegsmenn á Norðurlandi, Austurlandi og Vestfjörðum hafa þegar lýst andstöðu sinni til þessara forréttindaákvarða, sem hér er um að ræða. Þeir hafa lýst yfir, að mikið ósamræmi væri í aðstoð ríkisins gagnvart þessari verksmiðju og öðrum verksmiðjum, ef nokkrir útvegsmenn fái þessi sérréttindi. Nú vill ríkisstj. fá heimild til lántöku erlendis í þessu skyni og heimild til þess að leggja fram 1250000 kr. úr sjóði Síldarverksmiðja ríkisins í þetta fyrirtæki. Ríkisverksmiðjurnar eru þó eign allrar útgerðarinnar í landinu. Þar eru öll skip, hvort sem þau eru frá Austurlandi, Norðurlandi, Vesturlandi eða Faxaflóa, jafnrétthá. En nú á að fara að taka á aðra millj. króna úr sjóði síldarverksmiðjanna til þess að leggja í fyrirtæki, sem býður nokkrum mönnum upp á forréttindaaðstöðu.
Það hefur komið fram á síðustu vetrarvertíð, að þeir,sem höfðu þannig aðstöðu hér við Faxaflóa að þeir gætu lagt síld sína hér til vinnslu, þeir lutu ekki sömu verðlagsákvæðum fyrir framleiðslu sína og hinir, sem þurftu að flytja sína síld norður í land. Hvernig verður þetta þá, þegar sumir menn hafa fyrir aðstoð ríkisins miklu betri aðstöðu en fjöldinn, sem vinnur að sömu framleiðslu?
Ég fagna því, að síldarverksmiðjuskip verður keypt, og ég tel nauðsynlegt, að hægt verði að stórauka vinnslu á vetrarsíld hér við Faxaflóa. Það er sjálfsagður hlutur að koma upp verksmiðju hér við flóann, og það er sjálfsagt, ef hægt er að hafa verksmiðju í skipi. En það er einungis þetta forréttindaákvæði. sem ég get ekki fellt mig við. Og ég vil vara við þessu ákvæði, því að ég sé alveg, hverjar afleiðingar þess verða.
Það hefur komið fram í sambandi við þessar umr., að hv. þm. Borgf. mun leggja til, að þeir aðrir aðilar hér við flóann, sem nú vinna að byggingu síldarverksmiðja, fari allir fram á við ríkið, að ríkið leggi fram 1/4 stofnkostnaðar þeirra verksmiðja. Ég sé ekki í raun og veru, hvaða ástæða væri til þess að standa gegn því, að þeir á Akranesi njóti sömu hlunninda og þeir í Reykjavík, þar sem um einstaklingsfyrirtæki er að ræða á báðum stöðum. Og þá ættu þeir í Hafnarfirði, Keflavík og Njarðvíkum að njóta sams konar stuðnings frá ríkinu og hér er gert ráð fyrir gagnvart þessu eina félagi. Ég veit, að útvegsmönnum, þegar þeir byrjuðu á sínum fyrirtækjum, hefur ekki dottið í hug, að þeir gætu dregið Síldarverksmiðjur ríkisins og ríkið þannig inn í málið, að þeir gætu fengið ríkið til þess að borga svo og svo mikið af stofnkostnaði þessara verksmiðja og haldið forréttindaákvæðum sínum eftir sem áður. Það hefur engum hugsazt slík aðstoð fyrr en Hæring hf. En þá koma þeir vissulega allir á eftir. Og sé ég ekki, hvaða ástæða væri til þess að neita þeim fjölmörgu öðrum verksmiðjum annars staðar á landinn, sem svipað stendur á um og þessar Faxaflóaverksmiðjur, sem líka geta unnið úr síld og þorskbeinum eins og Faxaflóaverksmiðjurnar gera, — um aðstoð þannig að fá að einum fjórða af stofnkostnaði sínum greiddan frá ríkinu og allir aðilar þar haldi forréttindum sínum í sambandi við afsetningu aflans til þeirra stöðva.
Mér fannst á ræðu hæstv. fjmrh., að hann vildi láta í það skína, að það mundu í raun og veru varla vera til möguleikar á því að koma upp verulega aukinni síldarvinnslu fyrir næstu vetrarvertíð hér við Faxaflóa, nema með því að ríkið aðstoðaði nokkra útgerðarmenn hér við flóann á þennan hátt, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. En í þessu sambandi vildi ég gjarnan mega spyrja um það vegna þessa frv., þar sem ríkisstj. óskar eftir að fá heimild til þess að mega taka 15 millj. króna lán erlendis í þessu skyni, hvernig eiginlega er hugsað að fara með þetta lán. Ef ríkið ætlar að taka þetta lán til kaupa á tækjum og á skipinu, þá sýnist, að ríkið gæti eins tekið þetta lán handa verksmiðju, sem það reisti sjálft. Ég hygg, að það hefði sízt orðið verra að fá útvegsmenn í landinu til þess að leggja fram nokkurt stofnfé í sambandi við byggingu síldarverksmiðju, sem rekin hefði verið á sams konar grundvelli og Síldarverksmiðjur ríkisins hafa verið reknar, þ.e. með hagsmuni allra útvegsmanna fyrir augum, en ekki forréttindi fyrir nokkra. Slíkt hefði verið miklu hægara og réttara á þennan hátt en á þann hátt, sem nú hefur verið gert. Nei, hitt mun vera nærri sannleikanum. að það hefur ekki verið fyrir hendi vilji hjá þeim, sem með þessi mál fara í ríkisstj., og þá kannske líka formanni stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins. Það mun hafa verið meiri vilji hjá þessum aðilum til þess að koma hér upp forgangsverksmiðjum en áfram væri haldið að byggja upp síldarverksmiðjur á þeim grundvelli, sem Síldarverksmiðjur ríkisins hafa verið byggðar.
Ég tók eftir því, þegar hv. þm. Ísaf. ræddi þetta mál, að hann liti svo til, að sjómenn og útvegsmenn þar mundu aldrei líða það, að svona forréttindaákvæði yrðu látin gilda, ef þeir menn, sem þetta forréttindaákvæði er fyrir, hefðu jafnframt rétt eða aðstöðu til þess að leggja upp í aðrar síldarverksmiðjur, sem hér vinna líka. En hann virtist hins vegar gera sér einhverja von um, að þessir forréttindamenn gætu ekki lagt afla sinn í aðrar verksmiðjur, sem hér eru að risa upp við Faxaflóa. En þetta er reginmisskilningur. Það er hægt að nafngreina menn, sem eru hluthafar í Hæringi h/f og fá forréttindi sín þar, en eru jafnframt eigendur í verkmiðjum, sem verið er að koma hér upp eða eru í byggingu. Þær verksmiðjur, sem verið er að byggja, t.d. á Akranesi, Hafnarfirði, Keflavík og Njarðvíkum, eru yfirleitt í eigu útvegsmanna hér við flóann, svo að það er síður en svo, að þeir, sem fá að njóta forréttindaákvæða við síldarbræðsluskip Hærings h/f fái ekki að leggja upp í hinar verksmiðjurnar, heldur fá þeir forgang að þeim líka. Ég hygg, að hv. þm. Ísaf. reynist sannspár, þegar hann segir, að sjómenn og útvegsmenn muni ekki þola þetta ákvæði í framkvæmdinni. Þess vegna vil ég, að þessu ákvæði verði breytt nú og ríkið setji það að skilyrði fyrir framlagi sínu til félagsins, að allir íslenzkir útgerðarmenn hafi þar jafnan og sama rétt til þess að hagnýta afla sinn hjá þessu fyrirtæki og forréttindaákvæðið verði þar með útþurrkað. Ég býst við, að það sé óþarfi að óttast, að þeir fáu útvegsmenn, sem hér eiga hlut að máli í sambandi við Hæring h/f muni ekki vilja þiggja þetta framlag ríkisins og þetta erlenda lán, sem ríkið ætlar að taka þeirra vegna. ef svona skilyrði verða sett, og þar með falli niður framkvæmdirnar. Ég er viss um, að þeir munn taka þessu tilboði Síldarverksmiðja ríkisins og ríkisins, þó að þessi skilyrði yrðu sett, því að öðrum aðilum hafa áreiðanlega verið sett erfiðari skilyrði.
Ég skal svo ekki ræða frekar um málið nú við þessa I. umr. þess, en ég ætla, að þessar umr., sem hér hafa farið fram, séu nægilegar til þess, að sú n., sem fær þetta mál til athugunar, kynni sér það vel og athuga, hvaða afleiðingar samþykkt þessara atriða, sem hér hefur verið minnzt á, geti haft í för með sér fyrir síldarútveginn yfirleitt. En það hefur nú komið fram í umr. um þetta frv., að hæstv. ríkisstj. hefur ekki einu sinni fylgi allra sinna stuðningsmanna fyrir a.m.k. öllum ákvæðum þessa frv., því að þegar hér við 1. umr. þess hafa verið boðaðar brtt., sem flestur eru þess eðlis, að fordæmd er alveg sú stefna, sem fram kemur hjá ríkisstj. í sambandi við ákvæði þeirra l., sem hér er í raun og veru ætlazt til, að numin verði úr gildi. En þannig er háttað um ákvæði frv., sem gert er ráð fyrir að falli niður. svo sem ákvæði varðandi fjárframlög af hálfu ríkisins til sveitarfélaga varðandi íbúðarhúsbyggingar.
Ég hef hér lýst yfir áður, að ég er mjög mikið á mót þessum lið frv. og tel hann mjög ranglátan. Ég tel slíkt óviðunandi, ef sá kaupstaður landsins, sem bezt er efnum búinn og mesta möguleikana hefur til þess að byggja yfir íbúa sína, sem er Rvík, og hefur fengið greitt frá ríkinu um 5 millj. kr. til þess að byggja yfir íbúa sína, verði svo að segja ein um að njóta þessa styrks, þannig að þegar aðrir aðilar eru að hefja framkvæmdir í þessu efni, þá á að kippa l. úr gildi. Það var sjálfsagt, að Rvík fengi hér jafnan rétt við aðra, en hún á ekki heldur að fá neinn meiri rétt.
Í sambandi við annað atriði, sem ég minntist á nokkuð í morgun, um að skerða framlag ríkissjóðs í sambandi við endurbyggingar í sveitum, þá vil ég taka fram, að það virðist ekki rétt, sem fram kom hér hjá hæstv. ráðh. í svari hans í morgun, þegar hann sagði, að þetta væri gert með samkomulagi við rétta aðila, sem með þessi mál hafa að gera. Hér hefur sem sagt áður komið fram í umr. í hv. d., að einmitt formaður þessa sjóðs, sem er hv. þm. A-Húnv., lýsti yfir því, að nýbýlastjórn hafi ekki verið um það spurð, hvort ráðlegt væri að kippa þessu þannig burt, svo að það virðist vera samið við aðra aðila en þá, sem með þessar framkvæmdir hafa að gera. Og ekki er mér kunnugt um, að samningar hafi verið gerðir milli ríkisstj. og fólksins í sveitunum, sem átti að njóta þeirra laga. Það væri því fróðlegt að vita, við hvaða aðila ríkisstj. hafi í raun og veru samið viðvíkjandi þessum atriðum.
Þegar málið kemur úr n., gefst væntanlega tækifæri til þess að ræða nánar um þetta, og mun ég láta máli mínu lokið að sinni.