23.03.1948
Neðri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 913 í B-deild Alþingistíðinda. (1071)
188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson): Herra forseti. Þegar þetta mál var til umr. á síðasta fundi, setti hæstv. menntmrh. fram þá skoðun við nafnakall að svo framarlega sem allir óskuðu eftir jafnrétti, þá væri málinu stefnt í voða. Ég get ekki betur séð en ríkisstj. geti algerlega haft þetta mál í hendi sér. Við höfum samþ. 15 milljón kr. lán til kaupa á síldarvinnslutækjum. Ég sé ekki betur en þetta sé eina lánið, sem þessir menn geta fengið til að kaupa skipið, og ríkisstj. haldi þessu því algerlega í sínum höndum. Hún getur sagt: Hérna er skipið. Ef við seljum ykkur það, þá ráðum við skilyrðunum. — Hún lætur ekki Óskar Halldórsson setja sér kosti. Ríkisstj. er sú, sem ræður. Og ef þeir ætla að hlaupa út undan sér, gæti ríkisstj. sjálf tekið skipið. ríkisstj. hefur fengið lánsheimild frá Alþ. og hún gæti látið koma þessu upp fyrir eigin reikning. Réttur Óskars Halldórssonar til síldarvinnsluvéla, sem hann hafði flutt til landsins og fengið gjaldeyri fyrir, er nú mjög vafasamur, þar sem þær hafa legið hér svo lengi og þar með verið brotin skilyrði nýbyggingarráðs. Ég skil ekkert í hæstv. menntmrh., að hann skuli halda slíku fram sem áðan, að það sé verið að stofna málinn í voða, ef ríkisstj. heldur á rétti landsmanna. 1. brtt. var felld á röngum forsendum. Ég vil því bera fram brtt. um, að aftan við 6. lið 1. gr. bætist: „enda skulu skip þeirra aðila, sem ekki eru hluthafar, hafa rétt til þess að landa afla sínum í bræðsluskipið í réttu hlutfalli við hlutafjáreign SR í hlutafélaginu.“ Þetta er mun lélegra en það, sem áður var lagt fram, en ég hef ekki fundið till., sem alveg bætir úr till. minni, sem væri þá ekki svo svipuð og sú, sem felld var áðan, að henni væri vísað frá sem sömu till. Ég vil því orða brtt. mína: í réttu hlutfalli við hlut Síldarverksmið,ja ríkisins og Reykjavíkurbæjar. En þetta er dálítið hæpið, en það gæti orðið til athugunar undir umr., hvort SB og Reykjavíkurbær ættu ekki að eiga helming hlutafjárins. Og ef slíkt hlutfall væri, ætti jafnrétti þegnanna að vera tryggt. Þar sem till. mín um fullt jafnrétti var felld. sé ég ekki neitt betra. En ef þessi till. verður samþ., fer hún til Ed., og Ed. gæti þá bætt úr þeim misrétti, sem hér hefur verið hafður í frammi. Ég vil því vona, að hv. þm. samþ. þessa till., sem er stórt spor í rétta átt. Eftir að Alþ. hefur samþ. 15 millj. kr. lán, er ekki nema rétt, að ríkisstj. geti sett þau skilyrði, sem hún telur sönnust og réttust. Að öðru leyti vil ég ekki fara út í nýjar umræður um málið núna. En ég vil segja það, að það er óneitanlega dálítið slæmt með öryggi laga, sem hér hafa verið samþ. fyrir 2 úrum, eins og t.d. um íbúðarhúsabyggingar, sem þóttu til stórbóta, að þau skuli nú vera felld með 15:13 atkv. Og óneitanlega er það slæmt, að það skuli vera Alþflþm., sem riðu baggamuninn. Það var slæmt, þegar forseti taldi fyrirsögn bandormsins samþ. áðan án atkvgr., því að ef til vill er hún það versta í frv. Sumir hv. þm. greiddu atkv. sumum liðum bandormsins til 3. umr., og vona ég, að þeir muni þá snúast gegn honum. Ég vil nú biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir þessari till. minni, þar sem hún er svo seint fram komin og flutt skriflega.