23.03.1948
Neðri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (1084)

188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Hermann Guðmundsson:

Þetta mál hefur verið rætt mjög mikið og ekki ástæða til að bæta miklu við. Ég vil lýsa brtt., er ég flyt skriflega þess efnis, að við 1. gr., aftan við 1. tölul., bætist: „enda komi ákvæði þessa liðar ekki til framkvæmda fyrr en öll bæjarfélög og kauptún, sem þessi fyrirmæli snerta, hafa fengið hlutfallslega jafnhá fjárframlög og lánveitingar af hálfu ríkissjóðs í hlutfalli við íbúafjölda.“

Í þeim umr., sem fram hafa farið, hafa allmargir þm. lýst yfir andstöðu sinni við 1. lið. og vil ég taka undir það. Því verður hins vegar ekki neitað, að eitt bæjarfélag á landinu, Rvík, hefur notið nokkurs góðs af þessum lögum fram yfir önnur bæjarfélög, því að Rvík hefur fengið styrk, er nemur allt að 5 millj. kr. Ég segi ekki, að Rvík sé of sæl af því, og að ekki þurfi meira til, en gæta verður þess um leið, að þetta er ranglátt gagnvart þeim kaupstöðum, sem ekki hafa notið sömu hlunninda.

Það sýndi sig við afgreiðslu málsins til 3. umr., að meiri hluti þm. vildi láta 1. lið ganga fram. Ég ber þó fram þessa brtt., sem stefnir að því að koma í veg fyrir þetta ranglæti, sem ég áður gat um, og að önnur bæjarfélög fái hlutfallslega jafnhátt framlag og Rvík, áður en þessi liður frv. kemur til framkvæmda.

Ég skal svo ekki ræða þetta frekar, en vænti þess, að hæstv. forseti leiti afbrigða fyrir till.. sem ég nú afhendi honum.